Morgunblaðið - 24.11.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2014
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Við vorum búin að hafa auga-stað á þessu húsnæði lengi,hér voru skrifstofur og viðbrutum niður veggi og
breyttum rýminu svo það hentaði
fyrir notalegan stað eins og við vild-
um hafa hann,“ segja hjónin Magnús
Magnússon og Sandra Guðmunds-
dóttir en þau opnuðu fyrir rúmu ári
lítið og vinalegt kaffihús úti á Granda
við Reykjavíkurhöfn sem heitir Cafe
Retro. „Við höfðum búið í Noregi í
nokkur ár og þegar við komum aftur
heim langaði okkur að opna kaffihús.
Við vorum orðin ágætlega sjóuð í
bransanum því áður en við fórum út
höfðum við rekið Kaffibúðina á
Laugavegi og síðar í Hamraborg í
Kópavogi, sem var bæði veitinga-
staður, kaffihús og verslun.“
Hakkabuffið langvinsælast
Sandra og Magnús segja frá-
bært að vera með kaffihús niðri við
bryggju, í nálægð við hafið. „Um-
hverfið hér er afar heillandi og vin-
sældir þessa svæðis hafa vaxið mjög
hratt, hér spretta upp nýir staðir,
hönnunarstaðir, veitingahús, mynd-
listarstofur, ísbúð og fleira. Að sjálf-
sögðu erum við með sjávarfang á
matseðlinum, þar sem við erum hér
við sjóinn, við bjóðum meðal annars
upp á rauðsprettu, rækjubrauð og
fiskisúpu, en við viljum hafa matseð-
ilinn einfaldan og sem mest heima-
gert. Við erum alltaf með súpu í há-
deginu en vinsælast af öllu á
matseðlinum er hakkabuffið okkar
með eggi. Fólk kemur hingað í hóp-
um til að gæða sér á því. Kjúklinga-
samlokan okkar hefur vakið mikla
lukku, ferðamaður sem hingað kom
skrifaði á Trip Advisor að það væri
best kjúklingasamloka sem hann
hefði fengið á ævi sinni. Sjávarrétt-
asúpan vekur ævinlega lukku og
heimabakaða brauðið sem er borið
fram með henni. Ég baka líka allar
kökurnar sem við seljum með kaffinu
og mamma hefur verið okkur innan-
handar að töfra fram ýmislegt góð-
gæti í eldhúsinu,“ segir Sandra og
bætir við að ferðamenn komi mikið til
þeirra, en ekki síður Íslendingar.
„Við erum með marga íslenska fasta-
gesti og þeir eru á öllum aldri, til
dæmis kemur níu manna fjölskylda
úr vesturbænum reglulega hingað á
Retró kaffi, en ættmóðirin í þeim
hópi er komin yfir nírætt. Hundur
fjölskyldunnar er alltaf með og hann
fær ævinlega sérstaka skál hér úti á
palli. Þetta finnst okkur sérlega
skemmtilegt og gefandi. Þessi per-
sónulega og heimilislega nálgun í
smæðinni,“ segir Sandra og bætir við
að margir tryggir viðskiptavinir séu í
hópi þeirra sem vinna í nágrenninu,
til dæmis fólkið í fyrirtækjunum fyrir
ofan þau í húsinu.
Handsöluð viðskipti
Kaffivélin sem þau nota á Retró
geymir sögu, hún kemur alla leið frá
Mónakó. „Við fengum hana þegar við
störtuðum kaffihúsinu á Laugavegi
fyrir margt löngu, ég pantaði hana
Heimabakað og
notalegheit á Retro
Nálægðin við hafið er það sem margir sækjast eftir sem setjast niður á kaffihús-
inu Retro úti á Granda, það er heillandi að horfa út á hafið og fylgjast með bát-
unum og lífinu á höfninni. Þau leggja mikið upp úr að hafa kaffið gott, matinn
heimilislegan og þjónustuna persónulega. Meira að segja hundar viðskiptavin-
anna fá skál út á pall þegar þeir koma með eigendum sínum.
Vertinn Magnús kann því vel að standa innan við borðið og búa til kaffi.
Notalegt Viðskiptavinir láta fara vel um sig, þessir sátu við tölvur sínar.
Maríuhænur eru óskaplega krútt-
legar og þessi náðist á mynd þar sem
hún fékk sér göngutúr á laufi ávaxta-
trés í Ísrael á dögunum.
Litlu dýrin litfögru
Maríubjalla fer
í göngutúr
Ég og líkami minn – erum við vinir?
Er sambandið gott eða áttu í bar-
áttu við … í stríði við …? Er lík-
aminn óvinurinn? Leyfirðu þér
framkomu við sjálfa/n þig sem þú
myndir seint bjóða elsku barninu
þínu, góðum gesti eða besta vin-
inum; „Þú þarft ekkert“ „Þú getur
ekki hætt ef þú byrjar að borða –
Yðar Ömurlegheit!“ „Nú dugir ekk-
ert nema hörkuátak“ „Þetta verður í
síðasta sinn sem þú færð … „ Ég
hata …“.
Af hverju komum við ekki svona
fram við aðra? Finnst okkur það
ósanngjarnt eða ruddalegt? Getur
verið að svona aðfarir hreinlega
virki ekki? Fer viðkomandi/líkaminn
í vörn eða uppgjöf. „Ég treysti þér
ekki, þú ferð illa með mig, það er al-
veg sama hvað ég geri, þér finnst
ekkert nógu gott“?
Veltum fyrir okkur merkingu
þess að „gefast upp og þá muni
ganga betur“. Á það stundum við?
Eins og þegar við erum að hamast
við að gera e-ð sem er ekki hægt?
T.d. að henda steini það hátt upp í
loftið að hann komi ekki niður aftur?
Sumir henda það hátt að þeir trúa
smástund að það virki. En bæði
reynslan og Newton kenndu okkur
að það gengur ekki upp. Kílóin hratt
af og svo … Stundum eins og að fá
grjótið í andlitið. Óttinn við skort
veldur græðgi, óttinn við græðgina
leiðir af sér boð og bönn og áfram-
haldandi skortstöðu.
Át stjórnast oft af öðrum tilfinn-
ingum en vinkonunum Svengd og
Seddu – kannski erum við frekar
reið, eða leið. Að borða eða borða
ekki er e.t.v. vakið af sjónáreitinu
„girnilegur matur“, eða hugsunum
eins og „bannað – ógeðslega fitandi“
„ég verð að borða minna“.
Ætlum við að elska okkur og lík-
amann bara þegar hann er orðinn
eitthvað; elskum við barnið okkar
nokkuð fyrr en það fer að brosa,
þegar það hættir að skríða og fer að
ganga, þegar það kann að lesa, eða
er orðið proffi í einhverju?!
Tengsl okkar við tilfinningar,
bæði líkama og sálar, eru oft rask-
aðar. Við getum verið illa læs, eða
næm á þarfir okkar og kenndir,
enda oft þrautþjálfuð í að þagga nið-
ur í þeim og hundsa.
Sjálfsvirðing og sátt eru lykil-
atriði. Þegar við friðmælumst við
okkur sjálf, lærum að virða tilfinn-
ingar og göngum í takt við þarfir
okkar og eðli fremur en að þver-
skallast við lögmálin, þá eru góðir
hlutir að gerast.
Það er ánægjulegt að fylgjast með
röskun færast nær jafnvæginu og
enska „dis“inu víkja sem forskeyti á
„order“. Það geta allir náð bata –
fyrsta skrefið er oft að leita hjálpar.
Það er alltaf til leið út.
Heilsustöðin sálfræði- og
ráðgjafarþjónusta, Skeifunni 11a,
Rvk. www.heilsustodin.is
Átröskun – er ég
minn besti vinur?
Hellisbúinn Hér er setið við gnægtaborð móður náttúru.
Heilsupistill
Heiðdís Sigurðardóttir
sálfræðingur
Öflug jurtablanda
IntestCare er bráðsnjöll blanda
sem verndar þarmana, örvar
meltingakerfið og hjálpar við
hreinsun ristilsins. Blandan
léttir á ristlinum, getur dregið
úr bólgum og komið jafnvægi
á meltingarkerfi líkamans.
Sléttari magi.
Inniheldur Turmeric
Nánari upplýsingar á www.heilsa.is
Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum
sem örvar
meltinguna