Morgunblaðið - 06.09.2014, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 06.09.2014, Blaðsíða 43
aði að vinna hjá fiskverkun Guð- bergs Ingólfssonar og í Ísstöðinni í Garði. Bæði þessi fyrirtæki voru þá í eigu fjölskyldu eiginkonunnar. Það ætti því ekki að koma á óvart að ég kynntist konunni minni þarna í vinnunni á unglingsárunum og við höfum verið saman síðan. Ég vann síðan á bensínstöðinni Básnum og starfrækti jafnframt verslunina Básinn sem var í sama húsnæði.“ Kjartan sneri sér að bifreiðasölu árið 1990 og hefur stundað hana síð- an. Hann stofnaði K. Steinarsson ehf. árið 1999 og starfrækir það fyr- irtæki enn í dag, ásamt konu sinni og bróður sínum, Sigtryggi. Félagsmála- og fjölskyldumaður Kjartan er mikill orkubolti og hefur alltaf verið iðinn við félags- störf. Hann sat í æskulýðsnefnd í Garði um skeið, tók þátt í undirbún- ingi 17. júní-hátíðahalda og þrett- ándabrennu fyrir hönd Lions- klúbbsins Garðs, var formaður íþróttafélagsins Ness 2003-2007, hefur verið félagi í Lionsklúbbnum Garði frá 1986 og varð Melvin Jon- es-félagi starfsárið 1997-1998, en það er æðsta viðurkenning Lions- hreyfingarinnar. Kjartan er einnig í frímúrara- stúkunni Sindra, varaformaður í stjórn Knattspyrnufélags Keflavík- ur og hefur verið í stjórninni þar frá 2007. En Kjartan er ekki síður fjöl- skyldumaður. Hann snýst í kringum syni sína tvo og tengdadóttur, en ekki síst í kringum fyrsta barna- barnið, sonarson sem fæddist hinn 16. maí sl. Sá er auðvitað augasteinn afa síns. Kjartan er vinmargur enda bón- góður og skemmtilegur og hefur yndi af alls konar reddingum. Ef hann er ekki á fullu að kippa ein- hverju í liðinn fyrir einhverja í fjöl- skyldunni, vini eða kunningja er hann upptekinn við að segja sögur, hlæja og hafa gaman af tilverunni. Fjölskylda Kjartan kvæntist 5.1. 1988 Guð- björgu Theodórsdóttur, f. 23.12. 1966, viðurkenndum bókara. Hún er dóttir Theodórs Guðbergssonar, f. 19.11. 1950, fiskverkanda í Garði, og k.h., Jónu Höllu Hallsdóttur, f. 2.11. 1949, skrifstofumanns. Börn Kjartans og Guðbjargar eru Theodór Kjartansson, f. 20.8. 1988, lögmaður, búsettur í Hafnarfirði en kona hans er Elva Björk Trausta- dóttir næringarfræðingur og mast- ersnemi og er sonur þeirra Hjörvar Breki Theodórsson, f. 2014, og Sig- tryggur Kjartansson, f. 24.9. 1990, tölvunarfræðingur og stærðfræð- ingur frá MIT, búsettur í Mountain View í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Systkini Kjartans eru Ásgeir Steinarsson, f. 17.11. 1965, versl- unarstjóri í Reykjanesbæ; Sig- tryggur Steinarsson, f. 19.1. 1971, löggiltur bifreiðasali í Reykjanesbæ, og Sólrún Steinarsdóttir, f. 7.7. 1979, húsfreyja í Reykjanesbæ. Foreldrar Kjartans eru Steinar Sigtryggsson, f. 21.12. 1947, um- boðsmaður Olís á Suðurnesjum, og k.h., Birna Martínsdóttir, f. 17.1. 