Morgunblaðið - 29.11.2014, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 29.11.2014, Blaðsíða 68
LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 333. DAGUR ÁRSINS 2014 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Gert að hætta samstundis 2. „Bara steinhaldið kjafti“ 3. Meltingarlæknir birtir … 4. Var í annarlegu ástandi þegar …  258 lög bárust í Söngvakeppnina og hafa 12 verið valin til þátttöku. Keppnin verður sýnd í beinni útsend- ingu frá Háskólabíói þrjú laugardags- kvöld í röð, forkeppni fer fram 31. janúar og 7. febrúar og úrslitakeppn- in 14. febrúar. Á myndinni sjást sigur- vegarar síðustu keppni, Pollapönk. 258 lög send í Söngvakeppnina  Edda Heiðrún Backman opnar í dag kl. 15 sýn- inguna Mannslík- aminn í Gallery Bakaríi, Skóla- vörðustíg 40. Í til- efni sýningarinnar kemur út bók um verk Eddu sem ber titilinn Úr fórum mínum. Á sýn- ingunni Mannslíkaminn má sjá 25 verk eftir Eddu sem hafa ekki verið sýnd áður. Sýningin stendur til 13. desember. Edda opnar sýningu í Gallery Bakaríi  Listamennirnir sem standa að sýningarsalnum Anarkíu opna í dag kl. 15 sam- sýninguna „Mein- vill í Anarkíu“. 14 listamenn eiga verk á sýningunni, þ. á m. Aðalsteinn Eyþórsson, Ásta R. Ólafsdóttir, Bjarni Sigurbjörnsson, Elísabet Hákonardóttir, Finnbogi Helgason og Guðlaug Friðriksdóttir, Guðmunda Kristinsdóttir, Hanna Pálsdóttir og Helga Ástvaldsdóttir. 14 listamenn sýna á Meinvill í Anarkíu FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Allhvöss SA-átt og talsverð rigning, einkum SA-lands. Snýst í mun hægari vestanátt með dálitlum éljum vestantil á landinu og kólnar í veðri. Á sunnudag Vaxandi suðaustanátt, 18-25 m/s síðdegis og slydda eða rigning, talsverð úrkoma sunnan- og vestanlands. Hiti 0 til 7 stig, en vægt frost á norðanverðu landinu. Á mánudag Suðvestan 18-25 m/s um morguninn, en 13-20 síðdegis. Éljagangur, en létt- ir til NA- og A-lands. Kólnandi veður, hiti um og undir frostmarki þegar kemur fram á dag. Fjölnismenn fögnuðu öðrum sigri sín- um í Dominos-deild karla í körfu- knattleik í gærkvöldi þegar þeir lögðu lið Keflavíkur, 98:81, á heimavelli. Með sigrinum lyfti Fjölnir sér upp af botninum. Eftir þrjá tapleiki í röð lán- aðist leikmönnum Hauka að vinna í gærkvöldi þegar þeir lögðu Njarðvík- inga með eins stigs mun á heimavelli í hörkuleik. »2 Fjölnismenn fögnuðu sigri á Keflvíkingum Morgunblaðið fór á leik með Guðjóni Val Sigurðssyni, lands- liðsfyrirliða í handbolta, síð- asta sunnudagskvöld. Guðjón og samherjar hans í stórliði Barcelona tóku þá á móti þýska liðinu Flensburg í Meistaradeild Evrópu. Guðjón fór á kostum og skoraði níu mörk í tólf skotum. Er hann þegar orðinn fasta- maður í stjörnum prýddu liði Barca. » 2-3 Fylgst með leik hjá Guðjóni Val Ingvar sjötti markvörð- urinn í atvinnumennsku Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Svanur Jóhannesson bókbindari hef- ur gefið út bókina Prentsmiðjuein- tök, Prentsmiðjusaga Íslands, þar sem hann greinir frá