Morgunblaðið - 29.11.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Fyrsta félagsmiðstöðin í miðbæ Reykjavíkur, Spennistöðin, var formlega
tekin í notkun í gær. Opnun hennar markar tímamót því skortur var á slíku
rými við Austurbæjarskóla. Spennistöðin verður aðsetur félagsmiðstöðvar-
innar 100og1 og í framtíðinni verður hún félags- og menningarmiðstöð
miðborgarinnar. Fyrrverandi og núverandi nemendur skemmtu gestum og
gangandi með söng og dansi.
Menningarauki við miðbæ Reykjavíkur
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Opnunarhátíð Spennistöðvarinnar við Austurbæjarskóla
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Fjögur skemmtiferðaskip koma til Reykjavíkur-
hafnar í mars á næsta ári. Þetta er í fyrsta skipti
sem jafn mörg skemmtiferðaskip sigla til landsins
yfir vetrartímann. Ástæðan fyrir komu skipanna
er ferðir til að skoða sólmyrkvann sem verður 20.
mars 2015. Sólmyrkvinn mun sjást best norð-
vestan við Færeyjar. Þar geta farþegar dáðst að
sólmyrkvanum. Skipin leggja leið sína hingað,
ýmist fyrir eða eftir þennan einstaka atburð.
Tvö af skipunum munu stoppa yfir nótt. Hin tvö
stoppa yfir daginn. Þau munu liggja á Miðbakk-
anum og á Skarfabakka.
„Þetta er mjög óvanalegt og hefur aldrei gerst
áður að mig minnir. Sólmyrkvinn er sérstakur at-
burður,“ segir Ágúst Ágústsson, markaðsstjóri
Faxaflóahafna. Uppselt var í ferðirnar fyrir þó-
nokkru.
Ágúst segir alltaf töluverða áhættu að sigla yfir
Atlantshafið á þessum árstíma. Það geti verið
nokkuð slæmt í sjóinn og allra veðra von, eins og
við er að búast yfir vetrartímann.
Vetrarsiglingar skemmtiferðaskipa byrjuðu
fyrir nokkrum árum og hafa aukist ef eitthvað er,
segir Ágúst. Siglt er á veturna m.a. frá Bretlandi
til Kaupmannahafnar. Þá er einnig siglt meðfram
ströndum Noregs á veturna.
Fyrir árið 2015 er búið að bóka 106 skip. Það
eru ívið fleiri skip en árið áður en þá voru þau 92
talsins. Af þessum 106 skipum eru 24 skip sem eru
yfir nótt. Af þessum 106 eru 22 svokölluð land-
könnuðaskip. Farþegafjöldi þeirra er um 100 til
200. Þessi skip sigla hringinn í kringum landið og
er stoppað á nokkrum stöðum á landinu. Sum
stoppa á Höfn í Hornafirði og skoða farþegar m.a.
Jökulsárlón. Skipt er um farþega í Reykjavík.
„Ein af ástæðunum fyrir því að það er mögulegt
er gríðarlega gott samgöngunet til landsins með
flugi. Það er greinilega farið að segja til sín.“
Þessi tegund af skipum, landkönnuðaskip, segir
Ágúst að sé helsti vaxtarbroddurinn. Farþegarnir
sem koma í þessum ferðum eru hingað komnir
gagngert til að skoða landið, náttúruna og menn-
ingu. Með í för eru fyrirlesarar og leiðsögumenn.
Fjögur skemmtiferðaskip í mars
Sólmyrkvinn 25. mars 2015 aðdráttaraflið Koma hingað frá Færeyjum
Uppselt í ferðirnar Aldrei áður gerst Gæti verið vont í sjóinn
Morgunblaðið/Júlíus
Skemmtiferðaskip Sólvmyrkvinn aðdráttarafl.
„Stuðmenn eru afbragðsgóð hljóm-
sveit og ég hlakka til kvöldsins. En
því að kveðja Sjallann fylgir samt
tregi, svo margar skemmtilegar
stundir hef ég átt þar,“ segir Hel-
ena Eyjólfsdóttir söngkona.
