Morgunblaðið - 24.11.2014, Page 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Reyndu að fá næði í fallegu umhverfi
ef þú átt þess kost. Sættu þig við það. Frá-
bært að það skuli vera sannfærandi fólk í
kringum þig.
20. apríl - 20. maí
Naut Stundum verður bara að kýla á hlutina
en ekki bíða þess að þeirra tími sé kominn.
Það eina sem þú þarft að gera er að vera þú
sjálf/ur.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Lokaðu augunum og ímyndaðu þér
að þú sért þar sem þig langar til að vera.
Notaðu daginn og talaðu við foreldri eða
mikilvæga manneskju í lífi þínu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Besta vörnin gegn óvæntum við-
brögðum frá öðrum er að segja sem fæst í
dag. Sættu þig við ástand mála og kannski
fæðist snilldarhugmynd í ruglinu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Hið óvænta liggur í loftinu. Allt virðist
einhvern veginn of erfitt. Ef einhver reynist
ekki traustsins verður í dag tekur þú því sem
vísbendingu fyrir framtíðina.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert upp á kant við allt og alla
þessa dagana og þarft að forðast aðstæður
sem koma þér í ham. Talaðu aðeins við þann
sem þú treystir fullkomlega fyrir þínum mál-
um.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú átt ekki að hika við að segja þína
skoðun, hver sem í hlut á. Fólk þarf á skiln-
ingi að halda og það leitar hans hjá þér.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þegar þú stefnir að því að vinna
hjarta einhvers, ná sölu eða fá viðurkenningu
hentar ekki alltaf sama aðferð. Ekki ganga of
langt þótt þú viljir gjarnan styðja einhvern.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Hetjudáðir eru í eðli þínu.
Reyndu að sýna þroska og leita leiða til að
láta drauma þína rætast á sama tíma og þú
sinnir skyldum þínum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það færi best á því að þú héldir
þig til hlés um sinn. Viðkomandi verður
hugsanlega vinur þinn eða þá að þú lætur
heillast um stund, án þess að framhald verði
á.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Óvæntar aðstæður koma upp í
einkalífinu. Vertu kurteis en einnig kulda-
legur, burtséð frá því hvers konar tilfinningar
þú berð í brjósti.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Hóf er best á hverjum hlut og það á
líka við um það sem gert er í eigin þágu.
Gættu þess bara að halda utan um þína nán-
ustu eins og þeir halda utan um þig.
Ólafur Stefánsson skrifaðiskemmtilega limru á Leirinn á
föstudaginn kl. 11.21:
Ýmist með röngu’ eða réttu
menn reyna í pólitík fléttu.
Það er góðviðri’ í bæ
og það gefur á sæ,
en mengun á Melrakkasléttu.
Stundu síðar birtist „leiðrétting“:
Ýmist með röngu’ eða réttu
menn reyna í pólitík fléttu.
Svo er góðviðri’ í bæ
og gæftir á sæ,
en mengun á Melrakkasléttu.
Það er gaman að bera „leiðrétt-
inguna“ saman við upphaflega text-
ann, af því að hún lýsir vel hvernig
vísur breytast í huga höfundarins
þegar hann fer að tauta þær fyrir
munni sér og getur þá hvort tveggja
gerst, að upphaflegi textinn standi
eða standi ekki. Kannski vegna þess
að báðir eru jafngóðir eða þar um
bil!
Ekki fer hjá því að vísnasmiðir
spreyti sig af og til á sléttuböndum,
sem eru erfiðust rímnahátta. Pétur
Stefánsson orti:
Vekur hlátur. Aldrei er
illgjarn þessi maður.
Hrekur grátur. Sjaldan sér
sjálfum hossar glaður.
„Farinn í aðhald,“ skrifaði Skarp-
héðinn Ásbjörnsson í Leirinn og hélt
áfram:
Orða fallegt, hvergi hér
heimsku brallið krota.
Borða varla, meina mér
munað allan nota.
Á föstudaginn orti Pétur Stefáns-
son í Leirinn:
Mín er förin greið og góð,
gleði og sumarblíða.
Áfram geng ég ævislóð
alveg laus við kvíða.
Komin helgi aftur er,
eykst þá bros á trýni.
Nú er gott að gamna sér
og gutla ögn í víni.
