Morgunblaðið - 06.09.2014, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2014
Sunna Sæmundsdóttir
sunnas@mbl.is
Hagnaður Samherja nam 22 millj-
örðum króna árið 2013 og er um bestu
afkomu í sögu samstæðunnar að ræða.
Umtalsverður söluhagnaður bætir af-
komuna og nemur hann 8,1 milljarði
króna. Samherji greiddi samtals 1,7
milljarða í tekjuskatt á Íslandi og einn
milljarð í veiðileyfagjald.
Tæpur helmingur af starfsemi Sam-
herja er erlendis en samstæðan starf-
ar í ellefu löndum og gerir upp í níu
mismunandi gjaldmiðlum. Í tilkynn-
ingu frá Samherja er haft eftir Þor-
steini Má Baldvinssyni, forstjóra Sam-
herja, að umhverfið á Íslandi í dag sé
farið að hafa neikvæð áhrif á starfsem-
ina.
Rekstrartekjur Samherja og dótt-
urfélaga voru tæpir 90 milljarðar
króna árið 2013 eins og árið áður.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði (EBITDA) nam 25,4 millj-
örðum króna og er 28% af heildarvelt-
unni. Er þetta hækkun frá fyrra ári
þegar EBITDA var 21,7 milljarðar,
eða 24% af veltu. Hagnaður fyrir
tekjuskatt nam 25,5 milljörðum og að
teknu tilliti til tekjuskatts var hagn-
aður ársins 21,9 milljarðar króna. Er
þetta fimmta árið í röð sem allar af-
komueiningar samstæðunnar skila
hagnaði.
Eiginfjárhlutfall 58,5%
Samkvæmt efnahagsreikningi námu
eignir samstæðunnar í lok ársins 2013
samtals 110,7 milljörðum króna og var
eiginfjárhlutfall samstæðunnar 58,5%
í árslok. Veltufjármunir námu 40,8
milljörðum króna og nettóskuldir sam-
stæðunnar voru jákvæðar sem nemur
6,1 milljarði króna.
Heildarskuldir og skuldbindingar á
sama tíma voru 45,9 milljarðar og bók-
fært eigið fé 64,8 milljarðar króna.
Skuldir við innlendar lánastofnanir
námu um 22 milljörðum króna í árslok
og hafa lækkað um tæpa 5 milljarða
króna það sem af er árinu 2014. Skuld-
ir við innlendar lánastofnanir hafa frá
árslokum 2012 lækkað um ríflega 20
milljarða.
Dótturfélög Samherja hf. seldu á
árinu fimm skip og aðrar eignir sem
tengjast útgerð við strendur Afríku.
Hagnaður af sölu þessara eigna nam
7,7 milljörðum fyrir tekjuskatt og
hefur hann veruleg áhrif á heildar-
afkomu félagsins. „Rekstur okkar ár-
ið 2013 gekk að mörgu leyti vonum
framar auk þess sem sala eigna hefur
mikil áhrif á afkomuna sem er í heild
mjög góð,“ segir Þorsteinn Már í til-
kynningu.
Eignir í Afríku seldar
Hann segir að hins vegar séu alltaf
blendnar tilfinningar þegar eignir
séu seldar en á árinu voru eignir sem
tengjast útgerð við Afríku og vöru-
merki seld og er þriðjungur hagnaðar
ársins söluhagnaður vegna þess.
„Við seldum góðar eignir sem búið
var að leggja mikla vinnu í að breyta
og bæta. Það er því alltaf ákveðin
eftirsjá þegar horft er til baka og ekki
síst að því góða fólki sem hafði tekið
þátt í þessu með okkur. Efnahagur
okkar og rekstur minnkaði umtals-
vert í kjölfarið og verkefni okkar er
að fylla í það skarð á næstu miss-
erum.“
Fjárfestingar samstæðunnar á síð-
asta ári námu samtals 5,1 milljarði
króna. Stærsta fjárfestingin á árinu
2013 var í línuskipinu Önnu EA sem
keypt var frá Noregi.
Hjá Samherja hf. og dóttur-
félögum starfa nú um 700 manns á Ís-
landi. „Landvinnsla bolfisks í fisk-
vinnslum félagsins við Eyjafjörð
hefur gengið vel. Í þeim fiskvinnslum
tókum við á síðasta ári á móti meira
hráefni en nokkru sinni fyrr. Það er
stórt verkefni að vinna verðmætar af-
urðir úr tæpum 30 þúsund tonnum af
bolfiski á ári. Okkur tókst að fylgja
þessari miklu framleiðslu eftir í
markaðsstarfinu en þar teljum við
vera mikil tækifæri í framtíðinni.
