Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.09.2014, Qupperneq 48

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.09.2014, Qupperneq 48
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.9. 2014 Guðbjörg Ringsted myndlistarkona opnar sýningu á málverkum í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík í dag, laugardag, klukkan 14. Þetta er þrítugasta einkasýning Guðbjargar en sex ár eru síðan hún sýndi síðast á Dalvík. Þema málverkanna er útsaumsmunstur af íslenska þjóðbúningnum en í meðförum lista- konunnar öðlast munstrin sitt eigið líf. Þau ýmist standa kyrrlát, að hennar sögn, eða flögra um á myndfletinum. Frelsisþráin kem- ur einnig við sögu; löngunin til að slíta sig úr viðjum vanans. Guðbjörg er fædd á Akureyri árið 1957 og útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Ís- lands árið 1982. Hún er félagi í SÍM, félaginu Íslenskri grafík og Myndlistarfélaginu. GUÐBJÖRG SÝNIR Í BERGI MYNSTUR Útsaumsmynstur á íslenska þjóðbúningnum er þema málverka Guðbjargar Ringsted. Jónas Ingimundarson og Kristinn Sigmundsson koma fram ásamt Bryndísi Höllu Gylfadóttur. Morgunblaðið/Eggert Söngvarinn Kristinn Sigmundsson, Jónas Ingi- mundarson píanóleikari og Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari flytja fjórtán ný söng- lög eftir Þorvald Gylfason við ljóð Kristjáns Hreinssonar á tónleikum í Salnum á sunnu- dag klukkan 16. Ljóðaflokkurinn er sagður óður til lífsins með fegurð himinsins að leiðarljósi. Tón- leikar handa þeim, sem unna fögrum skáld- skap og kjósa helst að koma syngjandi heim úr Salnum. Þórir Baldursson hefur útsett sönglögin. Kristján mun flytja stuttar skýringar með kvæðunum. KRISTINN OG JÓNAS Í SALNUM NÝ SÖNGLÖG Bandaríski djasspíanistinn George Colligan kemur fram á tónleikum í Kalda- lóni í Hörpu á sunnudags- kvöld klukkan 20. Með honum leika þeir Þor- grímur Jónsson á kontra- bassa og Scott McLemore á trommur. Colligan er djassunn- endum vel kunnugur, til að mynda fyrir leik með víðkunnum listamönnum á borð við Jack DeJohnette, Cassöndru Wilson og Don Byron en hann hefur leikið inn á um eitt hundrað geisladiska. Colligan er einnig lið- tækur trommari, trompetleikari og orgel- leikari. Hann hefur hljóðritað 24 diska undir eigin nafni þar sem athyglisverðar tónsmíðar og framúrskarandi tækni hans fá að njóta sín. Hann hefur hlotið verðlaun fyrir tónsmíðar jafnt sem leik sinn og er eftirsóttur meðleik- ari. GEORGE COLLIGAN Í HÖRPU DJASSHETJA George Colligan Málþing um Sigurjón Ólafsson myndhöggvara og verkhans verður haldið í Listasafni Íslands í dag, laugardag,klukkan 12.45 til 17, í tengslum við yfirlitssýninguna á verkum listamannsins, „Spor í sandi“, sem nú stendur yfir í safn- inu við Fríkirkjuveg og í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnesi. Fyrirlestrarnir verða fluttir á ensku og dönsku. Fyrirlesarar verða dönsku listfræðingarnir Jens Peter Munk, umsjónarmaður höggmynda á vegum Kaupmannahafnarborgar, og Charlotte Christensen, bandaríski listfræðingurinn Kerry Greaves, Æsa Sigurjónsdóttur, listfræðingur og sýningarstjóri, Aðalstein Ingólfsson, listfræðingur, og Pétur H. Ármannsson arki- tekt. Munu þau takast á við ólíka þætti á ferli og í sköpun Sigur- jóns. Sigurjón Ólafsson (1908-1982) lærði klassíska höggmyndagerð í Konunglega listaháskólanum í Kaupmannahöfn og þegar á náms- árum sínum braust hann út úr viðjum hinnar akademísku hefðar og gerði tilraunir með efni og form. Á meðan Sigurjón dvaldi í Danmörku vann hann mikilvæg tímamótaverk undir formerkjum módernismans. Verk hans vöktu í senn athygli, aðdáun og gagn- rýni og hann hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir andlitsmyndir sínar. RÝNT Í SKÖPUN MERKS FRUMHERJA Málþing um verk Sigurjóns Hver sem efniviðurinn var, klassísk andlitsmynd í leir eða frjáls skúlptúr, var innsæi Sigurjóns og skilningur á efninu ætíð framúrskarandi. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon VIRTIR FRÆÐIMENN FJALLA UM SIGURJÓN ÓLAFS- SON Á MÁLÞINGI Í LISTASAFNI ÍSLANDS Menning Í kvöld flytja Stuðmenn á tvennum tón-leikum í Hörpu tónlistina af Tívolí, einnivinsælustu hljómplötu sem út hefur kom- ið hér á landi. Tívolí var önnur plata Stuð- manna, var hljóðrituð í Lundúnum, og kom á markað árið 1976. Á henni eru mörg lög sem löngu eru orðin sígild, til að mynda „Hveiti- björn“, „Frímann flugkappi“, „Bíólagið“, „Á skotbökkum“ og „Hr. Reykjavík“. Þema plötunnar var gamli Tívolígarðurinn í Vatns- mýrinni sem starfræktur var á árunum 1946 til 1962 en hann var á plötunni gerður að spegilmynd samfélagsins, þar sem skotbakk- ar urðu til dæmis tákn hervæðingar og Frí- mann flugkappi tákn varnarliðsins, Fjall- konan var fjöllynd en vígbúin og Drauga- salurinn var tákn Alþingishússins. Tómas Magnús Tómasson, bassaleikari Stuðmanna síðan útgáfusaga þessarar sí- vinsælu hljómsveitar hófst árið 1975, segir meðlimi sveitarinnar ekki hafa slegið slöku við á æfingum fyrir tónleikana. Að þeim loknum blæs hljómsveitin síðan til dansleiks í húsinu og færir sig þá úr Eldborgarsalnum yfir í Silfurberg. „Við vorum með tónleika í Hörpu fyrir tveimur árum og rifjuðum þá upp Með allt á hreinu-kvikmyndina. Það gekk svo ljómandi vel að okkur þótti við hæfi að fara aðeins aftur á bak og taka að þessu sinni fyrir Tív- olí, aðra stóru plötu Stuðmanna sem kom út árið 1976. Ég geri ráð fyrir að á næstu stóru tónleikum tökum við fyrir Sumar á Sýrlandi. Við fikrum okkur hægt og rólega aftur á bak,“ segir hann. – Tívolí er goðsagnakennd skífa, mikið eft- irlæti margra. Nokkur lög af plötunni hafa ætíð verið á efnisskrá Stuðmanna en hvernig finnst þér verkið lifa í heild? „Það hefur verið skemmtileg upplifun að rifja tónlistina upp,“ segir Tómas. „Sjálfur hef ég ekki átt þessa plötu í tugi ára. Það var gaman að setjast niður og hlusta á þetta. Ég hlusta lítið á plötur sem ég hef spilað á, en það var gaman fyrir mig, og allan hópinn held ég, að nálgast þetta að nýju. Lögin samin í bílnum Við erum búin að velta okkur nokkuð upp úr þessum lögum. Á sínum tíma var platan unn- in mjög hratt, og hljómsveitin var ekki endanlega formuð. Við notuðum breska stúdíóleikara, trommuleikara og fleiri, á þessari plötu. Það voru engar æfingar, við hentum okkur inn í stúdíó og reyndum að klára lögin eins hratt og við gátum. Það er allt öðruvísi að setjast niður í dag þegar við erum með fastan trommuleikara og heila hljómsveit. Ég myndi segja að í meðförum okkar núna væri hljómsveitin enn álitlegri.“ Á sviðinu í kvöld verða þeir Egill Ólafsson, Jakob Frímann Magnússon, Valgeir Guð- jónsson og Tómas, og þá koma auk þessa gamla kjarna Stuðmanna fram með þeim Ragnhildur Gísladóttir söngkona og Guð- mundur Pétursson gítarleikari, sem hefur verið fastráðinn í sveitinni síðustu árin, rétt eins og Eyþór Gunnarsson hljómborðsleikari. „Margt sem við gerum á þessum tónleikum verður eyrnakonfekt fyrir gesti. Að sjálf- sögðu höldum við trúnaðarsambandi við upp- haflegu útsetningarnar, við ætlum ekkert að breyta Tívolí í aðra plötu,“ segir Tómas. – Þið eruð engu að síður þroskaðri hljóð- færaleikarar í dag, rödd söngvaranna hefur breyst og nýja fólkið hefur sín áhrif. „Jú, og kannski er mesti munurinn sá að á bak við þessa tónleika liggja tæplega þrjátíu æfingar en ekki bara hoppað beint upp á svið og reynt að spila þetta eftir minni.“ Þegar Tívolí var hljóðrituð í Lundúnum voru þeir Tómas og Jakob búsettir þar en hinir meðlimirnir, Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla, höfðu unnið að laga- og textasmíðum og komu með afraksturinn til Bretlands. „Þeir tóku ferjuna Smyril til Skotlands og komu keyrandi til London. Mér skilst að nokkur lög hafi orðið til á leiðinni. Eitthvað var tilbúið heima á íslandi, en tvö, þrjú lög með textum voru víst samin í bílnum. Kassa- gítar var með í för. Þeir komu til að taka upp með okkur, við rétt hittumst, svo mættu einhverjir trommu- leikarar sem höfðu aldrei heyrt neitt. Hvað mestur tími fór í að koma þeim í skilning um hvað ætti að gera,“ segir Tómas og hlær. – Hvernig mótaðist tívolí-konseptið sem platan og textarnir byggjast á? „Ég er ekki höfundur laga á plötunni en geri ráð fyrir að þeir hafi verið búnir að hgsa þetta konsept nokkuð áður; þetta var STUÐMENN LEIKA TÍVOLÍPLÖTUNA Í HEILD Í ELDBORG Halda trúnaðarsambandi við upphaflegar útsetningar BASSALEIKARI STUÐMANNA SEGIR HLJÓMSVEITINA ENN ÁLITLEGRI Í DAG EN ÁRIÐ 1976 ÞEGAR PLATAN TÍVOLÍ KOM Á MARKAÐ. HLJÓMSVEITIN FLYTUR ÖLL LÖG PLÖTUNNAR Á TVENNUM TÓNLEIKUM Í HÖRPU Í KVÖLD. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Stuðmenn tróðu upp í Hörpu fyrir tveimur ár- um og fluttu tónlistina úr Með allt á hreinu. Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.