Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.09.2014, Page 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.09.2014, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.9. 2014 Gunnar Bragi utanríkisráðherra segir aðsig bráðlangi til að setja meira al-mannafé í NATÓ. Þannig megi styrkja varnir Íslands. Þar er ég á öndverðum meiði en leyfi mér að spyrja af þessu tilefnihvort við gæt- um sameinast um annars konar varnaraðgerð fyr- ir Ísland; varnir fyrir öræfin og hálendið. Tillagan er sú að við kaupum Grímsstaði á Fjöllum, eign- umst þessa 300 ferkílómetra jörð sem er eins kon- ar útvörður hásléttunnar sem hefur að geyma ein- hver fegurstu náttúrudjásn Íslands. Kannski hefði mátt setja það undir einhvers konar varnarmálaskilgreiningu þegar því var forðað að kínverskur auðmaður keypti þessa miklu jörð. Það var ekki nóg með að hann hefði áform um að raska öræfarónni með húsakosti miklum og mannmergð. Þarna átti líka að verða flugvöllur! Af þessu varð ekki – í bili. Eftir sátu með sárt ennið eigendur Grímsstaðajarðarinnar. Hafi þeim gramist skil ég það en tek þó jafnframt eftir æðru- leysi þeirra almennt þegar peningarnir eru ann- ars vegar. En hvers vegna ekki að setja einhverja peninga í þeirra vasa og tryggja þar með eignarhald þjóðarinnar á þessari miklu jörð? Grímsstaðir mynda einskonar kraga utan um hálendið ásamt fleiri miklum jörðum á þessum slóðum sem þegar eru í almannaeign. Þar nefni ég Möðrudal. Skrítið hve lítið hefur verið gert með áskorun á annað hundrað Íslendinga í þessa veru fyrir rétt- um tveimur árum. Um var að ræða fyrrverandi forseta Íslands, lækni og ljósmóður, leigubíl- stjóra, verktaka, Megas og formann Sambands ungra bænda. Þessir einstaklingar sameinuðust í áskorun til Alþingis og ríkisstjórnar um að ríkið festi kaup á Grímsstöðum á Fjöllum og tryggði jörðina í þjóðareign. Á undirskriftalistanum voru vel á annað hundrað manns, ungir og aldnir, kon- ur og karlar og alla vega á litinn í pólitík. Gamall ágreiningur horfinn því þarna voru þeir af póli- tískum ritstjórnum fyrri tíðar, Morgunblaðinu, Þjóðviljanum og Alþýðublaðinu: Styrmir, Helgi Már og Kjartan Ólafsson – og Matthías. Líka Óm- ar, Páll Skúlason, Ágúst Valfells, Björk, Guðrún Kristjánsdóttir myndlistarkona, Guðmundur sundkappi Gíslason og Ólafur Stefánsson, hand- boltastjarna. Þarna voru fyrrverandi forsetar Al- þingis, Halldór Blöndal, Guðrún Helgadóttir og Ólafur G. Einarsson, fyrrverandi þingmenn úr öll- um flokkum, Hjörleifur, Guðni, Eiður og Svavar, Anna Ólafsdóttir Björnsson, Guðmundur H. Garðarsson, Páll Pétursson, Ingvar Gíslason, Guðrún Agnarsdóttir, Ragnar Arnalds og margir, margir fleiri. Þegar ég mælti fyrir þingsályktunartillögu á síðasta þingi, sem byggðist á áskorun þessa fólks, setti marga hljóða. Það hlaut að verða hlustað á þennan þverskurð þjóðarinnar. Enn hefur það ekki verið gert. Nú verður þingmálið flutt að nýju. Skyldi nú verða hlustað? Verður nú hlustað? * Grímsstaðir mynda einskonar kraga utan umhálendið ásamt fleiri miklum jörðum á þessum slóðum sem þegar eru í almannaeign. ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM Ögmundur Jónasson ogmundur@althingi.is Fátt kemst að í fréttum þessa dag- ana annað en eldgosið í Holu- hrauni, enda skiljanlegt. Gosið er hreint stórkostlegt sjónarspil, móðir náttúra gríðarlega öflug. Það sem margir hafa klórað sér í kollinum yfir er að nefna nýja hraunið sem rennur um Holuhraun. Bragi Valdimar Skúlason stendur fyrir sínu að vanda: „Ég get ómögulega gert upp við mig hvort hraunið ætti að heita Bungubunga eða Lekandi“. Hann heldur áfram: „Einmitt. Vísindamenn kallaðir úr Holu- hrauni til að bíða öruggir í Dreka- gili. Af hverju í djúpfrystum dauð- anum er þessum örnefnum ekki víxlað?! Maður þyrfti ekki að skammast sín fyrir vel útilátið Drekagilsgos.“ Nafni hans Bragi Skaftason lætur ekki þar við sitja og slær út grínið: „Gos virðist nú vera hafið í Slöku- gígum og stefnir á Meðaltind. Vís- indamenn bíða spenntir í of- anverðu Fjáransflottahrauni eftir frekari upplýsingum.“ Á meðan sumir pæla í gosinu velta aðrir fyrir sér gríninu, eitt- hvað verður fólk að hafa til að gleðjast yfir, eins og til dæmis Mar- grét Erla Ma- ack. „Dagligdags er ég frekar nei- kvæð týpa og hef ekki gaman af mörgu, en ég hef sannarlega gaman að Cookie Monster og finnst hann alltaf fyndinn. Næsta mál á dagskrá í lífi mínu: Cookie monster- barnabúningur.“ Eitthvað til að hlakka til yfir. Gömlu félagarnir úr stundinni okkar, Felix Bergsson og Gunn- ar Helgason, hafa mikið brallað saman í gegnum tíðina en grínið þeirra á milli renn- ur seint út. „Að eyða morgni með Gunnari Helgasyni er einkar góð skemmtun. A.m.k. 2 hlátursköst bara í morgun! Gömlu mennirnir hugsa sér til hreyfings.“ Eitthvað er á döfinni hjá þeim félögunum. AF NETINU Hrafn Gunnlaugsson, kvikmynda- gerðarmaður, fagnar sumarlokum og efnir til mikillar veislu á heimili sínu fyrir gesti og gangandi að Laugarnestanga 65 í Reykjavík, laugardaginn 6. september. Þar verða haldnir stórskemmtilegir tón- leikar og munu hljómsveitirnar Bláskjár, Lucky Hymnist, Kira Kira, Kría Brekkan og Grúska Ba- búska leika ljúfa tóna ásamt því sem grillaðar verða pulsur og verða veig- ar í boði á sanngjörnu verði. Við- burðurinn hefst klukkan 21 og miða- verð er 1000 krónur og frítt fyrir 12 ára og yngri. Hrafn Gunnlaugsson býður heim Morgunblaðið/Kristinn Vilja þakka Ljósinu Systurnar Helga Björnsdóttir og Hólmfríður Björns- dóttir með dóttur Helgu, Margréti Kjartansdóttur. Morgunblaðið/Styrmir Kári Systurnar Helga Björnsdóttir og Hólmfríður Björnsdóttir hafa tekið til í fataskápum sínum og munu selja veglegar flíkur og varning í Kolaportinu á laugardag. Erindi þeirra þangað hefur fallegan til- gang en allur ágóði sem safnast mun renna óskipt til Ljóssins, endur- hæfingar- og stuðningsmiðstöð krabbameinsgreindra og aðstand- enda. „Í dag, laugardaginn 6. septem- ber, eru þrjú ár frá því að móðir mín greindist með krabbamein. Hún og við fjölskyldan fengum mikinn stuðning frá Ljósinu. Starfsfólkið þar er frábært og algjörlega ómetanlegt og viljum við þakka þeim fyrir allt það sem þau gerðu fyrir okkur,“ segir Helga. Systurnar eru þekktar fyrir fágaðan smekk og því má búast við flottum fatnaði og fylgihlutum. „Við stöndum vaktina í Kolaportinu í bás 6C frá 11-17 og bjóðum alla velkomna þangað.“ Vettvangur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.