Morgunblaðið - 06.09.2014, Blaðsíða 4
Eldur og brennisteinn Gufa og gas steig upp til suðausturs frá gosstöðv-
unum í gær. Mikið brennisteinstvíildi hefur mælst í kringum þær.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Enn eru töluverðar líkur á því að
gossprungan í Holuhrauni teygi sig
alla leið undir Dyngjujökul. Það
ætti þó ekki að valda hamfara-
hlaupi eins og málin standa nú, að
sögn Magnúsar Tuma Guðmunds-
sonar jarðeðlisfræðings.
Ný gossprunga opnaðist sunnan
við gosstöðvarnar í sigdal aðeins
tveimur kílómetrum norðan við
Dyngjujökul í fyrrinótt. Magnús
Tumi segir minni kraft í nýju
sprungunni en aðalsprungunni.
Hann flaug ásamt öðrum vís-
indamönnum yfir svæðið í gær og
sá að sigdæld hafði myndast um tíu
kílómetra innan við norðurjaðar
Dyngjujökuls. Hún sé einmitt yfir
kvikuganginum sem er uppspretta
hraunsins sem flæði upp í Holu-
hrauni.
„Þar hefur orðið einhver bráðnun
við botninn. Það er óljóst hvort
kvika hefur aðeins náð upp í botn-
inn eða ekki, það er ekki útilokað.
Þá er ekki ljóst hvenær það hefur
gerst,“ segir Magnús Tumi.
Enn líkur á gosi undir jökli
Vísindamenn unnu að því í gær-
kvöldi að fara yfir gögn um sig-
dældina. Magnús Tumi telur senni-
legt að vatn hafi lekið frá
Dyngjujökli í Jökulsá á Fjöllum,
þótt ekki sé það í stórum mæli.
Vísindamenn sem voru við gos-
stöðvarnar í gær fundu greinilega
jöklafýlu af ánni í gær og þá kom
aukin rafleiðni í henni fram á sjálf-
virkum mælum. Ekki hafa þó orðið
breytingar á rennsli hennar.
„Ég held að þær breytingar [sem
urðu í gær] undirstriki að það eru
ennþá töluverðar líkur á að gos-
sprungan muni teygja sig alla leið-
ina upp í jökul en það þarf ekkert
að vera að hún geri það. Það þarf
ekkert mikið til að það fari að
gjósa af alvöru undir jökli, án þess
að ég sé að spá því að það gerist,“
segir hann.
Enn sem komið er bendi ekkert
til þess að gosinu sé að ljúka en
Magnús Tumi segir að svo virðist
sem það ástand nálgist að jafn-
mikið af kviku komi upp úr gosinu
og kemur inn í kvikuganginn.
Ekkert hamfarahlaup
Þó að gossprunga opnist af sam-
bærilegum krafti og þær sem
gjósa nú í Holuhrauni undir
Dyngjujökli gerir Magnús Tumi
ekki ráð fyrir að hamfarahlaupi.
Hlaupið yrði af stærðargráðunni
1.000-1.500 rúmmetrar á sekúndu
og ættu farvegur Jökulsár og brú-
armannvirki ekki að vera í hættu
af völdum þess. Hann býst ekki
við umfangsmiklu hlaupi í þessari
hrinu þó að ekki sé hægt að úti-
loka neitt.
„Fyrst það er að koma upp
kvika þá er óskaástand að það
haldi áfram gos í Holuhrauni og
það sé nægilega mikið til að þrýst-
ingur í kvikuganginum aukist ekki.
Það er það ástand sem maður vildi
sjá. Við verðum bara að sjá hver
staðan verður á næstu dögum,“
segir Magnús Tumi.
Ljósmyndir/Guðmundur Karl
Gossprunga Nýja sprungan opnaðist aðfaranótt föstudags en krafturinn í henni er nokkuð minni en í aðalsprungunni. Hún er aðeins um tvo kílómetra norðan við Dyngjujökul.