1947, húsfreyja. Þau búa í Reykja- nesbæ. Úr frændgarði Kjartans Steinarssonar Kjartan Steinarsson Lára Þorsteinsdóttir húsfr. í Rvík Haraldur Jóhannsson stýrim. í Rvík Guðrún Haraldsdóttir kennari í Rvík Martín Björnsson málarameistari í Rvík Birna Martínsdóttir húsfr. í Reykjanesbæ Halldóra Sigríður Þórðardóttir vinnuk. í Rvík Björn Benediktsson verkam. í Rvík Kristín Sædal óperusöngkona Kjartan Atli Kjartansson blaðamaður á Fréttablaðinu Kjartan Sigtryggsson lögregluþjónn í Reykjanesbæ Steinunn Gunnhildur Guðmundsdóttir verkak. í Rvík Ásgeir Magnússon vélstj. í Rvík Klara Ásgeirsdóttir húsfr. og spákona í Reykjanesbæ Sigtryggur Kjartansson bifreiðarstj. í Reykjanesbæ Steinar Sigtryggsson umboðsm. Olís í Reykjanesbæ Sigríður Jóhanna Jónsdóttir húsfr. í Keflavík Kjartan Ólason vélstj. og fyrsti form. Vélstjórafélags Keflavíkur Fyrsta barnabarnið Hjörvar Breki. ÍSLENDINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2014 Magnús fæddist á Torfmýri íAkrahreppi 7.9. 1919. For-eldrar hans voru Jón Ey- þór Jónasson, bóndi þar og á Mel í Staðarhreppi, og k.h., Ingibjörg Magnúsdóttir húsfreyja. Bróðir Jóns var Einar, hrepp- stjóri og oddviti að Laugalandi á Þelamörk. Jón var sonur Jónasar, b. í Stóragerði í Hörgárdal Jónssonar, b. á Barká Ólafssonar, bróður Ein- ars, hreppstjóra að Laugalandi, langafa Einars Olgeirssonar alþm. Bróðir Ingibjargar var Hannes, skólastjóri og barnabókahöfundur á Akureyri. Ingibjörg var dóttir Magnúsar, b. á Torfmýri, bróður Sigríðar í Djúpadal, móðurömmu Sigurgeirs, fyrrv. bæjarstjóra á Sel- tjarnarnesi. Ingibjörg var af Skegg- staðaætt sem talin er fjölmennasta alþingismannætt hér á landi. Bræður Magnúsar voru Baldur Jónsson, rektor KHÍ, og Halldór Þormar sýslumaður, faðir Jóns Orms prófessors. Eiginkona Magnúsar var Ingi- björg Magnúsdóttir húsfreyja en hún lést í ársbyrjun á þessu ári. Börn þeirra eru Kristín, kennari við Austurbæjarskólann, og Jón verk- fræðingur Magnús lauk stúdentsprófi frá MA 1940 og embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1946. Hann var starfsmaður í fjármálaráðuneytinu 1948-49, fulltrúi þar 1949-53, framkvæmda- stjóri Sjálfstæðisflokksins 1953-60 og bankastjóri Búnaðarbankans 1961-65 og frá 1971 til æviloka. Magnús var alþm. Eyfirðinga fyr- ir Sjálfstæðisflokkinn 1952-59 og Norðurlandskjördæmis eystra 1959- 74, varð fjármálaráðherra í Viðreisn- arstjórninni er Gunnar Thoroddsen varð sendiherra í Kaupmannahöfn 1965-71 og var varaformaður Sjálf- stæðisflokksins 1973-74. Magnús var formaður SUS 1949- 55, sat í raforkuráði, síðar orkuráði og formaður þess, sat í áfengis- varnaráði um árabil og var formaður Landssambandsins gegn áfengisböl- inu, sat í flugráði og stóriðjunefnd, var formaður stjórnar Kísiliðjunnar hf. og sat í stjórn Framkvæmda- stofnunar ríkisins. Magnús lést 13.1. 