Morgunblaðið - 24.11.2014, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.11.2014, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 4. N Ó V E M B E R 2 0 1 4 Stofnað 1913  275. tölublað  102. árgangur  HUGMYNDA- OG PERSÓNUSÖGU TVINNAÐ SAMAN ÓSNERT- ANLEG Á TOPPNUM HEIMABAKAÐ OG NOTALEG- HEIT Á RETRO KARATE ÍÞRÓTTIR SAMHENT HJÓN 10PÉTUR GUNNARSSON 26  Íslenska upplýsingatæknifyrir- tækið Sensa hefur í tvö ár unnið að verkefni fyrir danska raftækjaris- ann Bang & Olufsen. Sensa hefur smíðað stýrieiningu sem „talar við“ öll tæki í versluninni og tengir við netið. Viðskiptavinir geta svo, t.d. í gegnum nettengdan snjallsíma, stjórnað sjónvörpunum og hljóm- flutningstækjunum þegar þeir skoða sig um í búðinni. Búnaðurinn er skalanlegur fyrir verslanir af ólíkum stærðum og er þegar í notkun í fjölda verslana allt frá Bandaríkjunum til Kína. »14 Búnaður frá Sensa lífgar upp á versl- anir Bang & Olufsen Tenging Stýrieiningin nýtir möguleika netsins til að bæta upplifun kúnnans. Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Líkur voru taldar á því í gærkvöldi samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins að virðisaukaskattur á matvæli yrði látinn hækka í 11 prósent en ekki 12 eins og lagt er til í frumvarpi rík- isstjórnarinnar um breytingar á lög- um um virðisaukaskatt. Skatturinn er nú 7 prósent. Þannig vilja stjórnarlið- ar koma til móts við gagnrýni á frum- varpið frá stjórnarandstöðu, verka- lýðshreyfingu og úr eigin röðum. Niðurstaða málsins verður ljós í dag eða síðar í vikunni þegar Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra kynnir Alþingi tillögur ríkisstjórnar- innar um breytingar á virðisauka- skattsfrumvarpinu. Frosti Sigurjóns- son, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, staðfesti að nokkr- ar efnislegar breytingar yrðu gerðar á frumvarpinu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra greindi frá því í ræðu á miðstjórnarfundi framsóknar- manna um helgina að væntanlegar væru tillögur frá ríkisstjórninni um aukin framlög til heilbrigðis- og menntamála og til Landhelgisgæsl- unnar. Tillögurnar verða kynntar fjárlaganefnd fyrir hádegi í dag að sögn Guðlaugs Þórs Þórðarson, vara- formanns nefndarinnar. „Áherslan er á að forgangsraða í þágu heilbrigð- ismála,“ sagði hann.. Forsætisráðherra boðaði einnig að til tíðinda væri að draga í sambandi við afnám fjármagnshafta. Það yrði áður en langt um liði, en næstu dagar mundu snúast um fjárlögin. MTillögurnar sendar … »6 Rætt um 11% skatt á mat  Brugðist við gagnrýni á virðisaukaskattsfrumvarpið  Aukin framlög til heil- brigðis- og menntamála  Tíðinda senn að vænta um afnám fjármagnshafta Morgunblaðið/Árni Sæberg Brot Sjúklingar liggja oft lengi. Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Mjaðmagrindarbrot eru algengari en fólk gerir sér grein fyrir en brotin eru mun algengari hjá konum þar sem þær þjást frekar af beinþynn- ingu,“ segir Unnur Lilja Úlfarsdóttir læknanemi en hún lagðist í rannsókn á mjaðmagrindarbrotum og komst að þeirri niðurstöðu að þau hefðu verið verulega vanmetin með tilliti til af- leiðinga fyrir sjúklingana og kostn- aðar þjóðfélagsins. Rannsóknin var hluti af BS-verkefni hennar en leið- beinendur hennar voru Gunnar Sig- urðsson og Brynjólfur Mogensen. „Mjaðmagrindarbrot eru algeng- ust hjá eldri konum og þær brotna oftar við lágorkuáverka. Karlar brotna frekar við háorkuáverka og hafa lægri meðalaldur við brot. Stór hluti leggst inn á Landspítalann til verkjastillingar og hreyfimeðferðar. Flestir aldraðir geta ekki bjargað sér sjálfir eftir brotin og liggja lengi inni. Mjaðmagrindarbrot hafa því veru- legar afleiðingar bæði fyrir sjúklinga og kostnað fyrir þjóðfélagið,“ segir hún. Rannsóknin var kynnt á lyf- lækningaþingi sem fram fór um helgina í Hörpu þar sem kynntar voru fjölmargar rannsóknir. Mikil áþján og kostnaður  Konur líklegri til að mjaðmagrindarbrotna en karlar Þessi ungi piltur og ferfætti félagi hans voru við leik þegar ljósmyndari Morgunblaðsins sótti Geldinganes heim í vetrarblíðunni í gær, en hiti mældist víða um og yfir 10 stig. Áfram er gert ráð fyrir fremur hlýju og mildu veðri víðsvegar um land, en Veðurstofa Íslands spáir suðlægum vindum alla vikuna. Ef einhverja er farið að lengja eftir mikilli snjókomu í byggðum landsins verða þeir því að sýna þolinmæði enn um sinn. Sprækir félagar brugðu á leik í vetrarblíðunni Morgunblaðið/Golli Gert er ráð fyrir suðlægum vindum alla vikuna með tilheyrandi hlýindum  Skattaumhverfi á Íslandi leiðir til þess að sjávarútvegsfyrirtæki geta ekki staðið straum af kostnaði við nýsköpun, sem er forsenda aukinnar verðmætasköpunar, að sögn Elliða Vignissonar, bæjarstjóra í Vest- mannaeyjum. Hann segir að þessu megi breyta með því að veita skatta- lega hvata til nýsköpunarverkefna í stað þess að ríkið hækki skatta og skili þeim til baka í formi styrkja til veikra byggða. Hagræðingarkrafa í sjávarútvegi hafi leitt til fækkunar starfa í sjávarútvegi og umhugs- unarvert sé að sú skuli vera raunin í bæjarfélagi eins og Vestmanna- eyjum, sem hafi 13% aflaheimilda á sama tíma og einungis 1,2% þjóð- arinnar búi þar. »12 Búa þarf til skatta- lega hvata til ný- sköpunarverkefna  Forystumenn Sjálfstæðis- flokksins stefna að því samkvæmt heimildum Morgunblaðsins að ákveða á þingflokksfundi í dag hver verður arftaki Hönnu Birnu Kristjánsdóttur á stól innanríkis- ráðherra. Mestar líkar voru taldar á því í gærkvöldi að Bjarni Benediktsson gerði tillögu um að Einar Kristinn Guðfinnsson, forseti Alþingis, tæki við embættinu. Óljóst var hins veg- ar um afstöðu Einars. Þingmenn- irnir Birgir Ármannsson og Ragn- heiður Ríkharðsdóttir, formaður þingflokksins, eru einnig orðuð við embættið. gudmundur@mbl.is Vilja ákveða nýjan ráðherra í dag Ríkisráð Nýr ráðherra brátt skipaður. Nýleg rannsókn sýnir fram á að hjartaensím hækka gjarnan hjá hlaupurum eftir hlaup. Þetta er þó ekki endilega vís- bending um yfirvofandi hjartaáfall að sögn Björns Magnússonar, yfirlæknis sjúkra- sviðs á Selfossi. »4 Hjartaensím hlaupara hækka ÁREYNSLA Á HJARTAÐ Hlaup Ný rann- sókn kynnt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.