Morgunblaðið - 15.09.2014, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2014
FRÉTTASKÝRING
Björn Bjarnason
bjorn@bjorn.is
Leiðtogar stóru bresku stjórn-
málaflokkanna, David Cameron,
Íhaldsflokknum, Ed Miliband,
Verkamannaflokknum og Nick
Clegg, Frjálslynda lýðræð-
isflokknum, slepptu spurningatíma
forsætisráðherrans í neðri deild
breska þingsins miðvikudaginn 10.
september og héldu norður fyrir
England til Skotlands í von um að
þeir gætu komið í veg fyrir að Skotar
kysu að verða sjálfstæðir í atkvæða-
greiðslu fimmtudaginn 18. sept-
ember.
Aðdragandi atkvæðagreiðslunnar
hefur verið langur. Hún blasti þó við
sem pólitísk staðreynd í Skotlandi í
maí 2011 þegar Skoski þjóðern-
isflokkurinn hlaut hreinan meirihluta
(69 af 129 þingmönnum) á skoska
þinginu í Edinborg.
Flokkurinn rekur sögu sína 80 ár
til baka eða til ársins 1934 en sérstakt
þing fyrir Skotland árið 1999 skapaði
vexti hans hæfilega umgjörð. Flokk-
urinn myndaði minnihlutastjórn und-
ir forsæti Alex Salmonds, formanns
síns, árið 2007 og síðan hlaut hann
hreinan meirihluta árið 2011.
Að þjóðernissinnar fengu meiri-
hluta í skoska þinginu kom mörgum í
opna skjöldu. Þegar forystumenn
Verkamannaflokksins samþykktu
stofnun þingsins á sínum tíma töldu
þeir sig hanna kosningalöggjöfina á
þann veg að enginn einn flokkur gæti
fengið hreinan meirihluta. Kosn-
ingakerfið er sambland af einmenn-
ingskjördæmum og hlutfallskosn-
ingum. Kerfið dugði ekki til að halda
þjóðernissinnum frá að ná meirihluta.
Þótt aðdragandi þjóðaratkvæða-
greiðslunnar hafi verið langur og í
nóvember 2013 hafi legið fyrir 630
blaðsíðna löng hvítbók, Scotland́s
Future, þar sem skoska ríkisstjórnin
lýsti því hvað fælist í sjálfstæði Skot-
lands hljóp ekki hiti í baráttuna fyrr
en eftir sunnudaginn 7. september
þegar birt var niðurstaða í skoð-
anakönnun sem sýndi í fyrsta sinn
meirihluta sjálfstæðissinna (51%
gegn 49%).
Skotar kjósa 59 þingmenn til setu á
þinginu í London, Westminster, 40
þeirra eru úr Verkamannaflokknum
en aðeins einn úr Íhaldsflokknum.
Miðað við skipan í Westminster á
þessu kjörtímabili þar sem íhalds-
menn mynduðu samsteypustjórn
með frjálslyndum vegna þess að þá
skorti 21 þingmann til að hafa meiri-
hluta hefðu íhaldsmenn 20 sæta
meirihluta væru þar engir þingmenn
frá Skotlandi.
Miklir hagsmunir í húfi
Flokkshagsmunir knýja leiðtoga
Verkamannaflokksins til dáða sam-
hliða viljanum til að halda Sameinaða
konungdæminu (United Kingdom,
UK) við lýði sem einni heild. Alistair
Darling, fyrrverandi fjármálaráð-
herra Verkamannaflokksins, er í for-
ystu samtaka sambandssinna, Better
Together. Gordon Brown, fyrrver-
andi forsætisráðherra Verkamanna-
flokksins, þingmaður fyrir sveita-
kjördæmið Kirkcaldy and
Cowdenbeath í Skotlandi, greip op-
inberlega til vopna gegn sjálfstæð-
issinnum mánudaginn 8. september.
Fyrir David Cameron forsætisráð-
herra er ekki eins mikið flokks-
pólitískt í húfi og leiðtoga Verka-
mannaflokksins. Hann hefur hins
vegar heiður hins sameinaða ríkis að
verja. Splundrist það á hans vakt sem
forsætisráðherra verður það eilífur
blettur á stjórnmálaferli hans. Came-
ron segist ætla að sitja áfram þótt
meirihluti Skota segi já. Aðrir líkja
atburðum í Skotlandi við það sem
gerðist árið 1782 þegar nýlendur
Breta í Bandaríkjunum slitu sam-
bandi við herraþjóðina og North lá-
varður, þáv. forsætisráðherra, sagði
af sér.
Alex Salmond sagði það sanna
styrk sjálfstæðissinna og ótta valda-
manna í London að þeir skyldu fjöl-
menna norður yfir landamærin til
þátttöku í kosningabaráttunni. Þeir
riðu ekki feitu hrossi aftur til London.
Skotar létu þessa menn ekki segja
sér fyrir verkum.
Andúð á Westminster
Hinn virti blaðamaður Charles
Moore sagði í helgardálki í sínum í
The Sunday Telegraph hinn 7. sept-
ember að Salmond hefði náð beint til
áheyrenda í öðru sjónvarpseinvígi
sínu og Alistairs Darlings þegar hann
minntist á Westminster og hóf að
gagnrýna þingið og ríkisstjórnina í
London. Eftir þann sigur, 79% gegn
21%, sóttu sjálfstæðissinnar mjög í
sig veðrið.
