Morgunblaðið - 06.09.2014, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 06.09.2014, Blaðsíða 33
UMRÆÐAN 33 Messur á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2014 Á vordögum 2013 skrifaði ég greinar í Morgunblaðið um ráðn- ingu rektors við Listaháskóla Íslands (LHÍ) og sýndi fram á að hún væri ólögleg skv. ákvæðum há- skólalaga. Ég taldi að starfsmenn mennta- málaráðuneytisins mundu skoða málið, enda alvarlegt og skól- inn rekinn á samningi við ráðuneytið og á allt sitt undir viðurkenningu þess á akademískum starfsháttum. Ráðu- neytismenn höfðu mikinn áhuga á málinu, en tóku það ekki til efnislegrar skoðunar fyrr en ég fór fram á það með formlegum hætti. Það gerði ég 8. september 2013. Í samskiptum mínum við aðstoðarmann ráðherra og ráðu- neytisstjóra næstu mánuðina kom fram að stjórn skólans tafði gagna- öflun ráðuneytisins af mikilli leikni og nýtti sér alla fresti til hins ýtrasta, en gögnin skiluðu sér þó í ráðu- neytið rúmum 25 vikum eftir að beðið var um þau. Samskipti mín við ráðuneytið frá þeim tíma hafa mest verið í gegn- um tölvupósta þar sem mér er ítrekað lofað að álitið sé rétt að koma. Mér telst svo til að ég hafi sent embætt- ismönnum, aðstoð- armönnum ráðherra og ráðherra sjálf- um 21 tölvupóst og 11 sinnum fengið svör eða staðfestingar á viðtöku tölvu- pósta. Frá 7. maí sl. hef ég ekki fengið nein viðbrögð við póstum eða hring- ingum í ráðuneytið, þó að lögð hafi verið inn skilaboð. Síðasta tölvupóst- inn sendi ég menntamálaráðherra, Ill- uga Gunnarssyni, 29. júní sl., en þar segi ég ráðherranum að pósturinn sé lokatilraun til að ná álitinu eða hald- bærum skýringum út úr ráðuneytinu áður en ég fari með málið inn á aðrar brautir. Hann hefur enn ekki svarað. Þessi dráttur á afgreiðslu ráðuneyt- isins varð til þess að ég skaut málinu til Umboðsmanns Alþingis 6. júlí sl. og fól honum að draga þetta álit fram í dagsljósið. Hann gaf ráðuneytinu frest til 29. júlí til að svara. Ráðuneytið brást strax við og bað um frest til 18. ágúst sem var veittur. Þann daginn gerðist hinsvegar ekkert og því sendi umboðsmaður ítrekun 21. ágúst og enn er ekkert komið. Það nálgast því að hafa liðið 365 dagar frá því þetta einfalda erindi var lagt fram og ég hreinlega nenni ekki að tína til allar þær greinar stjórnsýslulaga sem ráðuneytið hefur brotið með þessari málsmeðferð, en þær eru augljóslega nokkrar. Í erindinu frá 8. september 2013 er farið fram á að skoðuð verði embætt- isfærsla stjórnar LHÍ og hún vegin og metin út frá lagalegum og akadem- ískum viðmiðum. Þetta er í sjálfu sér ekki flókið, en getur auðvitað orðið það ef ekki hefur verið farið að lögum og reglum. Ráðherra skipar tvo full- trúa í stjórn skólans og sitjandi for- maður stjórnar er annar þeirra, en þessir aðilar hljóta að vera samtaka í því að vinna vel og faglega að mál- efnum skólans. Ráðherra ber að tryggja að fulltrúar hans og raunar stjórnin öll, starfi í samræmi við lög, reglur og samninga og fulltrúum hans ber að tryggja að vilji ráðherrans sé virtur og honum gerð grein fyrir störf- um stjórnar. Ef þessi „armslengd“ milli aðila er hinsvegar heilt úthaf og sambandið ekkert, þá eru báðir í vond- um málum, en ég er hræddur um að ástandið sé einmitt þannig. Til að sannreyna það er einfalt að spyrja hvenær þessir aðilar hafa hist og hversu oft frá því