Morgunblaðið - 06.09.2014, Blaðsíða 49
Þórhallsdóttur á stóra sviði Borg-
arleikhússins. Verkið var unnið út
frá eldra verki höfundanna, sem
nefndist Belinda og Gyða og var
sýnt á Reykjavík Dance Festival ár-
ið 2011. Fyrra verkið var mjög
áhugavert. Dramatík og fyndni
voru tvinnuð saman á einstakan
hátt þar sem hreyfiform, sem rekja
má til hreyfinga hestsins, voru not-
uð í tengslum við hið kvenlega eðli.
Það var því spennandi að sjá hvern-
ig þær myndu þróa verkið áfram í
viðamikilli uppfærslu með níu döns-
urum. Upphafsatriði Reið var mjög
vel gert hvað alla efnisþætti varðar
og lofaði verkið því góðu. Fljótlega
kom þó í ljós að ekki var nægt kjöt
á beinunum, látlausari framsetning
hentaði þemanu betur og litlu var
við að bæta. Búningarnir voru til-
gerðarlegir og hljóðmyndin
skringilega unnin.
Reykjavík Dance Festival 2014
var einstaklega vel heppnuð hátíð
sem sýndi ólíkar hliðar danslist-
arinnar. Góð mæting var á allar
sýningar og nú er bara að vona að
þróun hátíðarinnar haldi áfram á
þessari braut.
Ljósmynd/Steve Lorenz
Reið Að mati rýnis hentaði látlausari framsetning á þemanu um tengsl
kvenna og hryssna betur og reyndist litlu við að bæta í nýja verkinu.
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2014
Leikstjórinn HafsteinnGunnar Sigurðssonstimplaði sig inn á kvik-myndasviðið með mynd-
inni Á annan veg sem frumsýnd var
árið 2011. Í annarri frásagnarmynd
sinni vinnur hann með handritshöf-
undinum Huldari Breiðfjörð en
hugsjón leikstjórans verður þó ekki
undir því nýja myndin er að mörgu
leyti keimlík frumrauninni, bæði í
efni og stíl. Hafsteinn notast aftur
mikið við langar tökur, hreyfanlega
tökuvél og nokkuð víða römmun
myndefnis þannig að leikararnir fá
nægjanlegt rými til að láta ljós sitt
skína. Hann lætur einnig kyrrlátt
og gráleitt sögusviðið þrengja að
söguhetjunum og notar hæfilega
hressa og afkáralega tónlist Prins
Póló sem undirleik til að hnykkja á
eymd þeirra.
Sagan segir af Huga (Birni
Thors), manni á fertugsaldri sem á í
vonlausu ástarsambandi og flýr á
náðir dreifbýlisins til að reyna að
ná áttum. Á Flateyri tekst með
honum og fjórum öðrum karl-
mönnum, sem allir eiga í sambæri-
legri tilfinningakreppu, ólíkleg og
stirðbusaleg vinátta. Óvirki og
óframfærni alkinn Svavar (Sigurður
Skúlason) reynir að ganga Huga í
föðurstað á meðan meira neistar á
milli Huga og fyrrverandi tengda-
sonar Svavars, auðnuleysingans
Richards (Jóns Páls). Barnabarn
Svavars, hinn níu ára gamli Albert
(Haki), virðist hins vegar ná bestu
tengslunum við Huga en þegar fað-
ir Huga, hinn óútreiknanlegi og
óforskammaði Veigar (Helgi
Björns), skýtur upp kollinum riðlast
jafnvægi allra þessara brothættu
sambanda með stórkostlega snaut-
legum afleiðingum.
Fullorðnu karlmennirnir eru allir
eins og óálitlegir, ófleygir strútar
sem bregðast ókvæða við og eru í
hættu staddir þegar ný „rándýr“
birtast í heimkynnum þeirra. Þegar
þeim er ógnað reyna þeir að fela sig
með því að leggjast flatir eða þeir
hlaupa eins hratt og þeir geta í
burtu. Strákurinn Albert er sá eini
sem virðist geta átt sér viðreisnar
von, hann reynir að minnsta kosti
að standa keikur. Leikararnir
standa sig allir afburða vel í hlut-
verkum misheppnaðra feðra og
sona og ná að skapa aðdáunarverða
togstreitu sín á milli.
