Morgunblaðið - 24.11.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2014
Íslenskur sjávarútvegur á fáa sínalíka í heiminum þegar kemur að
hagkvæmni í rekstri og því hvílík
undirstaða hann er undir efnahag
og velferð íbúa landsins. Sigurður
Steinn Einarsson sjávarútvegs-
fræðingur fjallaði um álögur á sjáv-
arútveg í ýmsum löndum á Sjáv-
arútvegsráðstefnunni í liðinni viku
og sagði sjaldgæft í heiminum að
sjávarútvegurinn greiddi auðlinda-
gjald í formi sérstaks veiðigjalds.
Sigurður Steinn benti á að al-mennt nyti greinin ríkis-
styrkja, og sagði svo: „Tölur OECD
sýna að Ísland er eina landið í
OECD þar sem ríkið fær meira út
úr greininni en það sem það leggur
til hennar.“
Þetta er athyglisvert en einnigþað sem Sigurður Steinn benti
á um hafnargjöldin. Hér á landi
hefur sjávarútvegurinn að hans
sögn greitt tíu milljarða króna í
hafnargjöld á undanförnum fáum
árum, en færeyskar, grænlenskar
og norskar útgerðir greiða engin
hafnargjöld.
Umræða um gjaldtöku af sjávar-útveginum hefur verið á mikl-
um villigötum um langa hríð hér á
landi og vegna fjandskapar síðustu
ríkisstjórnar í garð greinarinnar
býr hún nú við afar íþyngjandi of-
urskatta.
Íslensk sjávarútvegsfyrirtækikeppa við erlend fyrirtæki á al-
þjóðlegum markaði og þessi er-
lendu fyrirtæki búa við allt aðra og
hagstæðari skattlagningu. Þetta er
nauðsynlegt að Alþingi hafi í huga
við endurskoðun laga um sjávar-
útveginn.
Ísland sér á báti
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 23.11., kl. 18.00
Reykjavík 5 skýjað
Bolungarvík 6 skýjað
Akureyri 1 heiðskírt
Nuuk 5 skýjað
Þórshöfn 5 skýjað
Ósló 3 súld
Kaupmannahöfn 7 skýjað
Stokkhólmur 6 heiðskírt
Helsinki 1 skýjað
Lúxemborg 11 heiðskírt
Brussel 13 heiðskírt
Dublin 7 léttskýjað
Glasgow 6 léttskýjað
London 7 skúrir
París 13 heiðskírt
Amsterdam 12 heiðskírt
Hamborg 7 heiðskírt
Berlín 7 heiðskírt
Vín 6 skýjað
Moskva -2 skýjað
Algarve 17 skúrir
Madríd 16 skýjað
Barcelona 21 léttskýjað
Mallorca 22 heiðskírt
Róm 16 léttskýjað
Aþena 11 skýjað
Winnipeg -2 alskýjað
Montreal 5 þoka
New York 9 léttskýjað
Chicago 11 skúrir
Orlando 24 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
24. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:26 16:04
ÍSAFJÖRÐUR 10:56 15:44
SIGLUFJÖRÐUR 10:39 15:26
DJÚPIVOGUR 10:01 15:28
Kaffiveitingar frá kl. 16:30
Opinn fræðslufundur
Erfðir brjóstakrabbameins
Kristján Skúli Ásgeirsson, brjóstaskurðlæknir, Landspítala
Þórunn Rafnar, erfðafræðingur, ÍE
Laufey Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsskrár
Kári Stefánsson, læknir og erfðafræðingur, ÍE
Í samráði við Krabbameinsfélag Íslands
Erindi flytja:
mánudaginn 24. nóvember kl. 17:00 - 18:30
í fyrirlestrasal Íslenskrar erfðagreiningar (ÍE), Sturlugötu 8
Cornell-háskólinn í Bandaríkjunum
veitti á föstudag Ólafi Ragnari
Grímssyni, forseta og íslensku
þjóðinni, heiðursverðlaun fyrir for-
ystu á sviði endurnýjanlegrar orku
og sjálfbærni. Þetta er í fyrsta sinn
sem verðlaunin eru veitt og fór at-
höfnin fram í Íþöku í New York-
ríki.
Verðlaunin, sem bera heitið The
Atkinson Center Award for Global
Leadership in Sustainable Develop-
ment, eru tengd sérstakri stofnun
við Cornell-háskóla, sem einbeitir
sér að eflingu endurnýjanlegrar
orku, umhverfismálum og sjálf-
bærni. Stofnunin hefur starfað frá
árinu 2008 en Cornell hefur lengi
verið meðal fremstu háskóla í
Bandaríkjunum.
Í ávarpi sem forseti Íslands flutti
við þetta tækifæri þakkaði hann
þann heiður sem honum og ís-
lensku þjóðinni væri sýndur með
þessum verðlaunum.
Ljósmynd/forseti.is
Viðurkenning Ólafur Ragnar veitir
viðurkenningunni móttöku.
Þjóðin fékk
verðlaun
Í forystuhlutverki
Haldinn verður opinn hádeg-
isfundur í Norræna húsinu í dag
milli klukkan 12 og 13 þar sem
fjallað verður um ebólufaraldurinn
í Vestur-Afríku. Verður farið yfir
efnahags- og félagslega þróun ríkja
Vestur-Afríku og áhrif ebólu á
Síerra Leóne. Þá mun Rauði kross-
inn einnig fara yfir verkefni sín í
Síerra Leóne og skoða samskipti
við alþjóðasamfélagið, að því er
fram kemur í tilkynningu.
Ebóla til umræðu
í Norræna húsinu