Nú gat Skírnir Garðarsson ekki
setið á sér en sagði: „Súbarúinn er
orðinn svo ansi hreint drykkfelldur,
ég dreypi eðalvökvum úr Ríkinu
bæði á kælikerfi og rúðupissdunk-
inn, svínvirkar, en er stressandi. Bíll-
inn rásar til beggja hliða fyrir vikið,
sérlega til vinstri. Ég er kófsveittur.
Bjórinn þambar bifreið mín
bregð ég klút að enni.
Mungát góða og messuvín
í morgun gaf ég henni.“
Halldór Blöndal
halldorblonda@simnet.is
Vísnahorn
Mengun á Sléttu,
sléttubönd og helgarkvíði
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„EKKI RÍFAST VIÐ MIG. ÉG ER AÐ SEGJA
ÞÉR AÐ ÉG SÁ AUGUN HREYFAST.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fyrirgefa meira.
JÆJA, ÞAÐ ER MÁNUDAGUR, OG
ÞÚ VEIST HVAÐ ÞAÐ ÞÝÐIR...
EITTHVAÐ SLÆMT MUN
GERAST FYRR EÐA...
MÁN. MÁN.
MÁN.
AMLÓÐI ER AÐ VAXA SVO
HRATT ÚR GRASI, AÐ HANN
VERÐUR ORÐINN AÐ UNGLINGI
ÁÐUR EN VIÐ VITUM AF!!
ÉG MAN VEL EFTIR MÍNUM
TÁNINGSÁRUM...
...VIÐ MUNUM
ÖRUGGLEGA
VITA AF ÞVÍ!!
FÆÐINGARHEIMILI
Sé andrúmsloftið í samfélaginuóþvingað skapast frjór jarðvegur
og upp úr honum spretta góðar gróð-
urnálar. Auðvitað gerist ekkert af
sjálfu sér en þegar ræktunarstarfi
hafa verið skapaðar bærilegar að-
stæður fara góðir hlutir að gerast.
Þessu hefur Víkverji kynnst á bæj-
arrölti sínu í Reykjavík síðustu helg-
ar. Það ber alltaf eitthvað skemmti-
legt fyrir augu en fyrst og síðast er
nærandi fyrir sálina að fara út á með-
al fólks. Spranga um göturnar, hitta
mann og annan og tala um veðráttuna
og pólitíkina og öðlast viðkynningu af
ýmsum menningarstraumum. Já og
fregna af ólíkum aðstæðum og kjör-
um fólksins sem er, rétt eins og mað-
ur sjálfur, niðri í Kvos til að sýna sig
og sjá aðra.
x x x
Um þarsíðustu helgi var í Hörpunnimarkaður þar sem matarfram-
leiðendur víða af landinu kynntu af-
urðir sínar. Fjölmenni sótti þennan
viðburð og fólk gekk út klyfjað með
allskonar kruðerí. Þá var sömuleiðis
ljómandi ljúft síðastliðinn laugardag
að koma við í Ráðhúsinu á svonefndri
Bókamessu. Þar voru forleggjarar,
höfundar og annað andans fólk að
kynna verk sín, það er bækur sem
spanna alla breidd tilverunnar. Meist-
arakokkur lét malla í pottunum og
fylgdi ritúali uppskrifta sinna, kyn-
fræðingur var þarna með kver sitt um
líf og losta, leikkona las upp úr
bernskubók tengdamóður sinnar og
höfundur að vestan sagði frá skálmöld
á Skarðsströnd. Í hliðarsölum var les-
ið úr krakkabókum og þar sást svo
sannarlega blik í augum barnanna.
x x x
Þegar bókagleðinni lauk var fínt aðlíta inn í bakarí í Lækjargötu, fá
sér kaffi og rúnnstykki. Og þegar leið-
in lá aftur heim í úthverfið var nota-
legt að koma við í Laugardalslaug og
sulla í heitum pottum. Það er gæða-
stund að fara í sund, láta streituna
líða úr vöðvunum eftir erilsama daga
og taka sína 200 bringusundsmetra
og fara ferskur upp úr. Já, svona er
nú hægt að gera margt skemmtilegt
sér til dægradvalar í Reykjavík, í
borg þar sem mannlífið er litríkt og
bragurinn með besta móti.
víkverji@mbl.is
Víkverji
En öllum þeim sem tóku við honum
gaf hann rétt til að verða Guðs börn,
þeim sem trúa á nafn hans.
(Jóhannesarguðspjall 1:12)