Kreppa karlanna og hreinskiptin
afhjúpun varnarleysis þeirra er
þungamiðja myndarinnar en þó er
einni kvenpersónu, Ernu (Nönnu
Kristínu), teflt gegn þeim. Persóna
hennar fær þó ekkert rúm til að
kynna sig og hegðun hennar virðist
að mestu óskiljanleg. Hálfdrætt-
ingstilvist hennar er því eins og
ljótt lykkjufall í annars ágætlega
spunnum söguþræði. Annaðhvort
hefði persónusköpun hennar þurft
að vera sterkari eða hlutverkið til
muna minna en þó skal tekið fram
að Nanna Kristín gefur sig alla í
þetta takmarkaða hlutverk.
Einvera í dreifbýlinu hafði göfg-
andi áhrif á persónurnar í Á annan
veg. Á Flateyri er hún hins vegar
fremur innilokandi og kynngi stað-
arins nýtur sín alls ekki þannig að á
köflum er jafnvel eins og verið sé
að gera grín að menningarlegum fá-
breytileika og nægjusemi persóna
sem og annarra íbúa. Á annan veg
er í raun sterkari og þéttari mynd
þar sem persónurnar náðu að læra
hver af annarri og styrkjast í leið-
inni. Hugi og félagar virðast aftur á
móti alltaf höggva í sama knérunn;
þeir þroskast ekkert og halda
áfram sinni einfeldningslegu strúts-
hegðun með tilheyrandi feluleik eða
flótta. Engu að síður ber margt
fyndið á góma í myndinni, til dæmis
er sprenghlægilegt að sjá Svavar
stýra af formfastri röggsemi
þriggja manna AA-fundi þar sem
hinir tveir fundargestirnir eru fyrr-
verandi tengdasynir hans.
París norðursins er heilt á litið
mjög áferðarfögur og oft afar glett-
in, sérstaklega þar sem ekkert er
skafið af varnarleysi og krísu karl-
persónanna, en stundum verður
óskammfeilinn neðanbeltishúmor of
fyrirferðarmikill og það rænir tölu-
verðu af dramatískum skriðþunga
framvindunnar.
Karlar sem stinga höfðinu í sandinn
Óskammfeilinn Helgi Björnsson í hlutverki Veigars. Hér sést hann fljótandi á vindsæng í sundlaug þorpsins á meðan hópur kvenna dansar sundhringdans.
Smárabíó, Háskólabíó, Laugar-
ásbíó, Borgarbíó Akureyri og
Sambíóin Keflavík
París norðursins bbbnn
Leikstjórn: Hafsteinn Gunnar Sigurðs-
son. Handrit: Huldar Breiðfjörð. Aðal-
hlutverk: Björn Thors, Helgi Björnsson,
Nanna Kristín Magnúsdóttir, Sigurður
Skúlason, Jón Páll Eyjólfsson og Haki
Lorenzen. 98 mínútur. Ísland, 2014.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
EIN ÓVÆNTASTA
SPENNUMYND
ÁRSINS
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í USA
10
10
JENNIFER ANISTON
ISLA FISHER
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
16
ÍSL.
TAL
L
L
12
12
12
14
PARÍS NORÐURSINS Sýnd kl. 8 - 10:10
LIFE OF CRIME Sýnd kl. 5:30 - 8
TMN TURTLES 3D Sýnd kl. 3:25 - 5
TMN TURTLES 2D Sýnd kl. 2
LET´S BE COP´S Sýnd kl. 10:10
LUCY Sýnd kl. 8
THE EXPENDABLES 3 Sýnd kl. 10
AÐ TEMJA DREKANN 2D Sýnd kl. 2 - 5
DINO TIME Sýnd kl. 1:30
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar