Morgunblaðið - 24.11.2014, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2014
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
„Það er fundur í fjárlaganefnd í
fyrramálið. Þá verða þessar breyt-
ingatillögur frá ríkisstjórninni
ræddar,“ sagði Guðlaugur Þór
Þórðarson alþingismaður, varafor-
maður fjárlaganefndar Alþingis, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Áherslan er á að forgangsraða í
þágu heilbrigðismála,“ sagði hann.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra boðaði talsverðar
breytingar á fjárlagafrumvarpi rík-
isstjórnarinnar í ræðu sinni á mið-
stjórnarfundi Framsóknarflokks-
ins á Höfn í Hornafirði á
laugardaginn.
Endurreisa heilbrigðiskerfið
„Nú í byrjun nýrrar viku munum
við sjá að traustari stoðum verður
rennt undir fjölmörg mikilvæg
verkefni og stofnanir ríkisins.
Þannig munu heilbrigðis- og
menntastofnanir fá aukin framlög
en einnig aðrar grunnstoðir eins og
Landhelgisgæslan og mikilvæg
verkefni á borð við lýðheilsuátak og
byggðamál,“ sagði Sigmundur í
ræðunni. Önnur umræða um fjár-
lögin verður á fimmtudaginn.
„Við erum að komast í stöðu til
að bæta í og halda áfram endur-
reisn heilbrigðiskerfisins. Það er þó
mikilvægt að ekki gleymist í þeirri
umræðu allri að þótt Landspítalinn
sé gríðarlega mikilvæg stoð í heil-
brigðiskerfinu er hann ekki heil-
brigðiskerfið allt,“ sagði forsætis-
ráðherra ennfremur.
Breytingar á vask-frumvarpi
Þá gerði forsætisráðherra breyt-
ingar á virðisaukaskattskerfinu að
umræðuefninu. Hann sagaði að
þær myndu verða til þess að flestar
vörur lækkuðu í verði og nauðsyn-
leg lyf þá sérstaklega. „Þegar allt
er talið á matvælaverð ekki að
hækka vegna breytinganna um
nema í mesta lagi 1,4% og helst
ekki neitt. Flestar vörur munu
lækka í verði og nauðsynleg lyf al-
veg sérstaklega,“ sagði Sigmundur.
Frosti Sigurjónsson, formaður
efnahags- og viðskiptanefndar,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
nefndin fengi kynningu á tillögun-
um seinnipartinn í dag. Taldi hann
að um væri að ræða bæði efnislegar
breytingar og tæknilegar og ýmsar
útvíkkanir. „Það er búið að vinna
töluvert mikið í frumvarpinu í ráðu-
neytinu,“ sagði hann.
Tíðindi í haftamálum
Í ræðunni boðaði forsætisráð-
herra einnig að til tíðinda væri að
draga í haftamálunum.
„Svigrúmið margumrædda
vegna uppgjörs slitabúa bankanna,
sem eru í eigu kröfuhafanna marg-
umræddu, er þegar byrjað að
myndast með skattlagningu sem
nemur tugum milljarða á ári og
telja má líklegt að það dragi enn
frekar til tíðinda í haftamálum áður
en langt um líður,“ sagði hann.
Næstu dagar mundu hins vegar að
mestu snúast um lagavinnuna.
Tillögurnar sendar fjárlaganefnd
Forsætisráðherra boðaði aukin framlög til heilbrigðis- og menntamála og Landhelgisgæslunnar
Forgangsraðað verður í þágu heilbrigðismála í fjárlögum, segir varaformaður fjárlaganefndar
Morgunblaðið/Þórður
Ræðir breytingar Fjárlaganefnd kemur saman til fundar fyrir hádegi í dag.
Hún tekur þá til afgreiðslu tillögur ríkisstjórnar um breytingar á fjárlögum.
„Illmælgi, sleggjudómar og niður-
rifstal hefur aldrei átt jafngreiða
leið að almennri umræðu og nú. Að
mestu leyti verður þetta til hjá fá-
mennum hópi fólks sem er alls
ekki er lýsandi fyrir samfélagið en
tíðarandinn er þó slíkur að þessi
brenglaða sýn nær athyglinni og
gefur tóninn fyrir umræðuna. Það
getur haft raunveruleg og mjög
neikvæð áhrif fyrir samfélagið.“
Þetta sagði Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson forsætisráðherra í
ræðu sem hann flutti á haustfundi
miðstjórnar Framsóknarflokksins
á laugardaginn. Ummælin lét hann
falla eftir að hafa vikið í ræðu sinni
að mikilvægi þess að landsmenn
hefðu trú á tækifærum Íslands.
