Morgunblaðið - 29.11.2014, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 29.11.2014, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014 GÓÐGERÐASTOFNUN KENNETH COLE HEFUR Í 30 ÁR SKULBUNDIÐ SIG AÐ STYÐJA ÞÁ SEM ÞURFA AÐSTOÐ.                                     !" #" #$!" $$%$ !! "%% # " "%" % % &'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5   $ #" #! " $!% !!# $" # ! "#% %!% $   #"! #$#" $$#% !!% " # !$ "# % #" #!!% Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Líkur eru á því að Frakkland verði fyrsta landið sem sektað verði af ESB fyrir að mæta ekki kvöðum sam- bandsins um að- hald í ríkisrekstri. Framkvæmda- stjórn ESB úrskurðaði í gær að Frakkar hefðu gengið of skammt í því að koma ríkisfjármálum í lag. Stjórnvöld í Frakk- landi höfðu samþykkt að koma fjár- lagahalla undir 3% af landsframleiðslu á næsta ári, en nú eru horfur á að hall- inn verði 4,3%. ESB hefur gefið Frakk- landi þriggja mánaða frest til þess að gera bragarbót á þessu, sem og Ítalíu og Belgíu. Auknar líkur á að Frakk- land verði sektað af ESB ● Aflaverðmæti íslenskra skipa í ágúst var 7,1% meira en í ágúst árið áður. Aflaverðmæti botnfiskafla jókst hins vegar um 27%. Á 12 mánaða tímabili frá september 2013 til ágúst 2014 dróst aflaverðmæti íslenskra skipa saman um 9,7% miðað við sama tímabil ári fyrr. Aukning varð í verðmæti þorskafla um 9,1% og ýsuafla 4,4%, en á sama tíma varð samdráttur í flatfiski, skel- fiski og uppsjávarafla. Aflaverðmæti í ágúst jókst um 7,1% milli ára STUTTAR FRÉTTIR ... virði ríflega 15 milljarða króna, til tveggja ára. Skuldabréfið ber 3% fasta vexti og var fyrsta erlenda út- gáfa bankans í evrum. Bankarnir hafa sagt að þeir stefni að reglulegri skuldabréfagáfum á mörkuðum. Hins vegar er ljóst að þeir eru hikandi við að ráðast í stærri útgáfur miðað við þau hlutfallslega háu vaxtakjör sem þeim bjóðast á mörkuðum, á sama tíma og þeir sjá ekki fram á brýna þörf fyrir erlenda fjármögnun eins og sakir standa. Þannig greindi Morgunblaðið frá því í maí sl. að Arion banki hefði stefnt að því að ráðast í 300 milljóna evra skuldabréfaútgáfu til þriggja ára. Hætt var við útgáfuna þegar ljóst varð að þau kjör sem bankinn hafði upphaflega í huga – 300 punkta álag á Euribor-millibankavexti – væru ekki í boði við þáverandi markaðsaðstæð- ur. Aukin erlend samkeppni Fram kom í greiningu Deutsche bank að íslensku bankarnir hefðu náð talsverðum árangri síðustu ár í að endurskipuleggja reksturinn og draga úr kostnaði. Það væri hins veg- ar brýnt að ráðast í enn frekari hag- ræðingaraðgerðir, ekki síst samtímis þeirri þróun að bankar annars staðar á Norðurlöndum gera sig meira gild- andi í að veita útlán til stórra útflutn- ingsfyrirtækja á Íslandi. Morgun- blaðið greindi frá því 25. september sl. að norski stórbankinn DnB Nor muni fjármagna að stærstum hluta þær 40 milljarða fjárfestingar sem eru fyrirhugaðar hjá sjávarútvegs- fyrirtækjum í nýsmíði skipa. Fáar skuldabréfaútgáfur skýra hærri vaxtakjör Erlend fjármögnun » Í greiningu sem Deutsche Bank gerði fyrir SFF kemur fram að fáar skuldabréfaútgáf- ur íslensku bankanna skýri að hluta til hátt vaxtaálag miðað við aðra evrópska banka. » Íslensku bankarnir geta vænst þess að greiða helmingi hærri vexti – um 265 punkta álag yfir millibankavexti – fyrir fjármögnun í evrum saman- borið við írska banka. » Bankarnir eru hikandi við að ráðast í stórar útgáfur.  