Veiðar flestra tegunda á Íslandi
gengu einnig vel. Aflaverðmæti Vil-
helms Þorsteinssonar EA á árinu var
4,3 milljarðar króna. Það er afbragðs-
góður árangur sem ekki næst nema
allir geri sitt besta, í veiðum, vinnslu,
sölu og dreifingu.“
Methagnaðar hjá Samherja
Tæpur helmingur af starfsemi Samherja er erlendis en samstæðan starfar nú í ellefu löndum
Hjá Samherja og dótturfélögum starfa um 700 manns á Íslandi Greiddi 2,7 milljarða í skatta
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Stjórnendur Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, og Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerð-
arsviðs, taka á móti Baldvini NC 100 sem gerður hefur verð út af DFFU, dótturfélagi Samherja í Þýskalandi.
„Við teljum að fyrirtækið hafi fjárhagslega burði,
mannafla og þekkingu til þess að ráðast í ný verkefni er-
lendis,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Sam-
herja, um ný verkefni til að auka umsvif fyrirtækisins í
stað útgerðar við Afríku sem seld var á síðasta ári. Hann
segir þó ekkert sérstakt verkefni ákveðið. Jafnframt sé
fyrirhuguð endurnýjun skipastóls félagsins á Íslandi.
Afkoman á síðasta ári var sú besta í sögu félagsins og
líklega besta afkoma útvegsfélags hér á landi. Þorsteinn
Már segir þó ekki hægt að búast við jafnmiklum hagnaði á
komandi árum. „Það er mikil óvissa á mikilvægum mörk-
uðum vegna ástandsins í Úkraínu og Rússlandi en það er
mjög mikilvægt að Rússlandsmarkaður verði áfram opinn
fyrir íslenskar sjávarafurðir,“ segir Þorsteinn Már.
Í tilkynningu um afkomu Samherja kemur fram að
rekstrarumhverfið á Íslandi sé farið að hafa neikvæð
áhrif og jafnvel hamla starfsemi. Þorsteinn Már segir
að gjaldeyrishöftin sem rætt var um á sínum tíma að
ættu að vera til skamms tíma hafi nú staðið í sex ár. Þá
hafi reglum verið breytt á tímabilinu og túlkun þeirra
og Seðlabankinn og aðrar stofnanir ekki sinnt leiðbein-
ingaskyldu sinni gagnvart fyrirtækjum. „Endurskoð-
endur og lögmenn eru farnir að veigra sér við að veita
ráðgjöf þar sem þeir fá ekki fullnægjandi svör,“ segir
Þorsteinn Már og bætir við: „Umhverfið getur ekki
haldist óbreytt endalaust. Ég vona að breytingar verði
gerðar þannig að við getum rekið alþjóðlegt sjávar-
útvegsfyrirtæki frá Íslandi.“ helgi@mbl.is
Ekki hægt að búast við jafngóðri afkomu áfram
SAMHERJI HEFUR BURÐI TIL AÐ RÁÐAST Í NÝ VERKEFNI ERLENDIS
INNANHÚSS SKÓRNIR
KOMNIR Í HÚS!
SPORTÍS
HLAUPAFATNAÐUR OG HLAUPASKÓR Í MIKLU ÚRVALI
MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS
Brekka 28 - 9,0 m²
Verð áður 359.000
Verð nú 269.250
www.kofaroghus.is • s. 553-1550
SÍÐUSTU
HÚSIN
Uppsett sýningarhús
í Mjóddinni
Fyrstur k
emur, fy
rstur fær
!
KOFAROGHÚS
Síðustudagar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
lagði hald á um 350 grömm af
marijúana, tæplega 100 e-töflur og
lítilræði af amfetamíni við húsleit í
þremur fjölbýlishúsum og einni
bifreið í Hafnarfirði í fyrradag. Í
einu húsanna voru börn á heimil-
inu og voru barnaverndaryfirvöld
upplýst um málið. Fjórir karlar á
þrítugs- og fertugsaldri voru
handteknir í þessum aðgerðum, en
málin tengjast ekki, að því er seg-
ir í tilkynningu.
Til viðbótar þessu hafði lögregl-
an afskipti af fimm körlum í Hafn-
arfirði í fyrrakvöld. Í fórum
mannanna, sem eru á þrítugs- og
fertugsaldri, var að finna neyslu-
skammta af MDMA, amfetamíni
og kannabis.
Fjórir handteknir eftir húsleitir lögreglu