Morgunblaðið - 24.11.2014, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2014
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Mikið hefurveriðrætt og
ritað um eðli al-
þjóðasamfélags-
ins frá lokum
kalda stríðsins. Á einu auga-
bragði breyttist alþjóðakerfið
úr tvípóla heimi yfir í kerfi
þar sem Bandaríkin voru hið
eina sanna risaveldi, sem bar
höfuð og herðar yfir alla aðra,
og önnur stórveldi heimsins
hafa þurft að láta sér lynda að
búa við bandarískan frið.
Það þarf því varla að koma
á óvart að Rússar, sem um
skeið hafa tortryggt vestur-
veldin, og Kínverjar, sem
telja að auknum efnahags-
mætti sínum eigi að fylgja
stærra hlutverk á alþjóða-
sviði, komi sér nú saman um
aukið samstarf á hernaðar-
sviðinu, og taki jafnvel til við
sameiginlegar heræfingar,
sem augljóslega eru ætlaðar
sem skilaboð til Washington.
Í sérstakri yfirlýsingu Ser-
geis Shoigu, varnarmálaráð-
herra Rússlands, var meira
að segja sérstaklega tekið
fram að ríkin tvö hefðu
„áhyggjur af tilraunum
Bandaríkjamanna til að auka
hernaðarleg og pólitísk áhrif
sín á Asíu- og Kyrrahafs-
svæðinu.“
Raunar hefur slíkt sam-
starf nánast legið í loftinu um
skeið. Samskipti ríkjanna nú
eru meiri og betri
en þau hafa verið
frá því að það
kastaðist í kekki á
milli þeirra Maós
og Krjústjoffs í
upphafi sjöunda áratugar síð-
ustu aldar. Á vettvangi ör-
yggisráðsins kemst vart hníf-
urinn á milli þeirra, og
refsiaðgerðir vesturveldanna
gagnvart Rússum vegna
Úkraínudeilunnar hafa ýtt
undir frekari viðskipti Rússa
og Kínverja. Slíkt hentar Kín-
verjum líka, þar sem Obama
hefur ekki viljað hafa þá með í
fyrirhuguðu efnahags-
samstarfi sem Bandaríkin
hafa reynt að koma á með
öðrum ríkjum Kyrrahafsins.
Þessi samdráttur milli
tveggja ríkja, sem ekki una
stöðu sinni innan núverandi
heimsmyndar, hlýtur að valda
nokkrum ugg í Washington.
Saman hafa Rússar og Kín-
verjar nægan slagkraft til
þess að láta finna vel fyrir
sér, hvort sem það er í efna-
hagslegu eða hernaðarlegu
tilliti. Slettist ekki upp á vin-
skapinn að nýju gætu vest-
urveldin því átt erfitt með að
halda áhrifum sínum og
óbreyttu ástandi í alþjóða-
málum, ekki síst þegar haft er
í huga að stöðugt er þrýst á
um að draga úr útgjöldum til
varnarmála á Vesturlöndum.
Rússar og Kínverjar
mynda öxul gegn
Bandaríkjunum}
Frá Moskvu til Peking
David Camer-on, forsætis-
ráðherra Breta,
varð fyrir enn
einu áfallinu í lið-
inni viku, þegar
flokkur hans tapaði öðru
þingsæti yfir til Breska sjálf-
stæðisflokksins, UKIP, í
aukakosningum. Kosninga-
baráttan var harðari en geng-
ur og gerist og Cameron lagði
mikið undir, en náði þó aðeins
öðru sæti í áður öruggu vígi
Íhaldsflokksins.
UKIP hefur með sigri stað-
fest stöðu sína sem hinn mikli
friðarspillir breskra stjórn-
mála, því að sigur þeirra
byggðist ekki eingöngu á
„stolnum“ atkvæðum frá
íhaldsmönnum, heldur sóttu
þeir einnig mikið fylgi til
stuðningsmanna Verka-
mannaflokksins, sem lang-
þreyttir eru á Evrópustefnu
síns flokks.
Forsvarsmenn UKIP horfa
til næstu þingkosninga með
nokkurri tilhlökkun, en þeir
þurfa að gæta sín á því að
fagna ekki of snemma. Árang-
ur í aukaþing-
kosningum getur
verið viss vísbend-
ing um stöðu
mála, en þarf þó
ekki að segja neitt
um hvern leiðtoganna breskir
kjósendur telja hæfastan til
þess að sitja í Downingstræti
10. Íhaldsmenn eru þegar
farnir að blása út þau skila-
boð að hvert atkvæði greitt
UKIP sé atkvæði greitt Ed
Miliband, hinum óvinsæla
leiðtoga Verkamannaflokks-
ins, og keyrt verður hart á
þau skilaboð fram til kosning-
anna í maí næstkomandi.