1984. Merkir Íslendingar Magnús Jónsson frá Mel 90 ára Ingibjörg Jóhannsdóttir 85 ára Ásdís Helgadóttir 80 ára Elín Lúðvíksdóttir Jóhanna Jónsdóttir Karl Adolf Ágústsson 75 ára Anna Þorkelsdóttir Dóra Hervarsdóttir Guðni Þórðarson Jóhannes Sigurjónsson Magnús Pálsson Sigríður Skaftadóttir 70 ára Elín Þ. Melsted Grettir Ásmundur Hákonarson Guðný S. Guðjónsdóttir Hrafnhildur Jónsdóttir Jakob Þorsteinsson Jórunn Ingibjörg Magnúsdóttir Kristín Guðbjörnsdóttir Rada Stojanovic 60 ára Ása Björg Stefánsdóttir Einar Þór Einarsson Jón Haukur Sverrisson Ómar Einarsson Salmína Sofie Pétursdóttir Sveinbjörn A. Sigurðsson Þórður Ingvi Guðmundsson 50 ára Arnhildur María Reynisdóttir Erla Jóna Hilmarsdóttir Guðmundur Jóhann Gíslason Margrét Kristín Jónsdóttir Ólafur Steindórsson Sigríður Ingvadóttir Sigurður Kjartan Steinarsson Soffía Líndal Eggertsdóttir 40 ára Björt Rúnarsdóttir Bylgja Kristófersdóttir Drífa Heimisdóttir Eggert Jóhannesson Emil Austmann Kristinsson Guðbjörg Lísa Gunnarsdóttir Hilmar Andri Hildarson Hjalti Jóhannesson Jaroslaw Antczak Jaroslaw Tadeusz Smentoch Laufey Líndal Ólafsdóttir Madalina Ioana Vasile Monika Agnieszka Wyrzykowska Sigurður Jóhann Pétursson Þórhildur Rafnsdóttir 30 ára Ásta Magnúsdóttir Davíð Már Njálsson Herdís Ýr Hreinsdóttir Jekaterina Jerofejeva Jón Ólafsson Katarzyna Ewelina Radomska Pawel Kraszewski Styrmir Örn Guðmundsson Unnur María Birgisdóttir Sunnudagur 95 ára Birna Guðbjörnsdóttir 90 ára Þorbjörg Konráðsdóttir 85 ára Ólafur Pálsson Sigríður Anna Jóhannsdóttir Snjólaug Kristjánsdóttir 75 ára Elsa Lilja Eyjólfsdóttir Marteinn Haraldsson Svavar Sigmundsson 70 ára Alfred A. Frederiksen Guðlaugur Wium Hansson Jóhannes Sandhólm Atlason Jón Gunnar Valdimarsson Kristín Þóra Valdimarsdóttir Sigríður B. Halldórsdóttir Snorri Björnsson Svanhildur A. Kaaber Þórey Helgadóttir Þórhallur Óskar Þórhallsson Örlygur Richter 60 ára Ásthildur Jónsdóttir Birgir Sveinsson Birgir Þórarinsson Bragi Sveinsson Dagmar Jenny Gunnarsdóttir Eiríkur Jónsson Hafdís F. Rögnvaldsdóttir Halldóra Kristín Kristinsdóttir Jón Ásberg Salómonsson Jón Sveinsson Lára Hulda Arnbjörnsdóttir Oddný Kristín Jósefsdóttir Sigrún Bryndís Gunnarsdóttir Sigrún Fjóla Baldursdóttir Þórir Bjarnason Þórný Jónsdóttir 50 ára Anna Regina Watras Árni Friðjón Árnason Baldvin Þór Þorsteinsson Brynjólfur B. Harðarson Fjóla Svavarsdóttir Guðrún Lilja Arnórsdóttir Helga Magnúsdóttir Marta Gígja Ómarsdóttir Sigrún Benediktsdóttir Sævör Þorvarðardóttir 40 ára Andri Páll Pálsson Guðrún Hrund Harðardóttir Heiðar Örn Kristjánsson Jón Þór Þorleifsson Júlía Valdimarsd. Vorontsova Karl Márus Jónasson Kjartan Viðar Jónsson Kristján Sigurðsson Lilja Sigurðardóttir María Pálsdóttir Óliver Hilmarsson Tómas Þorsteinsson 30 ára Guðmundur Pálsson Halla Lúthersdóttir Helga Sigríður Hjálmarsdóttir Inga Bára Ragnarsdóttir Ingólfur Björgvin Jónsson Ingvi Brynjar Sveinsson Marzena Sadkowska Nanna Rut Jónsdóttir Regina Guevarra Tomarao Unnur Ragna Pálsdóttir Þorvaldur Guðjónsson Þórir Bjarnason Til hamingju með daginn Njóttu ávallt hins besta – steik eins og steik á að bragðast Barónsstíg 11 101 Reykjavík argentina.is Borðapantanir 551 9555

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.