Morgunblaðið - 06.09.2014, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.09.2014, Blaðsíða 1
Haustið skartaði sínu fegursta þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið hjá Rauðasandi og veðrið eins og best verður á kosið á þessum árstíma. Helgarveðrið verður ekki eins skemmtilegt en spáð er sunnan og suðvestan 5-13 m/s um landið vestanvert og súld eða lítils háttar rigningu. Aust- an til verður veðrið eitthvað betra en þar verður hægari vindur og bjartviðri. Hiti verður 8 til 16 stig yfir daginn, hlýjast á NA- og A-landi. Gengið um Rauðasand á fallegum haustdegi Morgunblaðið/Kristinn                        !  "#  "    %                                                 &                                      '# !    !   (   !          %  '' L A U G A R D A G U R 6. S E P T E M B E R 2 0 1 4 Stofnað 1913  208. tölublað  102. árgangur  MJÖG VÆNIR SJÓGENGNIR SILUNGAR SNÚA VÖRN Í SÓKN SAMVINNUVERKEFNI Á SNÆFELLSNESI 22STANGVEIÐI 16 FORTE blanda meltingargerla MÚLTIDOPHILUS þarmaflóran hitaþolin www.gulimidinn.is Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Ekki þarf mikið til að gos hefjist undir Dyngjujökli. Verði það af sam- bærilegum krafti og gosið í Holu- hrauni myndi það hins vegar ekki kalla á hamfarahlaup í Jökulsá á Fjöllum. Þetta segir Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur. Gosið í Holuhrauni færðist nær jöklinum í gær þegar ný gossprunga opnaðist í sigdal, aðeins um tvo kíló- metra norður af jöklinum. Þá sáu vísindamenn sem flugu yfir jökulinn sigdæld sem hefur myndast yfir kvikuganginum. Magnús Tumi segir þessar breytingar undirstrika það að enn séu töluverðar líkur á að gosið teygi sig undir jökulinn. Skjálftavirkni norðan Vatnajökuls hélt áfram í gær með svipuðum hætti og verið hefur undanfarnar vikur. Um 300 jarðskjálftar höfðu mælst í gærkvöldi frá því á miðnætti. Sá stærsti þeirra varð 5,3 að stærð. Hraunið í Holuhrauni heldur áfram að stækka og renni það eins hratt og það gerði í gær er mögulegt að það nái út í farveg Jökulsár á Fjöllum í dag, að sögn Pálma Erlendssonar, jarðfræðings hjá Veð- urstofu Íslands. Það ætti þó ekki að hafa mikil áhrif. „Það hefur ekki stórfengleg áhrif en það verða einhverjar sprengingar þegar glóheitt hraun rennur út í vatnið,“ sagði Pálmi í gærkvöldi. » Gæti náð undir jökul  Gossprungan í Holuhrauni nálgast Dyngjujökul  Breytingar undirstrika hættu á að sprunga opnist undir jökli  Hraunið gæti náð Jökulsá á Fjöllum í dag MBreytingar undirstrika »4  Sett verður upp málmleitar- hlið við inngang Alþingis að aft- anverðu, þannig að ekki verði hægt að fara með málmhluti upp á þingpalla. Helgi Bernódus- son, skrifstofu- stjóri Alþingis, segir tilgang hliðs- ins að auka öryggi í þinghúsinu og koma í veg fyrir að hægt verði að fara með hluti á þingpalla sem síð- an mætti fleygja inn í þingsalinn eða hluti sem menn geti skaðað sjálfa sig með. »6 Málmleitarhliði komið fyrir á Alþingi Helgi Bernódusson „Margir sjá þetta fyrir sér sem voðalega rómantískt en það er miklu meira en að segja það að vera á gos- stað – við frumstæðar aðstæður. Fólk er allan daginn að vinna í mis- jöfnu veðri og þar fyrir utan eru hlutir sem fólk þarf stöðugt að vera að hugsa um – allar hætturnar sem eru í kringum eldgos; að vera ekki í skotlínu við hraunið, að vera á rétt- um stöðum, undan vindi og ekki ná- lægt gasi og öðru,“ segir Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur á jarðvísindasviði Háskóla Íslands, í Sunnudagsmogganum í dag. Þor- valdur dvelur nú við rannsóknir við gosstöðvar í Holuhrauni og verður þar næstu daga en hann segir það geta reynt bæði líkamlega og and- lega á vísindamenn að vera á vett- vangi. Að missa einbeitinguna geti reynst dýrkeypt. Samkvæmt upplýsingum frá Veð- urstofu Íslands og Jarðvísinda- stofnun Háskóla Íslands koma um 130 manns að rannsóknum á því sem er að gerast í eldgosinu í Holuhrauni og jarðhræringunum við Dyngjujök- ul og Bárðarbungu, bæði á hálend- inu og í þéttbýlinu. Stærstur hluti þessa hóps er á vegum Veðurstofu Íslands, eða 105 manns, og jarðvís- indamenn á vegum Jarðvísinda- stofnunar vinna einnig dag og nótt við að leggja sitt af mörkum. Um 130 manns á vaktinni  Við rannsóknir allan sólarhringinn Morgunblaðið/Árni Sæberg Gos Vísindamenn standa í ströngu.  Alþjóðagjald- eyrissjóðurinn segir líkur á að fjármálafyrir- tæki fari á ný að ráða til sín starfsfólk Fjár- málaeftirlitsins samtímis upp- gangi í efnahags- lífinu. Því sé m.a. mikilvægt að stofnunin geti boðið starfsfólki „að- laðandi launakjör“ eigi eftirlitinu að haldast á fólki á komandi árum. Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri FME, segir stofnunina „mjög með- vitaða um þessa hættu“. »25 FME geti boðið „að- laðandi“ launakjör Unnur Gunnarsdóttir  Íslensk stjórnvöld ætla að auka framlög sín og þátttöku í Atlants- hafsbandalaginu (NATO). Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson for- sætisráðherra lýsti þessu yfir á fundi aðildarríkja hernaðarbanda- lagsins í Wales í gær. Borgara- legum sérfræðingum frá Íslandi verður meðal annars fjölgað í störfum NATO. Í ljósi alvarlegs ástands í Úkraínu ákváðu leiðtogar ríkjanna að koma á fót hraðliði 4.000-5.000 manna til að bregðast við mögulegri árás á aðildarríki í austurhluta Evrópu. Uppreisnarmenn í Austur- Úkraínu og fulltrúar úkraínskra stjórnvalda skrifuðu í gær undir samning um vopnahlé. Samkomu- lagið felur einnig í sér að stríðs- aðilar skiptist á föngum og að mannúðaraðstoð verði komið til íbúa á svæðinu. »26 Ætla að auka þátttöku og framlög íslenska ríkisins til Atlantshafsbandalagsins Vopnahlé Stjórnarhermaður í A-Úkraínu. AFP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.