Morgunblaðið - 06.09.2014, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 06.09.2014, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 249. DAGUR ÁRSINS 2014 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Ingó og Rakel María geisluðu 2. Flogið yfir gossprungur 3. Fékk bátsflak í nótina 4. „Ég vil bara fá peninginn“  Rúmlega tuttugu þúsund gestir hafa lagt leið sína í Ljósmyndasafn Reykjavíkur, á 6. hæð Grófarhússins, til að skoða yfirlitssýningu á verkum ljósmyndarans Ragnars Axelssonar, Rax, sem nefnist „Spegill lífsins“. Er það metaðsókn í safnið, fleiri gestir en komu til að mynda á sýningar með verkum Henri Cartier-Bresson og Viggos Mortensen, og segir starfs- fólk safnsins stanslausan straum gesta hafa verið í allt sumar, að skoða ljósmyndirnar og horfa á róm- aða heimildarmynd um störf Ragn- ars. Sýningunni lýkur um helgina og verður ljósmyndarinn með leiðsögn á ensku fyrir gesti á laugardag klukkan 15 og áritar um leið bækur sínar. Morgunblaðið/Kristinn Metaðsókn á sýningu Ragnars Axelssonar  KK, Pétur Ben, Ragnheiður Gröndal og Júníus Meyvant koma fram á tón- leikum um helgina í Rokksafni Ís- lands í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ og eru tónleikarnir liður í bæjarhátíð- inni Ljósanótt. Júníus hefur leik í dag kl. 16 og Pétur Ben kl. 17. Á morgun kl. 16 kemur Ragnheiður Gröndal fram og kl. 17 er komið að KK. Rokk- safn Íslands er nýtt safn um sögu popp- og rokktónlistar á Íslandi og meðal muna í því er trommusett Gunnars Jökuls, það sama og hann lék á við upptökur á plötunni Lifun með Trúbroti, LED- ljósabúningur Páls Óskars og tré- skúlptúr af reggí- hljómsveitinni Hjálmum. Halda tónleika í Rokksafni á Ljósanótt FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan og suðvestan 5-13 m/s um landið V-vert og súld eða lítils háttar rigning. Hægari vindur A-til og bjartviðri. Hiti 8 til 16 stig yfir daginn. Á sunnudag Sunnan og suðvestan 8-13 m/s og súld eða rigning V-til. Hægari vindur á A- verðu landinu, þurrt veður og bjart með köflum. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast á NA- og A-landi. Á mánudag Gengur í sunnan og suðaustan 10-15 m/s eftir hádegi með rigningu, en þurrt NA-til. Hiti svipaður. Nýr formaður Frjálsíþrótta- sambands Íslands verður kjörinn á þingi þess á Akureyri um helgina. Jónas Egilsson gefur ekki kost á sér til endurkjörs og þeir Einar Vil- hjálmsson, Íslandsmethafi í spjót- kasti og þrefaldur íþróttamaður ársins, og Benóný Jónsson, vara- formaður sambandsins, slást um formannsstöðuna. »1 Einar og Benóný í for- mannsslag á Akureyri Haukar taka á móti Dinamo Astrakhan frá Rússlandi í fyrstu umferð EHF-bikars karla í handknattleik á morgun. Patrekur Jóhann- esson, þjálfari Hauka, segir að Dinamo sé ekta rúss- neskt lið með bæði stóra og snögga leikmenn innan- borðs. Hans menn muni leggja upp með að vinna heimaleikinn og sjá svo til. »2 Haukar fá Rússa í heimsókn Tyrkir mæta með firnasterkt lið á Laugardalsvöllinn næsta þriðjudags- kvöld. Spánarmeistarinn Arda Turan er fremstur í flokki hættulegra miðju- manna. „Keisarinn“ tók aftur við lið- inu og undir hans stjórn leggja leikmenn hjarta og sál í leikinn. Þeir eru sókn- djarfir og skemmtilegir en varnarleikur liðsins er ekki traustur. Þar gætu mögu- leikar Ís- lands legið. »2-3 Sókndjarfir Tyrkir á leiðinni í Laugardalinn Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Umræðan um Breiðholtið hefur lengi verið frekar neikvæð og því er þetta það besta sem gat gerst með hagsmuni hverfisins í huga og það heldur flaggi þess hátt á lofti.“ Þetta segir Kjartan Örn Þórðar- son, formaður meistaraflokksráðs Leiknis, um árangur karlaliðsins í knattspyrnu, sem tryggði sér í fyrrakvöld sæti í efstu deild í fyrsta sinn í um 40 ára sögu félagsins. Samfara uppbyggingu í Efra- Breiðholti var farið að huga að æskulýðsstarfi. Framfarafélag Breiðholts 3 var stofnað í ársbyrjun 1973. Ragnar Magnússon, fyrsti for- maður Leiknis, segir að eitt af því fyrsta sem fyrsti formaður Fram- farafélagsins, Hjálmar W. Hann- esson, sendiherra og nú aðalræðis- maður í Winnipeg í Kanada, hafi lagt fyrir stjórn Framfarafélagsins til umræðu hafi verið íþrótta- og æskulýðsmál. ÍR var þá flutt í neðra Breiðholt eða Breiðholt 1, en hafi ekki sinnt Efra-Breiðholti. Þess vegna hafi verið ákveðið að stofna íþróttafélag. „Ástæðan fyrir stofnun Leiknis 1973 var því fyrst og fremst sinnuleysi ÍR,“ segir Ragnar. Erfið fæðing „Foreldrarnir héldu félaginu gangandi og Kvenfélagið Fjallkonur var þeim mjög innan handar,“ held- ur hann áfram, en eiginkona hans, Guðlaug P. Wium, var formaður kvenfélagsins. Hann leggur áherslu á að þetta hafi verið mikið basl en árangurinn nú réttlæti það allt. „Þarna var ákveðin kjölfesta, en ég minnist þess ekki að menn í knatt- spyrnudeildinni hafi rætt um að fara með liðið í efstu deild. Nú, þeg- ar það er orðið að veruleika, er ekki annað hægt en að gleðjast, því þetta er glæsilegur árangur.“ Þórður Einarsson, framkvæmda- stjóri Leiknis, byrjaði í 7. flokki 1988. Hann bendir á að fram að því hafi aðstöðuleysi háð félaginu, en gervigras hafi verið lagt á völlinn 1993 og nýi grasvöllurinn tekinn í notkun skömmu síðar. „Ég, eins og aðrir krakkar í hverfinu, vann við það að setja klemmur á hitakerfið sem er enn undir gervigrasinu,“ segir hann. Núverandi stjórn hafi tekið við 1999, tekið á fjárhagsvand- anum og eftir að félaginu hafi verið breytt í knattspyrnufélag fyrir um áratug hafi boltinn farið að snúast fyrir alvöru. Stefnan hafi síðan verið mörkuð með ráðningu Sigursteins heitins Gíslasonar sem þjálfara haustið 2008. Kjartan Örn tekur í sama streng. Hann bætir við að æskuvinirnir hafi tekið höndum saman og dæmið hafi nú gengið upp. Best fyrir Breiðholtið  Árangur Leikn- is heldur flaggi hverfisins á lofti Morgunblaðið/Kristinn Fyrsti formaður Leiknis Ragnar Magnússon steig stoltur út á Leiknisvöllinn í Breiðholti í gær. Morgunblaðið/Eva Björk Pepsi-deildin 2015 Mikil gleði ríkti á Leiknisvellinum í fyrrakvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.