Breytingar und-
irstrika hættuna
Gossprungan nálgast Dyngjujökul
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2014
Ferðamálaskóli Íslands • www.menntun.is • Sími 567 1466
Opið 8-22
LEIÐSÖGUNÁM
Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá, sem vilja kynnast Íslandi í máli og myn-
dum. Námið er opið öllum þeim, sem áhuga hafa á að læra hverning standa skal
að leiðsögn erlendra og innlendra ferðamanna um Ísland.
Stuðst er við námsskrá menntamálaráðuneytisins um viðurkennt leiðsögunám.
Helstu námsgreinar:
• Helstu viðkomustaðir ferðamanna í máli og myndum.
• Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta.
• Mannleg samskipti.
• Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðarverkefni og margt fleira.
Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar á hinum ýmsu
sviðum.
Boðið er uppá dag- og kvöldnám, auk þess sem farið er í vettvangsferðir.
Umsögn:
- Nemendur geta að ná i loknu gengið í Leiðsögufélagið -
Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyri þá sem vilja kynnast Íslandi í máli og myndum.
Námið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á að læra hvernig standa skal að
lei sögn erlendra og innle dra fe ðamanna um Ísland.
-Flest stéttarfélög styrkja neme dur til náms.
-Nemendur geta að námi loknu gerst félagsmenn í Leiðsögufélaginu
Helstu námsgreinar:
- Helstu viðkomustaðir ferðamanna á Íslandi í máli og myndum.
- Mannleg samkipti, leiðsögutækni, hestar, fuglar og flóra. Framsaga.
- Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta.
- Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðaverkefni o margt fleira.
Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar hver á sínu sviði.
Boðið er uppá dag – og kvöldnám, auk þess er farið í fjölda vettvangsferða.
Umsögn:
LEIÐSÖGUNÁM
VIÐURKENNT STARFSNÁM AF ATVINNULÍFINU
Opið 8- 2
S.l. vetur stundaði ég leiðsögunám í Ferðamálaskóla Íslands. Námið stóð vel
undir væntingum þar sem fjölmargir kennarar komu að kennslunni og áttu
þeir auðvelt með að ná til mín og auka áhuga minn á námsefninu og ekki
síst að vekja mig til umhugsunar um þá auðlind sem landið okkar er og þá
virðingu sem okkur ber að sýna því. Kennararnir voru mjög færir og fróðir hver
á sínu sviði og áttu auðvelt með að koma efninu til skila. Námið gefur mikla
atvinnumöguleika og spennandi tímar eru framundan.
GUÐRÚN HELGA BJARNADÓTTIR,
VESTMANNAEYJUM
Steypuframkvæmdir hefjast í vikunni við
nýtt 1650 fermetra fiskverkunarhús í Sand-
gerði. Verslunarfélagið Ábót stendur að
framkvæmdunum í samstarfi við fyrirtækið
Whitelink Seafood í Skotlandi. Um 30
manns munu starfa í húsinu þegar það
verður tekið í notkun eftir um tíu mánuði.
Ábót og Whitelink hafa átt samstarf í 13
ár og segir Hallgrímur Arthúrsson, fram-
kvæmdastjóri Ábótar, að fyrirtækið hafi
unnið úr 2-4 þúsund tonnum af fiski síðustu
ár og flutt til Evrópu með flugi og í gámum.
Fiskurinn fer síðan í verslanir og veitinga-
hús í Skotlandi, Frakklandi, Þýskalandi,
Ítalíu og víðar.
Fiskurinn er allur keyptur á markaði og
unninn hjá fyrirtækinu. Skötuselur og
steinbítur hafa verið fyrirferðarmiklir í
þessum útflutningi og „eiginlega allur fisk-
ur annar en þorskur og ýsa,“ eins og Hall-
grímur orðar það.
Nú er Ábót með starfsemi í leiguhúsnæði
í Garði og starfa þar um 20 manns.
Reisa fiskverkunarhús í Sandgerði
Flytja út fisk með flugi í samstarfi við skoskt fyrirtæki
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Framkvæmd Hallgrímur Arthúrsson framkvæmdastjóri Ábótar á
byggingasvæðinu. Bragi Guðmundsson verktaki byggir húsið.