En þótt aukaþingkosningar
lúti að sumu leyti öðrum lög-
málum en almennar þing-
kosningar eru úrslitin skýr
skilaboð til Camerons um að
núverandi Evrópustefna
Íhaldsmanna falli grasrót
flokksins ekki vel í geð. Hann
reynir að fara bil beggja en sú
stefna – eða stefnuleysi –
gæti orðið til þess að Verka-
mannaflokkurinn fái stjórn-
artaumana nánast af sjálfu
sér.
UKIP tekur
frá báðum stóru
flokkunum}
Friðarspillirinn
Þ
að er launfyndið þegar ákafir sölu-
menn rífa upp penna og garga í
fyrirlestrarkennslu í sölu-
mennsku: „Seljið mér þennan
penna.“ Úlfurinn á Wall Street
svokallaði, Jordan Belfort, sem Leonardo Di-
Caprio lék í kvikmynd um þann lúðulaka,
stundaði svona sölumennsku og kenndi öðr-
um hana; að það væri hægt að selja allt,
ágengni væri lykilatriðið.
Ég hef einhvern tímann setið undir svona
„kennslu“, ekki hjá Jordan Belfort að vísu, en
svo er þetta líka stef í bíómyndum sem sýna
eiga þessa ákveðnu gerð sölumanna í ein-
hverju samhengi svo þennan trylling hefur
maður séð oftar en einu sinni.
Vert er að taka fram að heiðvirðir sölu-
menn, sem flestir eru, eiga ekkert nema góð
orð skilið, það er minna um að þeir gangi hús úr húsi með
bækur og kassettur í ferðatösku, fyrir mörgum árum var
meira um það, en slíkt starf krefst úthalds og yfirleitt var
það dugnaðarfólkið sem drýgði tekjurnar umfram fullan
vinnudag sem stóð í því. Þá er ekkert grín að hringja á
kvöldin, í þau fáu númer sem eru enn skráð í símaskrá
sem númer sem má hringja í og reyna að selja örþreyttu
og úrillu fólki bækur og áskriftir. Það er líka aðeins fyrir
þá duglegu.
En ég er ekki að fjalla um þessa gerð sölumennsku
heldur þessa brjáluðu, yfirgangssömu og ókurteisu,
þessa þar sem sölumaðurinn les ekki í samskiptin, kann
ekki mörkin, hvað er við hæfi og hvenær er komið nóg og
veður áfram með offorsi. Og hún er engan veginn stund-
uð í sölusímtölum eða farandsölu heldur
bara í verslunum, hjá keðjum sem mala
gull.
Domino’s hefur fikrað sig inn á þessa
braut, með því að bjóða ískalt kók – ekki að
það sé ekki sjálfsagt að veitingastaðir bjóði
drykki með, algjörlega, en það eru þessi
áköfu lýsingaorð sem er skeytt framan við
það sem verið er að bjóða og gera mann, að
minnsta kosti undirritaða, fráhverfan. Lýs-
ingarorðið einhvern veginn afhjúpar ákaf-
ann í því að selja mér.
Í minni daglegu för í ákveðna verslun, þar
sem ég lagði nokkrar vörur á afgreiðslu-
borðið og hugðist greiða fyrir, var ég spurð
hvort ég vildi kaupa aðra vöru líka – alls
óskylda því sem ég var að kaupa. Já, hvort
það væri ekki tilvalið að fá sér ljúffengt
súkkulaðistykki af ákveðinni gerð í eftirrétt (ekki ókeyp-
is, fyrir upphæð sem hann tilgreindi).
Ég varð svo hissa, fannst þessi ágengni pínu ókurteis,
en lét gott heita. Þegar ég hafði lent í þessu í þrígang
fannst mér vissum vinalegum, heiðarlegum, heim-
ilislegum og ánægjulegum samskiptum, sem höfðu aldrei
einkennst af áreitni, við þessa verslun lokið. Ég hef held-
ur ekki tíma til að segja „nei, takk“ endalaust það sem
eftir er lífs míns. En kannski ætti maður bara að bjóða
eitthvað á móti; „Nei, takk, en má bjóða versluninni að
gefa mér afslátt?“ Bara smá greiði á móti greiða. Auðvit-
að er ekki við afgreiðslufólkið sjálft að sakast en versl-
unareigendur mættu endurskoða þessa rugluðu hug-
mynd sem einhver hærra settur fékk. julia@mbl.is
Júlía Margrét
Alexandersdóttir
Pistill
Vondar hugmyndir hærra settra
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
SVIÐSLJÓS
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Íslandsbanki kynnti á dögunumnýja tegund greiðslukorta-viðskipta, svokallaðar snerti-lausar greiðslur. Með þeim
geta notendur greitt fyrir vöru með
því að bera kortið upp að kortalesara
án snertingar.
