Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.09.2014, Page 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.09.2014, Page 24
V ið erum átta hluthafar að opna búð með vönduðum hönnunarvörum, bæði vörum sem við höfum hrifist af á sýningum og ferða- lögum og svo náttúrlega vörum sem við höfum sjálfar hannað og unnið. Okkur langar að búa til fallega búð með góðri stemningu þar sem við get- um boðið upp á það sem okkur þykir fallegast og skemmtilegast,“ segir Elín Hrund Þorgeirsdóttir, ein af stofnendum verslunarinnar UniKat. UniKat reka níu íslenskar konur, þær Bríet Ósk Guðrúnardóttir, Elín Hrund Þorgeirsdóttir hjá Dýrindi, Sonja Bent, Elena K. Pétursdóttir, Steinunn Vala Sigfúsdóttir hjá Hring eftir hring, Nína Björk Hlöðversdóttir, Ólöf Jakobína Ernudóttir og Guðbjörg Káradóttir hjá Postulínu og Hlín Reykdal. Elín segir að sig hafi lengi dreymt um að stofna búð og þegar þær stöllur duttu niður á fallega hús- næðið á Frakkastígnum hafi tækifæri gefist en Elín telur það jafnframt kost að geta rekið búðina allar saman. „Við erum flestar að gera þetta í fyrsta skipti. Þetta er búið að vera ofsalega skemmtilegt ferli og við erum enn að læra, reka okkur á og hvetja hver aðra áfram. Það sem gerir þetta svo skemmtilegt er samstarfið; við lærum mikið hver af annarri og skiptumst á skoðunum. Það getur verið erfitt að opna verslun einn og sjálfur og þess vegna stukkum við á þetta tækifæri, að geta gert þetta saman. Það eiginlega gerði það að möguleika að við gátum farið út í þetta ævintýri,“ útskýrir Elín Hrund og bætir við að það sé mikil vakning fyrir gæðavörum. Búðin er afskaplega litrík og skemmtilega inn- réttuð. Elín segir það góðan kost við húsnæðið að við það sé skemmtilegt port og það sé rétt við Laugaveginn. „Það er frábær stemning í miðbænum og ennþá margir ferðamenn sem koma. Frakka- stígurinn er miklu fjölfarnari gata en ég hélt,“ segir Elín og hlær. Mikið hefur verið lagt upp úr því að búðin sé falleg og þar sé góður andi. Búðin er sérlega björt og skemmtilega litrík. Krúttlegir lampar frá Hjarn.is. Morgunblaðið/Eva Björk GAMAN AÐ GETA BOÐIÐ UPP Á FALLEGAR HÖNNUNARVÖRUR Samstarfið gerði ævin- týrið að möguleika UNIKAT ER NÝ VERSLUN Á HORNI FRAKKASTÍGS OG LAUGAVEGS SEM SELUR VANDAÐAR HÖNNUNARVÖRUR FYRIR BÖRN OG FULLORÐNA. VERSLUNIN, SEM VAR STOFNUÐ Í SUMAR, ER REKIN AF ÍSLENSKUM HÖNNUÐUM OG TVEIMUR VEFVERSLUNAREIGENDUM. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Guðbjörg Káradóttir, Nína Björk Hlöð- versdóttir, Elín Hrund Þorgeirsdóttir, Ólöf Jakobína Ernudóttir, Bríet Ósk Guðrúnardóttir, Sonja Bent, Hlín Reykdal og Elena Pétursdóttir reka verslunina. Á myndina vantar Steinunni Völu. Elín Hrund Þorgeirsdóttir hönnuður rekur UniKat ásamt átta öðrum. Púðar frá Dýrindi og Notknot. Fallegir skartgripir eftir Steinunni Völu hjá Hring eftir hring. * Okkur langarað búa til fal-lega búð með góðri stemningu þar sem við getum boðið upp á það sem okk- ur þykir fallegast. Heimili og hönnun *Hið virta danska hönnunarhús NormannCopenhagen hefur hafið framleiðslu árenndum vaðfuglum íslenska hönnuðar-ins og rithöfundarins Sigurjóns Pálssonarúr tré. Normann Copenhagen keyptifuglana af hönnuðinum til framleiðslu enþeir eru nú fáanlegir hér á landi í verslun- inni Epal. Normann Copnhagen og íslensku vaðfuglarnir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.