Hann sagði það spurningu um
þjóðarhag að landsmenn lærðu að
meta það sem væri gott á Íslandi.
„Þjóð sem hefur ekki trú á
sjálfri sér nær ekki árangri,“ sagði
Sigmundur Davíð.
Brengluð sýn gefur tóninn
FORSÆTISRÁÐHERRA DEILIR Á NEIKVÆÐA UMRÆÐU
Ósáttur Gagnrýndi neikvæða umræðu.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Beinagrind steypireyðar sem rak á land á Skaga árið
2010 er nú geymd að mestu leyti í geymslu sem var
leigð undir beinin í Keflavík. Eitthvað af beinum er
geymt hjá Náttúrufræðistofnun Íslands í Garðabæ.
Mikið verk er óunnið áður en grindin verður sýning-
arhæf.
Þorvaldur Þ. Björnsson, hamskeri hjá Nátt-
úrufræðistofnun, hefur unnið að hreinsun og varð-
veislu beinanna. Hann kvaðst hafa áætlað að það
tæki tvö ár að fullhreinsa beinin sem innihéldu mikla
fitu. Þorvaldur fékk afnot af tækjum Hvalstöðv-
arinnar í Hvalfirði. Þau rúmuðu hálfa beinagrindina í
einu og var hvor helmingur hreinsaður í þrjá mánuði.
Hreinsunin fór þannig fram að beinin voru lögð í
heitt vatn og látin kólna í því. Það dró fituna út og
var þetta endurtekið aftur og aftur. Þorvaldur taldi
að hann hefði þurft að fá enn lengri tíma til hreins-
unarinnar. Mikil fita er enn í efnismestu beinunum
og hún kemur út. Önnur bein eru orðin góð.
Þorvaldur sagði að víða á söfnum erlendis smitaði
fita enn úr jafnvel aldargömlum hvalabeinagrindum
með tilheyrandi lykt og óþrifum. Hann sagði að þessi
beinagrind væri ekki lengur jafn mikið fitumettuð
þótt enn mætti finna smákeim af sumum beinunum.
Ljóst er að gríðarmikil vinna verður við uppsetn-
ingu 25 metra langrar beinagrindarinnar hvort held-
ur hún verður hengd upp eða sett á undirstöður.
Hanna þarf og smíða allt burðarvirki beinagrind-
arinnar úr málmi. Þorvaldur sagði til dæmis að höf-
uðkúpan vægi mörg hundruð kíló og hvert rifbein 15-
20 kg. Þræða þyrfti málmtein í gegnum hvert rifbein
og hanna festingar þeirra við hryggsúluna. Þá þyrfti
að útbúa festingar fyrir bægslin sem kæmu þar utan
á.
Þorvaldur sagði það hafa vakið furðu sína hvað
mörg beinin hefðu verið mjúk og sum farið illa. Hann
kvaðst hafa haft samband við Kanadamenn sem
höfðu sett upp beinagrind af steypireyði. Þá komst
hann að því að í Kanada höfðu menn leyst það vanda-
mál með því að steypa eftirmyndir sumra beinanna
úr plasti.
Steypireyðurin geymd
í Keflavík og Garðabæ
Morgunblaðið/Ómar
Steypireyður Þorvaldur Þór Björnsson hefur hreinsað beinin og lagfært. Gríðarmikil vinna verður að setja grindina upp.
Fundi Félags prófessora og samn-
inganefndar ríkisins var frestað á
föstudag en þess í stað verður
fundað í dag. „Fulltrúar ríkisins voru
ekki reiðubúnir að mæta til fundar á
föstudag og þess vegna var fundin-
um frestað. Boltinn er hjá viðsemj-
endum okkar. Við erum langt komn-
ir með hugmyndir að kjarasamningi
og báðir aðilar vita hvar hinn stend-
ur. En við bíðum eftir viðbrögðum
frá mennta- og fjármálaráðuneyt-
inu,“ segir Rúnar Vilhjálmsson, for-
maður Félags prófessora. Hann seg-
ir að samningamönnum hafi vaxið
bjartsýni eftir því sem leið á síðustu
viku. Því hafi það verið vonbrigði að
ekkert hafi orðið úr fundi á föstudag.
„Það er ekki gott að lesa í það en við
vonumst til þess að hægt verði að
stíga markviss skref á morgun. Við
vonum enn að ekki komi til verk-
falls,“ sagði Rúnar í gær. Félag pró-
fessora hefur boðað til verkfalls 1.-
15. desember náist samningar ekki.
vidar@mbl.is
Vonbrigði að fundi
hafi verið frestað