útgáfum 130 prentsmiðja á Íslandi. Hann og Hlíf S. Arndal settu upp sýninguna „Prentsögu Íslands“ í bókasafninu í Hveragerði í haust og verður hún í Landsbókasafninu eftir áramót. Heimildavinna Svans vegna bók- arinnar hófst fyrir um ári. „Þetta var mikil vinna,“ segir hann en í bókinni gerir hann hverri prentsmiðju skil yfirleitt á hálfri til einni síðu. Bókin er skrýdd um 600 myndum af mönn- um sem tengjast prentsmiðjunum og bókum þeirra. „Ég byrja á dönsk- um útgáfum vegna þess að við létum prenta svo margar bækur í Dan- mörku á 19. öldinni,“ segir Svanur. Hann áréttar að þetta sé ekki saga allra prentsmiðja landsins, því ekki hafi tekist að fá bækur frá þeim öll- um. Auk þess hafi sumar prent- smiðjur ekki prentað bækur heldur blöð og verið stofnaðar til þess. Safnari og sýning „Um 1990 byrjaði ég af rælni að safna bókum frá 1850 til 1950 frá gömlu prentsmiðjunum og ætlaði að láta það nægja en söfnunaráráttan tók völdin,“ segir Svanur. Bækur hafa aldrei verið langt frá honum, en faðir hans var skáldið Jóhannes úr Kötlum. Hann segist nú einkum safna bókum sem Hafsteinn Guð- mundsson prentari hannaði, en hann var lengi prentsmiðjustjóri hjá Prentsmiðjunni Hólum og stofnaði síðar Bókaútgáfuna Þjóðsögu. Haf- steinn teiknaði og hannaði sjö bóka- flokka fyrir Mál og menningu, alls um 60 bækur, á árunum 1952 til 1960. Hann teiknaði ramma sem eru á titilblöðunum og enginn þeirra er eins. „Mér finnst handbragð hans mjög skemmtilegt,“ segir Svanur. Sýningin„Prentsaga Íslands“ verður aftur sett upp eftir áramót. „Með sýningunni reyni ég að ná yfir prentiðnaðinn í bókum,“ segir Svanur. Þar sýnir hann til dæmis ljósprentun af Gutenbergsbiblíu, elstu bókinni, í eigu Félags bóka- gerðarmanna, og rekur síðan út- gáfusöguna allt frá Hólum í Hjalta- dal. Hann segir að hann hafi fengið bækur lánaðar frá einkasöfnum og í sumum tilfellum hafi verið um ljós- prentun að ræða. „Það er erfitt að fá þessar gömu bækur því þær eru margar lokaðar inni á söfnum er- lendis,“ segir hann. Svanur bætir við að hann hafi meðal annars sýnt bæk- ur sem voru prentaðar í gömlu prentsmiðjunum í Skálholti, Leir- árgörðum, Beitistöðum, Hrappsey og Viðey auk eigin safns, þar sem elstu bækurnar séu frá því um 1800. Prentsmiðjur og bækurnar  Sýningin Prent- saga Íslands sett upp aftur 2015 Bókbindari Svanur Jóhannesson með bókina Prentsmiðjueintök. Önnur prentun er væntanleg. Prentsaga Íslands Merkileg rit eru á sýningunni. Íslenskir fótboltamarkverðir fara í at- vinnumennsku hver á fætur öðrum og Ingvar Jónsson úr Stjörnunni, besti leikmaður Íslandsmótsins 2014, samdi í gær við Start í Noregi. Í dag eru því sex íslenskir markverðir atvinnumenn, víðs vegar á Norður- löndum. Guðmundur Hreiðarsson, markmannsþjálfari landsliðsins, seg- ir byltingu hafa orðið í þjálfun mark- varða hérlendis síðasta áratuginn. Árangur landsliðsins og íslenskra félagsliða í Evrópukeppni hjálpi einnig mikið til. »4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.