Ekkert pin-númer
Við þessar breytingar verður út-
gáfu á Visa-greiðslukortum hætt hjá
Íslandsbanka og mun Mastercard al-
farið sjá um greiðslukortaviðskipti.
„Við tókum þá ákvörðun á síðasta ári
að fara í útboð og velja eitt kortafyr-
irtæki og einn vinnsluaðila. Master-
card varð fyrir valinu og Borgun mun
sjá um að vera bakland bankans í
vinnslunni,“ segir Sveinbjörn Snorri
Grétarsson, forstöðumaður ÍSB-
korta hjá Íslandsbanka. „Þessi tækni
er sérsniðin að þeim söluaðilum sem
óskað hafa eftir hraðari afgreiðslu.
Ísland er þegar orðið seðlalaust þjóð-
félag og því er kannski ekki eins mikil
þörf fyrir þetta hérna og sums staðar
annars staðar. En við sjáum að þetta
getur nýst mjög vel þar sem um er að
ræða lágar fjárhæðir, t.d. á sund-
stöðum, skyndibitastöðum, strætó,
kvikmyndahúsum og fleiri stöðum.
Hámarksúttekt er 4.200 krónur og þú
þarft ekki að setja inn pin-númerið ef
upphæðin er lægri en svo,“ segir
Sveinbjörn.
Undanfari símaviðskipta
Hann segir að þessi tækni hafi ver-
ið fyrir hendi í Bretlandi undanfarin
sjö ár en nú eigi fyrst að taka hana
upp á Íslandi. „Greiðslur með símum
eru það sem má flokka undir það allra
nýjasta. Nú er Apple að slá öll sölu-
met á nýja símanum og þeir eru byrj-
aðir að nota hann sem greiðslumiðil.
Hluti þeirra viðskipta fer í gegnum
kortarisana og hefur Apple samið við
þá alla. Bandaríkin eru þegar í mikl-
um prófunum á greiðslu með síma.
En áður en við getum flutt okkar við-
skipti yfir í símann beint ætlum við að
byrja á þessari leið þótt virknin sé í
grunnatriðum sú sama,“ segir Svein-
björn. Hann segir að tíðni snertil-
ausra færslna hafi tvöfaldast í Bret-
landi á þessu ári. „Það er sérstaklega
áberandi í strætóviðskiptum. Með
þessu nærðu að selja vöruna á meiri
hraða. Þetta hefur líka gefið góða
raun á lestarstöðvum og við sjálf-
sala,“ segir Sveinbjörn. Hann segir
öryggi tryggt með nýju kortunum.
„Örgjörvinn er samtengdur kortinu
og um leið og kortið er tilkynnt glatað
lokast snertilausa virknin um leið.
Þetta öryggi hefur verið margprófað
um allan heim,“ segir Sveinbjörn.
Allir viðskiptavinir fá ný kort og að
sögn Sveinbjörns munu þeir ekki
bera kostnað af því. Boðið verður upp
á þá nýbreytni að viðskiptavinir geta
sjálfir breytt PIN-númerinu sem
fylgir kortinu.
Leggja grunn undir
notkun símagreiðslna
Morgunblaðið/Ómar
Íslandsbanki Snertilausar greiðslur eru til þess gerðar að auka hraða í við-
skiptum. Öryggisins vegna getur hver greiðsla að hámarki verið 4.200 kr.
Að sögn Sveinbjörns hafa borist tugir fyrirspurna
þar sem viðskiptavinir óska eftir að fá upplýsingar
um það hvers vegna ekki verður hægt að nota
Visa-kort úr vöruborði bankans. „Þetta eru við-
skiptavinir sem óskað hafa eftir skýringu; bæði
viðskiptavinir sem eru ósáttir við ákvörðunina og
þeir sem einungis óska eftir upplýsingum,“ segir
Sveinbjörn. Íslandsbanki á rúman 60% hlut í Borg-
un en Sveinbjörn segir það ekki hafa haft áhrif
þegar ákvörðun var tekin um hvort Borgun eða
Valitor yrði fyrir valinu. „Við horfðum ekki bara á
útboðið út frá fjárhagslegum þáttum. Við horfðum
líka á þjónustustig, hver framtíðarsýn Mastercard væri varðandi
tæknilegu hliðina. En það er oft erfitt að meta huglæga þætti. Við
sem tókum þátt í þessari vinnu fengum óháðan aðila til að meta
hagkvæmnina þegar gögnin lágu fyrir. Í þessu tilviki fengum við end-
urskoðendafyrirtækið KPMG til að fara yfir þetta því við vildum
tryggja að eignarhlutur hjá Borgun myndi ekki trufla neitt við
ákvörðunina.“
Segir eignarhlut í Borgun
ekki hafa haft áhrif á útboð
TUGIR FYRIRSPURNA FRÁ VIÐSKIPTAVINUM
Sveinbjörn Snorri
Grétarsson