Morgunblaðið - 06.09.2014, Blaðsíða 17
www.noatun.is
Lambalæri
með broddkúmeni, rósmarín og hvítlauk
1 lambalæri
Biðjið starfsmann í kjötborði að
taka úr lykilbein og geymið það
fyrir soð.
Marinering
5 hvítlauksgeirar
2 tsk. laukduft
2 tsk. broddkúmen
50 ml mild olía
2 tsk. tómatpúrra
lauf af 2 stórum
rósmaríngreinum
Setjið allt hráefnið í matvinnsluvél og
blandið saman. Nuddið marinering-
unni vel yfir kjötið og látið standa
yfir nótt í kæli. Takið lambalærið út
2-3 tímum áður en það á að fara í
eldun. Byrjið á að brúna lærið í ofni
á 220° í 10-15mín. þar til gullinbrúnt.
Lækkið þá hitann niður í 170° og
eldið þar til kjarnhiti hefur náð56°.
Hvílið í ca 20 mín. og berið fram.
Karamellað rótargrænmeti
2 meðalstórar rófur skornar
í grófa bita
1 meðalstórt hnúðkál skorið
í grófa bita
5 gulrætur skrældar og skornar
í grófa teninga
50 ml maplesíróp
50 ml rjómi
2 msk. eplaedik
Brúnið grænmetið á pönnu með
smá olíu, bætið maplesírópi í og
sjóðið niður í karamellu, bætið
loks rjómanum og sjóðið niður um
helming. Bætið ediki í og setjið
í eldfast mót, klárið í ofni þar til
grænmetið er meyrt. Smakkið til
með salti og pipar.
Sætkartöflu- og sellerírótarmauk
2 stórar sætar kartöflur, afhýddar
og skornar í litla bita
1 sellerírót afhýdd og skorin
í litla bita
50-100 ml rjómi
50 g smjör
2-3 msk. eplaedik
salt
Sjóðið í vatni sætar kartöflur og
sellerírót þar til alveg meyrar.
Látið allt vatn renna af og setjið í
blandara. Bætið í rjóma og smjöri
þar til vel maukað. Smakkið til
með salti og ediki.
Lykilbein af læri brúnað í ofni
3 hvítlauksgeirar saxaðir
4 skalotlaukar saxaðir
1 gulrót skorin í bita
½ búnt timjan
50 ml rauðvín
1 lítri vatn
2 tsk. fljótandi lambakraftur
40 g smjör
safi úr einni sítrónu
Brúnið lauk í potti, bætið
rauðvíni, beini og kryddjurtum í
sjóðið niður um helming og bætið
vatni út í. Látið malla á meðalhita
þar til um það bil helmingurinn
af vatninu hefur gufað upp. Sigtið
yfir í annan pott og þykkið með
sósujafnara. Bragðbætið með
salti, pipar og sítrónu. Pískið að
lokum kalt smjörið saman við.
Fyrir 6
Við gerummeira fyrir þig
Ö
ll
ve
rð
er
u
b
ir
t
m
eð
fy
ri
rv
a
ra
u
m
p
re
n
tv
il
lu
r
og
/
eð
a
m
yn
d
a
b
re
n
gl
.
H am r a b o r g – N ó a t ú n 1 7 – H r i n g b r a u t – A u s t u r v e r – G r a f a r h o l t
1698kr./kg
Lambalæri
af nýslátruð
u
398kr./askjan
Íslenskir
konfekttómatar,
250g
Mangó
549kr./kg
649kr./kg
299kr./askjan
Nektarínur, 1kg
389kr./askjan
2298kr./kg
Lambahryggur
afnýslátruðu
4698kr./kg
Ungnauta
RibEye
5298kr./kg
2398kr./kg
Ferskir,
kjúklingabringur
ósprautaðar
2869kr./kg
Haustslátrun
2014
389kr./pk.
339kr./pk.
LUPetitÉcolier,
dökkt eða ljóst, 150g
498kr./kassinn
CapriSonne
OrangeogSafari, 10x200ml
Bestir
í kjöti