Morgunblaðið - 06.09.2014, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 06.09.2014, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2014 HÁRTÆKJADAGAR Sjáðu allt úrvalið á www.byggtogbuid.is ÖLL HÁRSNYRTITÆKI Á 20-50% AFSLÆTTI SLÉTTUJÁRN • BYLGJUJÁRN • HÁRKLIPPUR • KRULLUJÁRN • NEFHÁRASNYRTAR • BLÁSARAR • HITABURSTAR • RAKVÉLAR • KEILUJÁRN • HITARÚLLUR • HÁRSNYRTAR OG MARGT FLEIRA Gríptu tækifærið og gerðu góð kaup! Uppskeruhátíð býflugnabænda verður haldin í veitingatjaldi Fjöl- skyldu- og húsdýragarðsins í Laug- ardal í Reykjavík í dag, 6. sept- ember, milli kl 14 og 16. Býflugnabændur kynna þar bý- flugnarækt og koma með sýnishorn af uppskeru sumarsins. Þeir munu gefa gestum að smakka eigin fram- leiðslu á hunangi sem verður slengt beint úr búinu á staðnum. Einnig verður takmarkað magn af íslensku hunangi til sölu. Þá verður ýmis búnaður tengdur býflugnarækt sýndur, segir í tilkynningu. Kvenfélag Grímsneshrepps verð- ur með sultukynningu á sama tíma. Berjaspretta hefur verið misgóð eftir landshlutum þetta árið en von- andi að allir hafi fengið sitt og hús- mæður og -feður geta því leitað upplýsinga í röðum félaga í Kven- félaginu til að nýta berin. Hús- freyjan, tímarit Kvenfélaga- sambands Íslands, mun liggja frammi. Morgunblaðið/Eggert Hunang Býflugnabændur halda árlega uppskeruhátíð sína um helgina. Íslenskt hunang og sultur í boði Árlegur haust- markaður Kristniboðs- sambandsins verður haldinn í Kristniboðs- salnum, Miðbæ, Háaleitisbraut 58-60 í Reykja- vík, í dag frá kl. 12-16. Fram kemur í tilkynningu, að til sölu verði græn- meti, ávextir, sultur, kökur, blóm og ýmislegt til heimilishalds. Þá verða vöfflur í boði og kaffi á könnunni. Ágóðinn fer til að uppörva stríðshrjáð fólk í Mið-Austur- löndum. Haustmarkaður kristniboðanna Flóttafólk frá Mosul í Írak. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is „Það er synd að vefsíðan sé næst- stærsti einstaki móttakandi fram- laga í hlaupinu. Mér finnst þetta vera tækifæri fyrir þá sem halda hlaupið að fara frá því að vera einn stærsti móttakandinn í það að vera einn stærsti gefandinn. Það er óheppilegt að verið sé að taka fé sem kemur úr þessari átt. Þetta er brota- brot af öllum kostnaði við hlaupið,“ segir Kristrún Tinna Gunnarsdóttir, hagfræðingur og hlaupari í Reykja- víkurmaraþoninu í fyrra. Fram kom í Morgunblaðinu á fimmtudag að allt að 10% áheita sem sett eru á hlaupara á styrktarsíð- unni hlaupastyrkur.is fari í rekstur vefsíðunnar, en ekki til góðgerða. Í fyrra nam þessi upphæð um fimm milljónum króna. Vefsíðan hlaupa- styrkur.is er rekin af fyrirtækinu Reykjavíkurmaraþon sem tengt er rekstri ÍBR. „ÍBR sér um framkvæmd Reykja- víkurmaraþonsins. Við erum sam- starfsaðilar þeirra. Við greiðum þeim árlega styrk. Hvernig þeir nýta þennan styrk er þeirra mál. Svo sjáum við um allt markaðs- og kynningarstarf,“ segir Guðný Helga Herbertsdóttir, upplýsingafulltrúi Íslandsbanka, aðspurð hvort til greina komi að greiða kostnað við rekstur vefsíðunnar hlaupa- styrkur.is. Eftir að Kristrún Tinna komst að því að hluti áheita færi ekki inn í góðgerðarfélag sem hún hugðist styrkja, bað hún fólk um að leggja beint inn á styrktarreikning félags- ins. Hún telur gegnsæið ekki nægi- lega mikið. „Það var frekar erfitt að finna þessar upplýsingar og ég fékk þær ekki fyrr en ég sendi fyr- irspurn. Svo var alveg sama við hvern ég nefndi þetta. Allir komu af fjöllum og voru hneykslaðir yfir því að verið væri að taka af framlögum. Ég get alveg skilið að þetta kostar mikið og aðstandendur eiga heiður skilinn fyrir framkvæmdina en það breytir ekki þessari gagnrýni,“ segir Kristrún. Næststærsti þiggjandi framlaga  „Óheppilegt“ að hlaupastyrkur.is taki hluta framlaga í rekstur síðunnar Norðurheimskautsbaugshlaup TVG Zimsen verður haldið í Gríms- ey í dag. Er þetta í þriðja skipti sem hlaupið er haldið þar. Fram kemur í tilkynningu að þetta sé nyrsta almenningshlaup á Íslandi, þar sem m.a. sé hlaupið yfir norðurheimskautsbauginn. TVG Zimsen býður hlaupurum upp á næringu, sem kvenfélags- konur í Grímsey reiða fram, bæði meðan hlaupið er og eftir það. Hlaupið yfir heim- skautsbaug í dag Vefurinn hlaupastyrkur.is var settur á laggirnar árið 2010. Ís- landsbanki gaf hönnun hans en rekstur er í höndum Reykjavík- urmaraþons ehf. Aðspurður segir Frímann Ari Ferdinandsson, fram- kvæmdastjóri ÍBR, að ekki hafi verið leitað til annarra styrkt- araðila til þess að standa straum af kostnaðinum við að reka vefsíðuna. Hafa ekki leit- að til annarra HLAUPASTYRKUR.IS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.