Morgunblaðið - 24.11.2014, Qupperneq 32
VIÐTAL
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
„Ég er afskaplega ánægður með þær
undirtektir og umsagnir sem við höf-
um fengið. En á bak við þetta er auð-
vitað mikil vinna,“ segir Vilhjálmur
Sigurðarson matreiðslumaður í sam-
tali við Morgunblaðið. Hann rekur í
félagi við belgíska eiginkonu sína,
Joke Michiel, veitingastaðinn Souven-
ir í Leper í Belgíu. Staðurinn hefur að
undanförnu fengið mikla athygli belg-
ískra fjölmiðla og góða aðsókn. Hann
fékk á dögunum sína fyrstu opinberu
viðurkenningu – Gault Millau – upp-
götvun ársins 2014 í flæmska hluta
landsins. Það þykir frábær árangur
með veitingastað á innan við ári frá
opnun.
Vilhjálmur er fæddur og upptalinn
á Íslandi. Hann er 28 ára gamall.
Hann lærði til kokks á Grillinu á Hótel
Sögu en langaði að hasla sér völl er-
lendis. Hann dreif sig úr landi, fór
fyrst til Englands en endaði í Belgíu
fyrir næstum fimm árum.
Mikil áhersla á grænmeti
„Ég vann þar á veitingahúsi sem
heitir Hertog Jan þegar belgísk sjón-
varpsstöð gerði þátt um staðinn. Joke
var framleiðandi myndarinnar, þetta
leiddi til kynna sem enduðu með
hjónabandi,“ segir Vilhjálmur. „Í vor
eignuðumst við svo barn saman og er-
um ákaflega hamingjusöm.“
Í samstarfi við Joke fór Vilhjálmur
að þreifa fyrir sér um möguleika á að
eignast eigin veitingastað. Þau festu
kaup á Souvenir í Leper og opnuðu
staðinn 1. febrúar á þessu ári. Þar eru
sæti fyrir fjörutíu gesti. Leper er mið-
svæðis í helsta landbúnaðarhéraði
Belgíu.
„Matseðillinn hjá okkur er að miklu
leyti byggður upp í kringum græn-
meti. Ég á mjög gott samstarf við
bændurna hér í kring,“ segir Vil-
hjálmur. Ef hægt væri að tala um sér-
stöðu fælist hún í sýn hans sem út-
lendings á möguleika sem hráefnið í
nágrenninu skapar. Vilhjálmur kvaðst
einnig leggja áherslu á hófsama verð-
lagningu. Hjá honum kostar þriggja
rétta máltíð innan við 30 evrur. Fimm
manns vinna á staðnum auk þeirra
hjóna.
„Það hefur verið mikið um túrisma
hér í Leper að undanförnu vegna 100
árs afmælis heimsstyrjaldarinnar
fyrri. Hér var frægt bardagasvæði.
En það eru ekki túristarnir sem koma
til okkar heldur Belgar sem hafa
ánægju af góðum mat og leita uppi
góð veitingahús. Það er fólk sem býr
hér á svæðinu, svona í 50 til 150 kíló-
metra radíus kringum okkur, sem er
uppistaðan í okkar gestahópi,“ segir
Vilhjámur sem er mjög bjartsýnn á
framtíðina í veitingarekstrinum.
Þetta byggist á minni sýn
Íslenskur matreiðslumeistari með eigið veitingahús í Leper í Belgíu
Hlaut eftirsótta viðurkenningu eftir aðeins tæplega árs rekstur
Ljósmynd/Souvenir
Í eldhúsinu Vilhjálmur segir að það sé sýn hans á belgíska hráefnið og möguleika þess sem skapi sérstöðuna.
Ljósmynd/Souvenir
Saman Vilhjálmur og Joke, kona
hans, reka staðinn í sameiningu.
Ljósmynd/Heikki Verdurme
Gómsætt Stutt er í gott hráefni í
réttina sem eru á matseðlinum.
MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 328. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Líklega eitt stysta viðtal í 101 …
2. Skarst mikið í andliti
3. Brengluð sýn náð athyglinni
4. Í stutt pils og upp með brjóstin
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Á tónleikum í Háteigskirkju annað
kvöld frumflytur Hamrahlíðarkórinn
undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur
nýtt lag sem Atli Heimir Sveinsson
hefur samið fyrir kórinn, Rímnastæl-
ingar fyrir kór og þrjú klarinett. Það
er byggt á einu af Jónasarlögum
hans, Buxur, vesti, brók og skó.
Morgunblaðið/Kristinn
Hamrahlíðarkórinn
frumflytur nýtt lag
Samtímalista-
safnið New Mus-
eum í New York
hélt samsæti í lið-
inni viku þar sem
tveir ungir mynd-
listarmenn voru
heiðraðir, þau
Ragnar Kjartans-
son og Camille Henrot. Í ávarpi sínu
vitnaði Ragnar í ljóð eftir bandaríska
skáldið Frank O’Hara um sjálfskipaða
einsemd listamannsins. Eru sumir
gesta sagðir hafa þerrað tár af
hvarmi undir lestrinum.
Ragnar grætti gesti
samtímalistasafnsins
Heimildamyndin Salóme eftir Yrsu
Roca Fannberg vann á laugardaginn
til sinna fjórðu verðlauna, að þessu
sinni á l’Alvernativa-hátíðinni í
Barcelona. Yrsa átti afmæli á laug-
ardaginn og voru verðlaunin því
kærkomin afmælisgjöf.
Verðlaunin eru veitt fyr-
ir bestu kvikmyndina
sem er framleidd eða
meðframleidd á
Spáni. Estudi
Playtime í
Barcelona er
meðfram-
leiðandi.
Fjórðu verðlaun
Salóme í afmælisgjöf
Á þriðjudag Sunnan 10-15 m/s og rigning eða slydda, en úrkomu-
lítið norðaustanlands. Hiti 0 til 7 stig. Él vestantil um kvöldið.
Á miðvikudag Suðlæg átt 8-13 m/s og dálítil él.
VEÐUR
Miðvörðurinn Brynjar Gauti
Guðjónsson og miðjumað-
urinn Halldór Orri Björns-
son skrifa undir samninga
við Íslandsmeistara Stjörn-
unnar í vikunni. Halldór Orri
snýr aftur heim úr atvinnu-
mennsku í Svíþjóð en Brynj-
ar Gauti kemur frá ÍBV. Báð-
ir segjast þeir afar spenntir
fyrir því að ganga til liðs við
meistarana sem hafa þar
með fengið mikinn liðsstyrk
fyrir næsta tímabil. »1
Meistararnir fá
mikinn liðsstyrk
Barcelona-maðurinn Lionel Messi er
orðinn markahæsti leikmaður í sögu
spænsku 1. deildarinnar í knatt-
spyrnu eftir að hafa
skorað tvö mörk
gegn Sevilla um
helgina. Cristiano
Ronaldo skoraði
einnig tvö og er
kominn með
20 mörk á
met-
tíma.
»7
Messi og Ronaldo halda
áfram að bæta met
Framkonur eru enn með fullt hús
stiga eftir 10 leiki í Olís-deildinni í
handknattleik nú þegar vetrarfrí er
tekið við. „Þótt það séu ekki mikl-
ar mannabreytingar þá eru hell-
ings breytingar hjá okkur,“ segir
Sigurbjörg Jóhannsdóttir sem er
hæstánægð með störf þjálfarans
Stefáns Arnarsonar síðan hann
kom til liðsins í sumar. »2
Tilveran brosir
við Framkonum
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt 8-15 m/s víða rigning eða slydda
en skúrir eða él á Suður- og Vesturlandi nálægt hádegi. Léttir til
fyrir norðan og austan annað kvöld. Hiti yfirleitt 0 til 8 stig.