Með tíðari útgáfum ætti vaxtaálag á útgáfur bankanna að lækka tiltölulega hratt BAKSVIÐ Hörður Ægisson hordur@mbl.is Fáar og litlar skuldabréfaútgáfur ís- lensku bankanna á erlendum mörk- uðum fram til þessa skýra að hluta til að þau vaxtakjör sem þeim bjóðast um þessar mundir eru talsvert hærri en annarra evrópskra banka. Miðað við vaxtaálag á skuldabréfum sem írskir bankar hafa gefið út að und- anförnu, þá geta íslensku bankarnir vænst þess að þurfa að greiða helm- ingi hærri vexti, hyggist þeir sækja sér fjármögnun á erlendum lána- mörkuðum. Þetta var á meðal þess sem kom fram í greiningu Deutsche Bank um samkeppnishæfni íslenska banka- kerfisins í evrópsku samhengi, sem var kynnt í fyrradag á SFF-deginum á vegum Samtaka fjármálafyrir- tækja. Með tíðari skuldabréfaútgáf- um íslensku bankanna ættu þó að skapast forsendur fyrir því að vaxta- álagið geti lækkað tiltölulega hratt. Séríslenskar aðstæður Þrátt fyrir að fjárhagsstaða ís- lensku bankanna gefi til kynna að þeir eigi að geta sótt sér lánsfé í er- lendum gjaldeyri á betri kjörum, þá telur Deutsche Bank að vegna sér- íslenskra aðstæðna sem bankakerfið glímir við þá muni fjármögnunar- kostnaður þeirra verða hærri en ann- arra norrænna banka. Batnandi fjár- mögnunarkostnaður íslensku bankanna muni meðal annars haldast í hendur við hærri lánshæfiseinkunn, skýrara eignarhald á bönkunum og losun fjármagnshafta Íslandsbanki og Arion banki hafa gefið út skuldabréf á erlendum mörk- uðum frá árinu 2013 og hafa fjárfest- ar í útboðunum einkum verið frá Skandinavíu. Síðast gaf Íslandsbanki út bréf fyrir 100 milljónir evra, jafn- Hærri fjármögnunarkostnaður íslenska ríkisins og bankanna - punktar yfir millibankavöxtum Íslensku bankarnir Írsku bankarnir Írska ríkið Íslenska ríkið Evrópskir bankar með hæstu lánshæfiseinkunn Jan. 14 Apr. 14 Jún.14 Sep. 14Jan. 14 Apr. 14 Júl. 14 Okt. 14Feb. 14 Maí. 14 Agú. 14 Okt. 14Mar. 14 Jún. 14 Agú. 14 Nóv. 14 300 250 200 150 100 50 0 Heimild: Deutsche Bank Mikil hjöðnun verðbólgu gefur tilefni til frekari vaxtalækkana, segir Þor- steinn Víglundsson, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins (SA), í leiðara nýs fréttabréfs samtakanna. Þorsteinn bendir á að verðbólga undanfarna tólf mánuði hafi aðeins verið 1% og minni en undangengin 16 ár. Stöðugt verðlag sé mikið fagn- aðarefni og til marks um góðan ár- angur peningastefnu Seðlabankans og kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Þá hafi launahækkanir samrýmst verðstöðugleika að mestu og verð- bólga farið hjaðnandi allt frá gerð kjarasamninga fyrir nærri ári. ,,Kaupmáttur launa hefur á sama tíma aukist um nærri 5% að með- altali. Það er langt umfram það sem forsendur eru fyrir. Meðalaukning kaupmáttar hér á landi undanfarinn aldarfjórðung var 1,3% á ári, sem er bæði í samræmi við framleiðniþróun og það sem gengur og gerist í ná- grannalöndunum,“ segir Þorsteinn. Verðlækkun í október feli í sér að virkir raunstýrivextir Seðlabankans hafi hækkað umtalsvert og séu nú komnir yfir 4%. ,,Viðmið bankans hefur verið að raunvextir séu í kring- um 3% þegar efnahagslífið fer úr slaka í spennu, eins og um þessar mundir. Ljóst er því að umtalsvert svigrúm hefur skapast fyrir vaxta- lækkun.“ Hann telur mikilvægt að góður árangur í hagstjórn skili sér í lægri raunvöxtum. Því sé brýnt að Seðlabankinn lækki vexti frekar við næstu vaxtaákvörðun 10. desember næstkomandi. brynja@mbl.is Morgunblaðið/Ómar SA Þorsteinn Víglundsson segir raun- stýrivexti hafa hækkað verulega. Tilefni til frekari vaxtalækkana  Hjöðnun verð- bólgu skapar svig- rúm að mati SA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.