Morgunblaðið - 06.09.2014, Síða 27
FRÉTTIR 27Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2014
Líklegt er að Vladimír Pútín Rúss-
landsforseti veltist um af hlátri yf-
ir niðurstöðu leiðtogafundar
NATO í Wales og áformum banda-
lagsins um að koma á fót 4.000
manna hraðliði í austanverðri Evr-
ópu, að mati Davids Rothkopf, rit-
stjóra og framkvæmdastjóra FP
Group sem gefur út tímaritið For-
eign Policy. Hann kveðst vona að
læknar Kremlverja séu hjá forset-
anum því hann gæti meitt sig í
hláturkastinu.
Rothkopf sér Pútín fyrir sér
horfa á sjónvarpsfréttir af fundi
NATO, liggja beran að ofan á feldi
ísbjarnar, sem hann fló sjálfur, og
horfa á leiðtogana varpa hörðum
lýsingarorðum sem hafa verið
helsta vopn þeirra í deilunni um
átökin í austurhéruðum Úkraínu.
Forystukreppan hættulegust
Rothkopf gefur lítið fyrir áform-
in um að koma á fót 4.000 manna
hraðliði sem hægt væri að senda
með tveggja sólarhringa fyrirvara
ef Rússar ráðast inn í aðildarríki
NATO. „Þetta eru aðeins tómlætis-
legir tilburðir til viðbragða, ekki
til marks um styrk, heldur vitnar
þetta um að öflugasta varnar-
bandalag heims veit ekki sitt rjúk-
andi ráð.“
Rothkopf telur að Vestur-
Evrópuríkjum stafi miklu meiri
hætta af vexti og viðgangi ísl-
amskra öfgasamtaka í Afríku og
Asíu en af Pútín. Bandalagið
standi þó frammi fyrir enn meiri
hættu að innan, þ.e. forystukreppu.
„Evrópusambandið skortir viljann,
hefðirnar og stofnanafyrirkomu-
lagið sem þarf til að gera sameigin-
lega utanríkisstefnu að veruleika.
Bandaríkin virðast sem stendur
vera ráðvillt og vita ekki hvaða
hlutverki þau eigi að gegna í heim-
inum,“ segir Rothkopf í grein á
fréttavef CNN. bogi@mbl.is
Pútín hlær sig lík-
lega máttlausan
NATO „veit ekki sitt rjúkandi ráð“
AFP
Pútín hlær Rússlandsforseti hefur
verið NATO óþægur ljár í þúfu.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Bandaríkjastjórn hvatti í gær
NATO-ríki til að taka höndum sam-
an í baráttunni gegn samtökum ísl-
amista, Ríki íslams, sem hafa náð
stórum svæðum í Írak og Sýrlandi á
sitt vald.
John Kerry, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, og Chuck Hagel
varnarmálaráðherra sögðu að ríki
heims mættu „engan tíma missa til
að uppræta ógnina“ sem stafaði af
íslamistunum. Kerry og Hagel
ræddu málið við utanríkis- og
varnarmálaráðherra átta annarra
NATO-ríkja og Ástralíu. NATO-rík-
in eru: Bretland, Danmörk, Frakk-
land, Ítalía, Kanada, Pólland, Tyrk-
land og Þýskaland.
Bandaríkjaher hefur gert loft-
árásir á íslamistana í Írak til að
gera hersveitum Íraksstjórnar og
Kúrda kleift að ná svæðum sem
samtökin lögðu undir sig.
Ljá máls á loftárásum
Anders Fogh Rasmussen, fram-
kvæmdastjóri NATO, sagði að
bandalagið væri tilbúið að aðstoða
Íraksher í baráttunni við íslamist-
ana ef stjórn landsins óskaði eftir
því. Aðstoðin myndi þá líklega felast
í þjálfun og samstarfi við skipulagn-
ingu aðgerða gegn íslamistunum.
Rasmussen sagði að NATO-ríkin
hefðu einnig samþykkt á leiðtoga-
fundinum í Wales að skiptast á
meiri upplýsingum um vestræna
ríkisborgara sem berjast með íslam-
istunum. Óttast er að þeir fremji
hryðjuverk í heimalöndum sínum ef
þeir snúa þangað aftur.
Stjórnvöld í Bretlandi og Frakk-
landi hafa léð máls á því að taka
þátt í loftárásum á íslamistana í
Írak en hafa ekki tekið ákvörðun
um það. Breska stjórnin sagði að
líklega myndi hún fyrst vopna her-
sveitir Kúrda sem berjast við
íslamistana.
AFP
Háleitir Leiðtogar ríkja Atlantshafsbandalagsins fylgjast með herflugvél
sem flaug yfir fundarstaðinn i Newport í Wales á síðari degi fundarins.
Myndi bandalag til að
uppræta Ríki íslams
Bandaríkjastjórn leitar eftir aðstoð níu annarra landa
Vilja ekki landhernað
» John Kerry sagði að Banda-
ríkin og önnur NATO-ríki
myndu ekki senda neina her-
menn til að berjast gegn sam-
tökum íslamista, Ríki íslams.
» Stefnt er að því að veita her-
sveitum Íraks og Kúrda ýmis-
konar aðstoð og vopna þær.
Verð 34.900.-
Verð nú 27.600.-
Verð 67.500.-
Verð nú 29.990.-
Ath. þetta eru verð sem sjást aldrei aftur á Íslandi
20-50% afsláttur til 12. september
Opið mánud. - föstud. 11-18 – lokað laugardaga ÁRMÚLA 38 – SÍMI 588 5011 – www.tivoliaudio.de
Verð 52.500.-
Verð nú 34.900.-
Verð 52.900.-
Verð nú 34.900.-
Verð 44.895.-
Verð nú 38.995.-
TIVOLI AUDIO
MODEL 10 STERIÓÚTVARP
Síðastavikan