menntamálaráð- herra tók við embætti? Annar til að leita upplýsinga og hinn til að veita þær. Hafa þeir t.d. rætt þetta erindi mitt, sem þeir báðir hafa tafið af svo mikilli list? Ætti ekki formaður stjórn- ar LHÍ að vera minn helsti bandamað- ur í því að ná þessu áliti út úr ráðu- neytinu og ætti það ekki að vera ráðuneytinu metnaðarmál að sýna fram á hversu vel fulltrúi þess hefur staðið sig í að reka listaháskólann? Maður skyldi ætla það. En úr því ég ákvað að gera þetta mál opinbert, þá vil ég nota tækifærið og nefna eitt lítilræði í viðbót. Nú í ágústmánuði var tilkynnt að ráðinn hefði verið nýr lektor og fagstjóri í tónsmíðum við skólann, en mér er ómögulegt að finna nokkra auglýsingu um starfið, hvað þá niðurstöðu dóm- nefndarálits eða önnur gögn. Hvernig má það vera? Getur verið að ráðningin hafi ekki verið í samræmi við Há- skólalög, Skipulagsskráð LHÍ og Reglur um veitingu akademískra starfa við LHÍ? Mér sýnist svo vera. Hvað felst í svoleiðis skilaboðum til annarra starfsmanna skólans og hver eru skilaboðin til starfandi listamanna fyrir utan skólann og hvernig hljómar rökstuðningurinn fyrir svona vinnu- brögðum? Eru frávik frá lögum og reglum orðin að ófrávíkjanlegum for- dæmum? Spurningarnar hrannast upp og hafi ólögleg rektorsráðningin ekki verið nægileg ástæða til að stjórn skólans hugsi sinn gang, þá finnst mér endurtekið brot af sömu gráðu vera það. Og ef mönnum finnst mín afstaða til þessa máls ekkert fréttaefni, þá gæti afstaða menntamálaráðherra verið það. Hver er hún? Er hann sátt- ur við störf fulltrúa sinna í stjórn LHÍ? Mér þætti ekki verra að fá svör við einhverjum þessara spurninga, jafnt frá stjórn LHÍ og ráðherra, og minni í leiðinni á að á mánudaginn næsta verður liðið heilt ár frá því ég lagði fram beiðnina um álit ráðuneyt- isins á málinu. Hvað tefur ráð- herrann? Til upplýsingar vil ég nefna að for- maður stjórnar LHÍ er Kolbrún Hall- dórsdóttir, forseti Bandalags ís- lenskra listamanna. Einnig vil ég geta þess að ég hef unnið að málefnum LHÍ frá því áður en skólinn var stofn- aður. Ég sat í undirbúningsstjórn að stofnun hans og síðan í stjórn í um tíu ár og undanfarin fjögur ár hef ég setið í stjórn Félags um LHÍ. Auk þessa hef ég kennt lítillega við skólann frá upphafi. Hvað tefur ráðherrann? Eftir Kristin E. Hrafnsson Kristinn E. Hrafnsson »Mér þætti ekki verra að fá svör við ein- hverjum þessara spurn- inga, jafnt frá stjórn LHÍ og ráðherra. Höfundur er myndlistarmaður. AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur er sr. Svavar Alfreð Jónsson. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson. ÁRBÆJARKIRKJA | Upphafi sunnudagaskól- ans fagnað með fjölskylduguðsþjónustu í Ár- bæjarkirkju kl. 11. Hólý Mólý, nýtt sunnudaga- skólaefni, kynnt, brúðuleikhús og mikill söngur. Prestar sr. Þór Hauksson og sr. Kristín Pálsdóttir ásamt Ingunni Björk Jónsdóttir djákna. Undirleikur Kjartan Jósefsson Ogni- bene. Kaffi, djús og ávextir að lokinni guðs- þjónustu. ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Séra Sigurður Jónsson sóknarprestur þjónar fyrir alt- ari ásamt Richard Murray frá Skotlandi, sem prédikar. Linda Jóhannsdóttir, djáknakandídat, annast fyrstu samverustund sunnudagaskól- ans á þessu hausti. Kammerkór Áskirkju syng- ur, organisti Magnús Ragnarsson. Kaffisopi eftir messu. Guðsþjónusta á hjúkrunarheim- ilinu Skjóli kl. 13 í umsjá séra Sigurðar Jóns- sonar. Organisti Magnús Ragnarsson. Vinir og vandamenn heimilisfólks velkomnir. ÁSTJARNARKIRKJA | Sunnudagaskólinn hefst í dag kl. 11 undir stjórn Hólmfríðar S. Jónsdóttur og Bryndísar Svavarsdóttur. Hress- ing og gott samfélag á eftir. Gosp- elguðsþjónusta kl. 20. Kór kirkjunnar og hús- bandið leiða tónlistina undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar. Prestur er sr. Kjartan Jóns- son. BESSASTAÐAKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11. Sr. Hans Guðberg, Karen Ösp, Bjartur Logi og Margrét djákni hafa umsjón með guðsþjónustunni. Hljómsveitin Lærisvein- ar hans spilar undir. BREIÐHOLTSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Messa kl. 11. Prestar sr. Bryndís Malla Elí- dóttir og sr. Gísli Jónasson. Kór Breiðholts- kirkju syngur, organisti er Örn Magnússon. Vænst er þátttöku fermingarbarna og foreldra þeirra. Eftir messu er fundur með foreldrum fermingarbarna í safnaðarheimili. DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson. Organisti Sólveig S. Einarsdóttir og félagar úr kór kirkjunnar syngja. Sunnudagaskóli á meðan á helgihaldi stendur. Súpa í safnaðarheimili að messu lok- inni. Dómkirkja Krists konungs, Landakoti | Messa kl. 10.30, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18, og má., mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er sunnu- dagsmessa. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11, séra Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkór- inn, kórstjóri og organisti er Kári Þormar. Sunnudagaskólinn á kirkjuloftinu byrjar aftur að loknu sumarleyfi í umsjón æskulýðsleiðtog- anna Ólafs Jóns og Sigga Jóns. FELLA- og Hólakirkja | Barnastarfið hefst aftur eftir sumarfrí með fjölskylduguðsþjón- ustu kl. 11. Það verður mikil hátíð, söngur, Viktor kemur í heimsókn og öll börn fá kirkju- bók og límmiða fyrir mætingu. Pétur og Hreinn mæta aftur hressir og tilbúnir til starfa. Litrófið syngur Biblíusögu. Sunnudagaskólaefnið verð- ur kynnt. Prestur Guðmundur Karl Ágústsson. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli kl. 11. Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Kór og hljóm- sveit kirkjunnar leiðir söng undir stjórn Arnar Arnarsonar. Organisti er Skarphéðinn Þór Hjart- arson og bassaleikari Guðmundur Pálsson. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl. 14. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson þjónar fyrir altari. Sönghópur Fríkirkjunnar í Reykjavík leiðir tónlistina undir stjórn Gunnars Gunnarssonar organista. GLERÁRKIRKJA | Kvöldmessa kl. 20.30. Prestur: Sr. Guðrún Eggertsdóttir. Kór Gler- árkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Välja- ots. GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Fermingarbörn úr Foldaskóla og Rimaskóla eru sérstaklega boðin til guðsþjónustu ásamt foreldrum sínum. Séra Vigfús Þór Árnason pré- dikar og þjónar ásamt sr. Guðrúnu Karls Helgu- dóttur og messuþjónum. Organisti: Hákon Leifsson. Kór kirkjunnar leiðir söng. Fundur um fermingarstarfið eftir messu. GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10, bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11 í um- sjón Lellu o.fl. Messa kl. 11. Altarisganga. Samskot til ABC-barnahjálpar. Messuhópur þjónar. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organ- isti Bjarni Þór Jónatansson. Prestur sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi eftir messu. Hvers- dagsmessa með Þorvaldi Halldórssyni á fimmtudag kl. 18.10. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Messa til heiðurs sálmaskáldinu og heim- iliskonunni Lilju Sólveigu Kristjánsdóttur, klukkan 14 í hátíðasal Grundar. Séra Sigurður Árni Þórðarson predikar. Séra Auður Inga Ein- arsdóttir heimilisprestur þjónar. Grundarkórinn leiðir söng undir stjórn Kristínar Waage org- anista. Einungis verða sungnir sálmar eftir Lilju Sólveigu. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Karl V. Matthíasson, tónlistarflutningur í umsjá Ás- bjargar Jónsdóttur og Valbjörns S. Lilliendahl. Barnastarf í umsjá Aldísar R. Gísladóttur. Með- hjálpari Jórunn Hólm, kirkjuvörður Lovísa Guð- mundsdóttir. Kaffisopi eftir messu. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Guðmundur Sigurðs- son. Félagar úr Barbörukórnum syngja. Mess- unni er útvarpað. Sunnudagaskólinn í safnaðarheimilinu kl. 11. Anna Elísa Gunn- arsdóttir leiðir stundina. Kaffisopi og djús eftir stundirnar. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Upphaf vetrarstarfsins. Sr. Birgir Ás- geirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni. Hópur messu- þjóna aðstoðar. Félagar úr Mótettukór Hall- grímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskels- son. Umsjón barnastarfs Inga Harðardóttir. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Barnastarf í umsjá Grímu Ólafsdóttur og Birkis Bjarnason- ar. Melodia – Kammerkór Áskirkju syngur. Organisti Magnús Ragnarsson. Prestur sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðsþjónusta kl. 11, prestur sr. Sigfús Kristjánsson, félagar úr kór kirkjunnar leiða safnaðarsöng. Organisti Judith Þorbergsson. Sunnudagaskóli kl. 13. Fyrsti sunnudagaskóli vetrarins. Allt barnastarf kirkjunnar fer af stað í vikunni. Sjá nánar á hjallakirkja.is HVERAGERÐISKIRKJA | Messa kl. 11 í Hveragerðiskirkju – Altarissakramentið. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Fjöl- skyldusamkoma kl. 11. Vitnisburður um bæn og bænasvar. Þema mánaðarins: Að tala við Guð. Kaffi og samfélag eftir samkomu. Sam- koma á ensku hjá Alþjóðakirkjunni kl. 14. Kvöldsamkoma kl. 18. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl. 13.30. Ólafur H. Knútsson predikar. Lofgjörð og fyrirbænir. Barnastarf á sama tíma. Kaffi og samfélag eftir samkomuna. KEFLAVÍKURKIRKJA | Látlaus messa mitt í erli Ljósanætur. Sr. Sigfús B. Ingvason þjónar fyrir altari og leiðir messugesti í söng. KÓPAVOGSKIRKJA | Barna- og fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11 – upphaf sunnudagaskól- ans. Sr. Sigurður Arnarson sóknarprestur leiðir ásamt umsjónarmönnum sunnudagaskólans, þeim Bjarma Hreinssyni, Ágústu Tryggvadóttur og Oddi Ólafssyni. Guðsþjónustan verður allan tímann í kirkjunni. LANGHOLTSKIRKJA | Fyrsta fjöl- skyldumessa vetrarins kl. 11. Hressileg stund við hæfi barna á öllum aldri og ekki síður full- orðinna. Jóhanna Gísladóttir æskulýðsfulltrúi og Snævar Jón Andrjesson guðfræðinemi leiða messuna með aðstoð Esju og Dóru Sólrúnu ásamt messuþjónum. Organisti er Jón Stef- ánsson. Kaffi og djús í safnaðarheimilinu eftir messu. LAUGARNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Upphaf barnastarfsins og ferming- arfræðslunnar. Kaffisopi á eftir. Arngerður María Árnadóttir og sönghópur Hallveigar Rún- arsdóttur leiða söng og tónlist. Kristín Þórunn Tómasdóttir. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli í Lindakirkju og Boðaþingi kl. 11. Messa í Lindakirkju kl. 20. Kór Lindakirkju syngur undir stjórn Óskars Einarssonar. Dr. David Lose pré- dikar. Báðir prestar kirkjunnar þjóna. Dr. Lose er frá Bandaríkjunum og er afkastamikill fræði- maður sem nýtur virðingar og er eftirsóttur fyr- irlesari víða um heim. Meginviðfangsefni hans er hvernig best sé að miðla kristnum boðskap og kenningu á skapandi hátt. Missið ekki af þessum frábæra predikara. Maríukirkja við Raufarsel | Messutímar: Alla virka daga kl. 18.30. Laugardaga (sunnu- dagsmessa) kl. 18.30 á ensku. Sunnudaga kl. 11. Barnamessa (september-maí) kl. 12.15. NESKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Leiðtogar úr barnastarfinu leiða tónlist undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Sig- urvin Lárus Jónsson æskulýðsprestur annast stundina. Samfélag og kaffi á Torginu eftir messu. SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 14 í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð. „Nýtt fyrir stafni.“ Ræðumaður Guð- laugur Gunnarsson. Túlkað á ensku. Barna- pössun. Ath. breyttan samkomutíma. SELJAKIRKJA | Fyrsta barnaguðsþjónusta vetrarins kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ólaf- ur Jóhann Borgþórsson settur inn í embætti af prófasti Reykjavíkurprófastsdæmis eystra, sr. Gísla Jónassyni. Kór Seljakirkju syngur og org- anisti er Tómas Guðni Eggertsson. Ferming- arbörn 2015 eru sérstaklega boðin til guðs- þjónustunnar. SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Sunnudagaskólinn hefst aftur að loknu sumarleyfi. Sr. Bjarni Þór Bjarnason sóknarprestur þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Björn Leifsson leikur á klarinett. Félagar úr Kammerkór Seltjarnar- neskirkju leiða almennan safnaðarsöng. Kaffi- veitingar. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Sóknarprestur. SÓLHEIMAKIRKJA | Uppskerumessa kl. 14. Sr. Birgir Thomsen þjónar fyrir altari og predik- ar. Ester Ólafsdóttir organisti leiðir almennan safnaðarsöng. Einsöng syngur Ragnheiður Árnadóttir. Meðhjálpari er Erla Thomsen. Við- staddir fá lífrænt grænmeti í lok athafnar. VÍDALÍNSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Nýtt barnaefni sunnudagaskólans af- hent. Mikil tónlist, brúðuleikhús, biblíufræðsla og gleði. Petra, Bolli, Erla og Jóna Hrönn bíða spennt eftir að hitta sunnudagaskólabörnin eftir sumarfrí. Kl. 17 Batamessa. Þar verða 12 sporin – andlegt ferðalag kynnt og fjallað um skömmina í predikun. Margrét Eggertsdóttir og hjónin Bjarni Karlsson og Jóna Hrönn Bolla- dóttir þjóna við athöfnina ásamt tónlistarkon- unum Önnu Siggu Helgadóttur og Aðalheiði Þorsteinsdóttur. Messukaffi. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Upphaf vetrarstarfs. Sunnudagaskóli og guðsþjónusta kl. 11. Sr. Halldór Reynisson þjónar. Kór Víði- staðakirkju syngur undir stjórn Helgu Þ. Guð- mundsdóttur organista. Hinn daufi og málhalti. Mark. 7 SKARTAÐU ÞÍNU FEGURSTA Bankastræti 4 I sími: 551 2770 I www.aurum.is Skartgripalínan Svanur fæst í verslun Aurum, Bankastræti 4.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.