Í kvöld skemmta Stuðmenn í
Sjallanum á Akureyri sem væri
ekki í frásögur færandi, nema að
þetta verður einn síðasti dansleik-
urinn í húsinu. Strax eftir áramót
verður hafist handa um að breyta
því í hótel. Í danshúsi Akureyringa
eru Stuðmenn á heimavelli, en
enginn þó meir en Helena, sem
söng þar með húshljómsveit Ingi-
mars Eydals og seinna Finns Ey-
dals, eiginmanns síns. „Minning-
arnar úr Sjallanum eru flestar
ljúfar,“ segir Helena sem reiknar
með taka lagið Strax í dag með
Stuðmönnum. Einnig lagið María
Ísabel, sem hún gerði frægt með
hljómsveit Ingimars Eydals.
„Það flykkjast alltaf allir út á
gólf og byrja að dansa þegar ég
syng það lag,“ segir Helena, sem á
Sjallasviðinu í kvöld verður að
sjálfsögðu með hristuna frægu,
sem hún hefur gjarnan í hendinni.
Og hvað það þarfaþing varðar
fléttast Helena og Stuðmenn sam-
an, því að kalla gripinn Hel-
enustokk er komið frá Agli Ólafs-
syni.
„Það var í sjónvarpsþætti endur
fyrir löngu sem Egill kom með
þetta. Ég blóðroðnaði fyrst, en síð-
an fannst mér þetta bara fyndið,“
segir Helena. Hún eignaðist stokk-
inn 1959 og hann hefur fylgt henni
æ síðan og er því eitt frægasta
hljóðfæri landsins. Því verður
margt sögulegt við skemmtunina í
Sjallanum í kvöld, húsi sem svo
margir hafa sterkar taugar til.
sbs@mbl.is »28
Mætir með Helenustokkinn
Ljósmynd/Óskar Þór Halldórsson
Helena Söngkonan ætlar að hrista
með Stuðmönnum nú í kvöld.
Svanasöngur
Stuðmanna í Sjall-
anum í kvöld
Veðurstofan sendi frá sér tilkynn-
ingu í gær vegna spár um mikla
rigningu á Vestur-, Suðvestur-, Suð-
ur- og Suðausturlandi í dag og fram
á aðfaranótt mánudags.
Búast má við mestri úrkomu í
kringum fjöll og jökla á þessum
svæðum og þar gæti sólarhrings-
úrkoma farið vel yfir 100 millimetra.
Spár gera einnig ráð fyrir að
hraðfara og djúp lægð nálgist landið
sunnan úr höfum á sunnudag með
vaxandi suðaustanátt og meðalvind-
hraða víða á bilinu 18-25 m/s síðdeg-
is. Á sunnudagskvöldið verður
lægðin á norðurleið skammt vestan
við landið en sunnan við hana er
mikill vindstrengur. Á sunnudags-
kvöldið og aðfaranótt mánudags
mun þessi strengur herja á landið.
Má búast við vestan og suðvestan
20-30 m/s á suðurhelmingi landsins
um kvöldið en norðantil aðfaranótt
mánudags. Meðalvindhraði gæti
farið yfir 28 m/s sem kallast ofsa-
veður. Vindhviður gætu náð yfir 50
m/s við fjöll.
Gríðarleg
úrkoma í
kortunum
100 millimetrar
gætu fallið við fjöll
Morgunblaðið/Ómar
Blautt Veðrið er að skipta um gír.
„Við vorum með fund í gær og það er
annar fundur boðaður í deilunni á
mánudag. Nú skoðum við okkar mál
um helgina,“ segir Sigurveig Péturs-
dóttir, formaður samninganefndar
lækna. Læknar munu ekki vera í
verkfalli í næstu viku en mánudag-
inn áttunda desember er fyrirhugað
annað verkfall sem Sigurveig segir
að nái til víðari hóps. „Sviðunum er
skipt í hópa og tveir og tveir hópar
munu fara í verkfall í einu, ekki eins
og áður þegar einn hópur var fyrri
part vikunnar og svo annar seinni
partinn.“ Tæplega 80% landsmanna
styðja kjarabaráttu lækna, sam-
kvæmt þjóðarpúlsi Gallups.
Skoða málin
yfir helgina
kynntu þér
málið!
SIÐMENNT
w w w . s i d m e n n t . i s
Mannvirðing
Siðmennt styður opið, víðsýnt
og fjölbreytt samfélag