Morgunblaðið - 06.09.2014, Side 44

Morgunblaðið - 06.09.2014, Side 44
44 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2014 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þér líður eins og dropa í sjó viðhorfa. Gættu þess bara að halda utan um þína nán- ustu eins og þeir gera um þig. 20. apríl - 20. maí  Naut Óvænt tækifæri berst þér upp í hend- urnar og þér er fyrir bestu að nýta þér það til hins ýtrasta. Vertu umfram allt heið- arlegur í garð ykkar beggja. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú mátt ekki leggja svo hart að þér við vinnu að þú finnir þér aldrei stund eða stað til þess að sinna eigin hugðarefnum. En þú hefur ekki tíma, því þú ert að upplifa það. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Einhver gömul vandamál kunna að skjóta upp kollinum og þá er um að gera að bregðast við þeim af öryggi og festu. Stutt ferðalag gæti orðið þér til ánægju. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú munt njóta þess að kaupa eitthvað handa sjálfri/sjálfum þér og þínum nánustu í dag. Blandaðu þér ekki í vandamál annarra. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú vilt skipuleggja alla hluti sem er í góðu lagi ef þú reynir um leið að vera sveigj- anlegur þegar það á við. Bættu nú úr því annars áttu á hættu að góð sambönd lognist út af. 23. sept. - 22. okt.  Vog Í dag tekur ástin völdin hjá þér, þegar þú tekur klikkaðar ákvarðanir í hennar nafni. Reyndu að koma frá þér eins nákvæmum og réttum skilaboðum og þú getur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er aldrei of varlega farið þegar skrifað er undir skuldbindingar. Fólk sem skilur þig er af snjallari meiði en aðrir og því áttu ekki að láta það sleppa. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Skapvonska þín er heillandi en bara í augum þeirra sem þekkja þig. Kannski uppgötvar þú nýja tekjulind eða kaupir eitt- hvað sem þig hefur langað í lengi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú hefur færst of mikið í fang. Nú er rétti tíminn til að kaupa eitthvað fallegt handa þeim sem þér þykir vænst um og búa til stund kringum það. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Fólk sem hagar sér heimskulega veldur vandræðum en reyndu sjá að fyndnu hliðina á því. Mundu að engir tveir ein- staklingar eyða peningum á sama hátt. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þér gæti fundist þú vera að æfa und- ir eitthvað en lífið er engin generalprufa. Reyndu ekki að ýta því til hliðar heldur brettu upp ermarnar og gakktu beint til verks. Síðasta vísnagáta var eftir karl-inn á Laugaveginum: Landnáms- bjó til -lag úr ösku. Laus í kjölfar þess er eldur. Vel það geymist glers í flösku. Græna sápan oft því veldur. Helgi R. Einarsson svarar svo: Við eina fjöl er ei felldur fjandinn með smeðjulegt bros, nú vindgangi’í jörðu hann veldur og virðist mér lausnin því gos. Harpa á Hjarðarfelli á þessa lausn og lét vísnagátu fylgja, sem bíður næsta laugardags: Hér orku losa öskugos við eldsins gos nú landið mótast. Menn súpa gos með sælubros af sápu gosin hvera hljótast. Guðmundur Arnfinnsson segir um Laugavegskarlinn að hann láti ekki að sér hæða og kasti fram vísnagátu, sem kalli á viðbrögð: Landnámsgosið ösku olli, eldur fylgdi í kjölfar þá, gos ég sýp með sæluhrolli, sápan gosi valda má. Árni Blöndal ræður gátuna þann- ig: Heklugosin hræddust menn höldar töldu kvöl og pín. Sótadrykkir seðja enn. Sápa er „Hveravítamín“. Og lét síðan aðra ráðningu fylgja: Landnáms- Hekla -lagi jós logaði eldur heitur, rauður. Finn ég gos í flösku og dós fín er sápa, ef hver er dauður. Þessari lausn fylgdi „lítil sögu- skýring“: Á Þingvöllum þúsund og tíu þrumaði Hekla upp spýju. En Skarphéðinn reiddist og sættin þá eyddist svo Njáll varð að reyna að nýju. Þessa vísnagátu lét Guðmundur Arnfinnsson fylgja: Fjarska lítill fiskur er, fagran skartgrip meyjan ber, hefur auga, en ekkert sér, iðgræn sést þá vora fer. Það má segja, að söguskýring Árna Blöndals kalli á þessa limru Ármanns Þorgrímssonar: Hugsar hver sjálfur um sig og svolítið, kannski, um þig þó eldað sé grátt næst alla tíð sátt við allsherjar drottin og mig. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Lítil söguskýring og gos af ýmsu tagi Í klípu „SEX HUGMYNDIR Á ÞÚSUNDKALL OG TÓLF Á FIMMTÁN HUNDRUÐ.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG ÁTTI ENGA MJÓLK Í KAFFIÐ ÞITT, SVO ÉG SETTI BARA HVÍTVÍN Í ÞAÐ.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vona að hann komi heim um jólin. JÓLAGJAFA- HUGMYNDIR ÚTSALA ÉG ER MIKIL- FENGLEG EIK! ÞÚ ERT GREIN! ÉG ER MIKIL- FENGLEG GREIN! ÞETTA ER NOTALEGASTA HÚS SEM ÞÚ ÁTT HÉRNA, AAKASAK! TAKK, ÞAÐ ER SAMT EITT SEM MÉR HEFUR ALLTAF FUNDIST VANTA HÉR. NÚ JÁ? HVAÐ ER ÞAÐ? INNFELLD HALÓGEN- LÝSING. Nú er Víkverji dottinn í tísku.Hvern hefði grunað það? Ekki er þessi skyndilega upphafning í tískuheiminum vegna einstakra hæfileika til að velja sér föt og klæð- ast þeim á smekklegan hátt. Neibb. Heldur er ástæðan genalegs eðlis. Þetta varðar útlit Víkverja sem hann fékk í arf frá foreldrum sínum. Faðir Víkverja er rauðhærður (að vísu orðinn gráhærður í dag) og freknóttur. Ekki svo að skilja að gen móður hans séu ekki stórgóð og gott betur en það en móðir hans hefur lít- ið til þessara tilteknu mála að leggja. x x x Það sem Víkverji fékk frá föðursínum – freknurnar – fleytir honum langt í tískuheiminum. Freknur eru víst orðnar að hátísku- fyrirbæri. Þetta segir netið að minnsta kosti. Ófá förðunarfyrirtæki hafa kynnt til sögunnar svokallaðan freknu- penna. Jább, freknupenni segir Vík- verji og skrifar, talar á innsoginu og slær sér á lær. En penna þennan á víst að nota í andlit og teikna með honum þessar líka fínu freknur. x x x Þetta merkir einnig að þær konursem eru freknóttar frá náttúr- unnar hendi mega nú stoltar bera freknurnar, fullvissar um að útlit þeirra fellur undir hátískustaðla nú í haust.“ Þetta kemur fram á vefsíð- unni: hun.is – orðrétt fengið að láni eins og reglur kveða á um. x x x Jahá – nú ber Víkverji freknurnar„stoltur“ því netið greinir honum samviskusamlega frá því að hann geti það. Bara að hann hefði fengið þessa vitneskju örlítið fyrr, þá hefði angistin ekki nagað hann jafnmikið síðustu árin. x x x Ansans. Það var eitt sem ekki vargreint frá í þessari stórgóðu grein. Það var hvort það væri líka í tísku að hafa freknur á eyrum og handleggjum. Árans. Þetta var of gott til að geta verið satt. Þetta á víst bara við um andlitið. Meik á eyrun og langerma- bolur er það sem koma skal á vinnu- staðnum. víkverji@mbl.is Víkverji Varpið allri áhyggju ykkar á hann því að hann ber umhyggju fyrir ykkur. (Fyrra Pétursbréf 5:7)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.