Morgunblaðið - 24.11.2014, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2014
100% hreinar
Eggjahvítur
Þú þekkir okkur á hananum
Án allra aukaefna!
Gerilsneyddu eggjahvíturnar frá Nesbú eru frábær valkostur í jólabaksturinn.
Hugsaðu um hollustuna, veldu eggjahvítur frá Nesbú.
Ís
le
ns
k framleiðsla
Jólasöfnun
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er hafin
Það hefur sýnt sig að á erfiðum tímum stendur
íslenska þjóðin saman og sýnir stuðning,
hver og einn eftir bestu getu.
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
Einnig er opið fyrir síma á skrifstofutíma
s. 551 4349, netfang: maedur@simnet.is
Laugavegi 55 • S. 551 1040 • smartboutique.is
Sendum frítt um allt land!
JÓLATILBOÐ
Herratrefill- og
leðurhanskar
Aðeins 4.950 kr.
Refaskott og
leðurhanskar
Aðeins 12.490 kr.
Margir litir í boði
Rangt var farið með gerð fyrstu
þotu Íslendinga á bls. 10 í Morg-
unblaðinu sl. laugardag. Vélin sem
um ræðir var af gerðinni Boeing 727
en ekki DC-4 eins og ranglega var
farið með. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
LEIÐRÉTTING
Fyrsta þota Íslend-
inga Boeing 727
Taugar hans stóðust álagiðbetur,“ sagði WisvanathanAnand eftir að elleftu skákheimsmeistaraeinvígisins í
Sochi lauk með sigri Magnúsar Carl-
sen í 45 leikjum sem þar með hafði
hlotið 6½ vinning gegn 4½ og þarf
því ekki að tefla 12. skák einvígisins.
Þrátt fyrir ósigurinn í gær var An-
and afar vel undir þessa skák búinn
en í 27. leik lét hann skiptamun af
hendi og reyndist það afar misráðin
ákvörðun þó að á yfirborðinu liti
fórnin vel út. Á því augnabliki skák-
arinnar höfðu áhangendur Magn-
úsar miklar áhyggjur af stöðu hans
en hann greip tækifærið sem Anand
rétti honum og tefldi framhaldið
óaðfinnanlega og knúði fram sigur
með hárnákvæmum leikjum. Hann
getur nú andað léttar því að al-
þjóðaskáksambandið FIDE gerir
ráð fyrir að næsta heimsmeistara-
einvígi fari fram eftir tvö ár. Hverf-
andi líkur eru taldar á því að Anand
verði næsti áskorandi hans en Ind-
verjinn svaraði þó spurningum
fréttamanna eftir skákina í gær á þá
leið að hann væri alls ekki hættur.
Athyglin beinist nú að Ítalanum
Fabiano Caruano sem fyrir nokkr-
um vikum vann öflugt skákmót í
Saint Louis í Bandaríkjunum með
fáheyrðum yfirburðum.
Í samanburði við sum önnur
heimsmeistaraeinvígi telst þetta ein-
vígi í besta falli miðlungi gott,
kannski vegna þess hversu stutt það
er. Það er einfaldlega söguleg stað-
reynd að þau heimsmeistaraeinvígi
sem samanstóðu af 24 skákum að
undangengnu skipulögðu ferli
svæðamóta, millisvæðamóta og
áskorendaeinvígja heppnuðust yf-
irleitt afar vel. Keppendur gátu tek-
ið meiri áhættu í skákum sínum og
svo dæmi sé tekið þá var einvígi
Fischers og Spasskís í Reykjavík
1972 sneisafullt af nýjum hug-
myndum og afar flóknum stöðum
svo ekki sé minnst á óvænta atburði
utan skákborðsins. Magnús og An-
and virtust hins vegar á stundum
vera fastir í viðjum kerfisbundinna
byrjana sem gáfu hugmyndafluginu
ekki mikið pláss.
Engum dylst að Magnús er verð-
ugur heimsmeistari þótt hann hafi
ekki náð sínu besta fram í einvíginu í
Sochi. Og miklar breytingar hafa
orðið á högum hans frá því hann
kom hingað til Íslands í fyrsta sinn
fyrir röskum tíu árum. Þá var hann
tiltölulega lítt þekktur í heimalandi
sínu en skákir sem hann tefldi við
Anatolí Karpov og Garrí Kasparov á
Reykjavík rapid-mótinu í mars 2004
breyttu því. Nú er hann þjóðhetja í
Noregi og skákir hans eru í beinni
útsendingu í sjónvarpi og á net-
miðlum. Um það leyti ákváðu for-
eldrar hans að leggja niður störf,
selja bæði hús og bíl og fjölskyldan
ferðaðist síðan víða um lönd til að
styðja Magnús á framabraut skák-
arinnar. Hann þótti lengi vel feiminn
og óframfærinn og var af sumum tal-
inn einhverfur en sá orðrómur var
úr lausu lofti gripinn. Skákhæfni
hans byggist á mögnuðu innsæi,
bestu leikirnir virðast „koma til
hans“ alveg áreynslulaust og lok ell-
eftu skákarinnar í gær eru gott
dæmi um það:
11. einvígisskák:
Magnús Carlsen – Wisvanathan
Anand
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rf6 4.
0-0 Rxe4 5. d4 Rd6 6. Bxc6 dxc6 7.
dxe5 Rf5 8. Dxd8+ Kxd8 9. h3 Bd7
10. Rc3 h6 11. b3 Kc8 12. Bb2 c5 13.
Had1 b6 14. Hfe1 Be6 15. Rd5
Magnús eftir lét Anand að tefla
Berlínarvörnina í þriðja sinn í ein-
víginu. Sú leið að leika riddaranum
til d5 virðist ógnandi en veldur
svarti engum sérstökum erf-
iðleikum.
15. … g5 16. c4 Kb7 17. Kh2 a5
18. a4 Re7 19. g4 Rg6 20. Kg3 Be7
21. Rd2 Hhd8 22. Re4 Bf8 23. Ref6
b5!
Magnaður leikur sem almennt var
talinn uppfinning „tölvuheila“.
Magnus vék sér undan því að taka
þeirri áskorun sem í leiknum fólst,
t.d. 24. axb5 a4! með sterkri gagn-
sókn.
24. Bc3 bxa4 25. bxa4 Kc6 26. Kf3
Hdb8
Undirbýr að fórna skiptamun.
Svartur gat tryggt sér góða stöðu
með 26. … Be7 eða 26. … Bg7.
27. Ke4
27. … Hb4?
Tapleikurinn. Magnús var greini-
lega undir þessa fórn búinn. Betra
var 27. … b3 og staðan er í jafnvægi.
28. Bxb4 cxb4 29. Rh5 Kb7 30. f4
gxf4 31. Rhxf4 Rxf4 32. Rxf4!
Mun sterkara en 32. Kxf4 c6! 33.
Re3 Kb6 og svartur má vel við una.
32. … Bxc4 33. Hd7!
Eftir þetta verður stöðu svarts
ekki bjargað.
33. … Ha6 34. Rd5 Hc6 35. Hxf7
Bc5 36. Hxc7+! Hxc7 37. Rxc7
Kc6.
(Ekki gekk 37. … Kxc7 vegna 39.
Hc1! t.d. 39. … b3 40. Hxc4 b3 41.
Hxc5+ ásamt 42. Hb5 og vinnur b-
peðið.
38. Rb5! Bxb5 39. axb5 Kxb5 40.
e6 b3 41. Kd3 Be7 42. h4 a4 43. g5
hxg5 44. hxg5 a3 45. Kc3
– og þetta var síðasti leikur
heimsmeistaraeinvígisins. Svörtu
peðin komast ekki lengra og Anand
gafst upp.
Magnús vann lokaskákina og heldur
heimsmeistaratitlinum næstu tvö árin
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Heimsmeistari Magnus Carlsen vann lokaskákina og Wisvanathan Anand.
Um helgina hlaut
Íslandsstofa
verðlaun á hátíð
The Guardian og
Observer sem
haldin var í borg-
inni Agadir í
Marokkó. Ingvar
Örn Ingvarsson
tók á móti verð-
laununum fyrir
hönd Íslands-
stofu, en þau eru veitt árlega í
nokkrum flokkum á grunni les-
endakönnunar dagblaðsins The Gu-
ardian til þeirra aðila er vinna að
markaðssetningu áfangastaða. Síð-
ast hlaut Íslandsstofa sambærileg
verðlaun blaðsins árið 2012.
Um 90 gestir sóttu hátíðina heim
að þessu sinni og var það breska
sjónvarps- og ævintýrakonan Helen
Skelton sem sá um að veita hin eft-
irsóttu verðlaun.
Ísland var valið sem
uppáhaldsáfanga-
staður ferðalanga
Ingvar Örn Ingvars-
son og verðlaunin.