Þriðjudaginn 9. september birti
Ríkisútvarpið fréttaviðtal við Alex
Salmond og sagði hann þá:
„Hroki stjórnarinnar í Lundúnum
er alræmdur. Þetta eru sömu menn-
irnir og lýstu Íslendinga hryðju-
verkamenn, Gordon Brown og Alist-
air Darling og þeirra líkar gerðu það
til að réttlæta gerðir sínar. Það er
sama hvaða mistök voru gerð á Ís-
landi, í Lundúnum, Edinborg og New
York þá voru þetta ekki hryðjuverk.“
Forsætisráðherra Skota gat ekki
valið betri leið en þessa til að sann-
færa Íslendinga um að ekki væri unnt
að eiga hag sinn undir stjórn-
málamönnum af þeirri gerð sem ráða
í Westminster.
Hörð pólitísk átök um sjálfstæði
Skotar kjósa um það á fimmtudaginn hvort þeir vilji verða sjálfstæðir Hiti hljóp í kosningabar-
áttuna þegar birt var niðurstaða í skoðanakönnun sem sýndi í fyrsta sinn meirihluta sjálfstæðissinna
AFP
Barátta Alex Salmond, formaður Skoska þjóðerisflokksins, hefur lagt dag við nótt í baráttunni fyrir sjálfstæði.
Skotland kýs um sjálfstæði
SÉRSTAKAR ÞARFIR. EINFALDAR LAUSNIR.
FÆST Á REDKEN HÁRGREIÐSLUSTOFUM
GET INSPIRED. SEE YOUR STYLIST.
Dreifing:
HÁR EHF
s. 568 8305 | har@har.is
REDKEN Iceland á vertu vinur
SÖLUSTAÐIR
REDKEN
FAGFÓLK
SALON REYKJAVÍK
SENTER
SCALA
SALON VEH
PAPILLA
KÚLTÚRA
LABELLA
MEDULLA
N-HÁRSTOFA
HÖFUÐLAUSNIR
HJÁ DÚDDA
MENSÝ
REDKEN hárvörurnar gera hárið heilbrigt, fallegt og fyllir það lífi
Blonde Idol
FYRIR LJÓST HÁR
All Soft
FYRIR ÞURRT HÁR
Curvaceous
FYRIR KRULLAÐ HÁR
Smooth Lock
FYRIR ÚFIÐ HÁR
Color Extend Magnetics
FYRIR LITAÐ HÁR
Real Control
FYRIR ÓRÓLEGT
HÁR
Body Full
FYRIR FÍNGERT
HÁR
Diamond Oil
FYRIR LÍFLAUST/
SKEMMT HÁR
Cerafill
FYRIR HÁRLOS
OG ÞUNNT HÁR
Extreme
FYRIR SKEMMT
HÁR
Color Extend Sun
FYRIR HÁR Í SÓL
OG SJÓ
Clear Moisture
FYRIR ÓLITAÐ HÁR
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hét því í gær að
berjast gegn gyðingahatri í landinu. Kom þetta fram í
ávarpi sem kanslarinn flutti á fjöldafundi sem haldinn
var gegn hatursumræðu og árásum í garð gyðinga, en
slíkt var áberandi í Þýskalandi í kjölfar átakanna á Gaza.
Um 5.000 manns mættu á fundinn sem haldinn var
undir yfirskriftinni: „Á móti gyðingahatri – aldrei aftur!“
„Baráttan gegn gyðingahatri er borgaraleg skylda
okkar,“ sagði Merkel í ávarpi sínu. „Ég mun ekki við-
urkenna gyðingahatur og enginn hér heldur.“
Á sama tíma og árásir Ísraelshers á Gaza voru í há-
marki, í júlímánuði síðastliðnum, fordæmdi gyðingasam-
félagið í Þýskalandi „sprengingu illsku og ofbeldis gegn
gyðingum“ á fjöldafundum sem haldnir voru til stuðnings
Palestínu.
Ekkert rými fyrir mismunun
Í dag búa um 200.000 gyðingar í Þýskalandi en í ræðu
sinni sagði Merkel þá staðreynd að gyðingar byggju enn í
Þýskalandi eftir síðari heimsstyrjöld kraftaverki líkasta.
„Samfélag gyðinga á heima hér og er hluti af einkenni
okkar sem þjóð. Það má ekki vera neitt rými hér fyrir
mismunun,“ sagði Merkel sem m.a. hefur verið heiðruð af
Ísraelsmönnum fyrir baráttu sína gegn gyðingahatri.
Kanslarinn mun berjast
gegn gyðingahatri
AFP
Á fundinum Angela Merkel, kanslari Þýskalands, berst nú gegn fordómum.
„Við þurfum að takast á við þessa
ógn. Við þurfum, skref fyrir skref,
að reka aftur, sundra og að end-
ingu tortíma Rí og því sem sam-
tökin standa fyrir,“ sagði David
Cameron, forsætisráðherra Breta, í
gær, en á laugardag var birt mynd-
band af því þegar liðsmenn Ríkis
íslams tóku hjálparstarfsmanninn
David Haines af lífi.
Í myndbandinu beinir morðingi
Haines orðum sínum að stjórnvöld-
um í Bretlandi og segir að bandalag
þeirra með Bandaríkjunum muni
hraða tortímingu þeirra. „Cameron
mun aðeins draga ykkur og þjóð
ykkar inn í annað blóðugt og óvinn-
andi stríð,“ segir hann.
Cameron ítrekaði í gær að íslam
væru friðsamleg trúarbrögð en
sagði um liðsmenn Ríkis íslams:
„Þeir eru ekki múslimar, þeir eru
skrímsli.“ Þá sagði hann að Bretar
myndu ekki víkja sér undan ábyrgð
og m.a. taka þátt í aðgerðum undir
forystu Bandaríkjamanna.
Rí-liðar
„skrímsli“