Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.09.2014, Page 11

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.09.2014, Page 11
7.9. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11 Á dögunum voru haldnir áHvammstanga minningar-tónleikar um Gretti Björns- son harmonikuleikara og systkini hans, sem kennd eru við Bjarg í Miðfirði. Það var frændfólk Grettis sem stóð að þessari samkomu, en það er af fjölmennri ætt í Húna- þingi vestra. Systkinin frá Bjargi voru börn Margrétar Jónínu Karlsdóttur. Hún var fædd 1893 og dó í ágúst 1991. Ung missti Margrét eiginmann sinn, Axel Valdemar Vilhelmsson, og eftir það ól hún börn sín fjögur, Önnu, Karl, Pál og Sigurgeir, að mestu upp með stórfjölskyldu sinni á Bjargi, þar sem hún átti sterkar rætur. Í Miðfirðinum eignaðist Margrét soninn Gretti Björnsson, sem ungur gat sér gott orð sem snjall harmonikkuleikari og var þjóðþekktur sem slíkur. Síðar gift- ist Margrét Arinbirni Árnasyni og eignuðust þau soninn Árna, einnig kunnan hljómlistarmann. Gædd mikilum hæfileikum Grettir fæddist 1931 og ólst að hluta upp á Bjargi, meðal annars hjá Páli, móðurbróður sínum. Hann stofnaði heimili í Reykjavík með konu sinni, Ernu Geirsdóttur. Þau eignuðust fjögur börn og bjuggu í um áratug í Vancouver í Kanada. Fjölskyldan kom aftur til Íslands og stundaði Grettir húsamálun, en tónlistin var þó alltaf rauði þráður- inn í lífi hans og starfi. Grettir lést árið 2005. Öll börn Margrétar, sem voru sex alls, voru gædd miklum tónlist- arhæfileikum. Allir synirnir léku á harmonikkur og sumir á fleiri hljóðfæri. „Söngur og tónlist var þessum systkinum og reyndar allri ættinni eðlislægur, svo sem var alla tíð á Bjargsheimilinu,“ segir Karl Sigurgeirsson á Hvammstanga, fréttaritari Morgunblaðsins þar. Hann var meðal þeirra sem að tón- leikunum stóðu, en frumkvæðið átti Elínborg systir hans. Fjallarefur og Austfjarðaþoka Dagskrá tónleikanna á Hvamms- tanga var fjölbreytt. Þar komu meðal annars fram ýmsir af Bjargsættinni og fólk sem henni tengist. Geir Jón Grettisson, sonur Grettis Björnssonar, sýndi svörtu og hvítu harmonikkurna sem faðir hans átti og lék nokkur lög. Þá voru leikin lög sem Grettir er þekktur fyrir svo sem Austfjarða- þokan, Þórshafnarskottís, Fjallaref- urinn og Á kvöldvökunni. Margir samstarfsmenn Grettis komu og heiðruðu minningu hans með tón- list, meðal annarra Bragi Hlíðberg og Reynir Jónasson. HVAMMSTANGI Tónlist ættinni eðlislæg GRETTIR BJÖRNSSON OG TÓNLIST HANS VAR Í ÖND- VEGI Á TÓNLEIKNUM SEM HALDNIR VORU NYRÐRA. Á minningartónleikunum um Gretti lék og söng frændfólkið sem hér sést. Frá vinstri; Einar F. Björnsson, Sigurður H. Oddsson og Ingibjörg Friðriksdóttir. Ljósmynd/Arinbjörn Sigurgeirsson Grettir Björnsson þenur nikkuna á góðri stundu á tónleikum árið 1982. Morgunblaðið/Emilía Sveitarstjórn í Mýrdal hefur sett reglur um breytingar á notkun íbúðarhúsnæðis, en sókn er í það af hálfu ferða- þjónustunnar. Stendur nú til að skerpa á leyfismálum og endurskoða fasteignagjöldin. Mýrdalur ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30 Þriggja sæta sófimeð legubekk. L 250 cm. Fallegt og endingargott áklæði. 119.900 kr. Bora-sófi Hornsófi. L 313 x D248 cm. Fallegt og endingargott áklæði. 189.900 kr. Bora-sófi Kopar vírkarfa 35 cm. 7.995 kr. 45 cm. 9.995 kr. Dolor Borðlampi askur/hvítur. 44 cm. 24.995 kr. Play Sængurverasett 140x200 cm. Hannað af ljósmyndaranum Lone Stokholm fyrir ILVA. 100% bómull. 13.995 kr. Simply flower 119.900 kr. 189.900 kr. Nýtt Nýtt Sæblátt eða brúnt kaffiglas. 12 cm. 995 kr. Coffee cups 124.800 kr. Millistíf dýnameð5 svæðaBonell pokafjöðrun. 260 stk.m² þykkt 1,8/2,0mm. Verðmeð40mmsvampdýnu. 124.800 kr. Höfuðgafl seldur sér 34.900 kr. Dreamzen zone-rúm180x200cm Viðbygging við skólahúsið við Norðurgötu á Siglufirði var tekin í notkun á dögunum þegar vetrar- starf Gunnskóla Fjallabyggðar hófst. Viðbygging þessi er áföst gamla barnaskólahúsinu sem Rögn- valdur Ólafsson arkitekt teiknaði, en hinn 18. desember á síðasta ári var rétt öld síðan starfsemi hófst. Grunnskóli Fjallabyggðar var stofnaður 2010 og tók við af grunn- skólunum í Ólafsfirði og á Siglu- firði. Síðan þá hafa skref verið stig- in í þá átt að fækka skólahúsum og hagræða jafnframt því að bæta vinnuumhverfi nemenda og starfs- fólks. Haustið 2012 var viðbygging við skólahúsið við Tjarnarstíg í Ólafsfirði tekin í notkun og nú var röðin komin að Siglufirði. Með þessu hefur starf Grunnskóla Fjallabyggðar flust úr fjórum hús- um í tvö. Ávinningur fyrir nem- endur þykir mikill, til dæmis þurfa nemendur nú ekki að fara á milli húsa til að sækja verkgreinatíma og mötuneyti er í skólahúsum í báðum byggðakjörnum. Ótalin er þá hagræðing í rekstri skólans við það að skólahúsið við Hlíðarveg á Siglufirði er lagt af og tæki og bún- aður nýtt betur. SIGLUFJÖRÐUR Grunnskóli í einu húsi Í nýrri viðbyggingu við Norðurgötuna er öll aðstaða fyrsta flokks og nem- endur og kennarar hafa góð tækifæri til að sinna öllum sínum störfum. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Gamla skólahúsið við Hlíðarveg stendur autt og bíður nýs hlutverks.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.