Morgunblaðið - 29.11.2014, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.11.2014, Blaðsíða 12
Ljósmynd/Garðabær/Birt með leyfi Eftirsótt Byggingarsvæðið er sunnan við knattspyrnuhúsið Fífuna. Fyrir utan áformaða uppbyggingu sem rakin er hér til hliðar hafa nokkrir aðilar leitað til Garðabæjar og spurst fyrir um skipulag á byggingarlandi við Reykjanesbraut norður af Akrahverfinu og austur af Arnarnesinu og einnig á svokölluðum Héðinsreit við Lyngás. Á þessum svæðum gæti risið nokkur hundruð manna byggð. Fyrr- nefnda landið er í eigu Arion banka og ATAFLs. Spurst fyrir um skipulagið SVÆÐI NORÐAN VIÐ AKRAHVERFIÐ 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014 FRÉTTASKÝRING Baldur Arnarson baldura@mbl.is Íbúafjöldi í Garðabæ gæti ríflega tvöfaldast á næstu 15 árum með uppbyggingu nýrra hverfa. Ríflega 14 þúsund manns bjuggu í Garðabæ um síðustu áramót og gæti þeim fjölgað í allt að 30 þúsund 2030. Gunnar Ein- arsson, bæjar- stjóri Garða- bæjar, segir að á næstu misserum verði tekin ákvörðun um hversu hratt bær- inn verður byggð- ur upp. Nýtt aðal- skipulag verður samþykkt innan tveggja ára. Niðurstaðan mun skera úr um hversu þétt verður byggt í sveitarfé- laginu. Íbúum Garðabæjar fjölgaði um 2.500 við sameiningu sveitar- félagsins við Álftanes 1. janúar 2012. Margfaldur sá fjöldi mun búa í hin- um nýjum hverfum. Munu nálgast 20.000 árið 2020 Hver sem niðurstaðan verður er ljóst að í lok þessa áratugar verður íbúafjöldinn farinn að nálgast 20.000 með uppbyggingu þeirra ríflega 1.120 íbúða sem flokkaðar eru í töfl- unni hér til hliðar, auk þeirrar upp- byggingar sem ekki hefur verið tek- in endanleg ákvörðum um. Fyrirhuguð uppbygging í Garða- bæ gæti farið fram á fimm svæðum. Í fyrsta lagi eru ráðgerðar allt að 1.600 íbúðaeiningar í Urriðaholti, sem þýðir byggð fyrir 4-5 þúsund manns. Í öðru lagi eru áformaðar 700 íbúðaeiningar í Hnoðraholti, norður af Urriðaholti, sem þýðir um 2 þúsund manna byggð. Í þriðja lagi hafa einkaaðilar haft hugmyndir um að byggja allt að 630 íbúðaeiningar í Setbergslandinu, vestur af Urriða- holti, sem ætti að þýða tæplega 2 þúsund manna byggð. Í fjórða lagi var á sínum tíma gert rammaskipu- lag með 8.000 manna byggð í Garða- holti á Álftanesi. Eftir sameiningu Garðabæjar og Álftaness er það skipulag komið á byrjunarreit. Í fimmta lagi eru áform um að þétta byggð á Álftanesi í Breiðu- mýri, Kirkjubrú og Sveinskoti með alls um 140 einingum. Alls gætu um 17 þúsund manns búið á þessum fimm svæðum. Að mati Gunnars er ekki æskilegt að íbúafjöldinn í Garðabæ fari mikið yfir 30.000 íbúa, enda sé það heppi- leg rekstrareining fyrir sveitarfélag. Hann segir skipulagsvinnuna unna í nokkrum þrepum. Uppsöfnuð þörf fyrir húsnæði „Nú er unnið að skipulagslýsingu. Það er fyrsti áfangi áður en farið er í eiginlega vinnu við aðalskipulag. Sú lýsing er kynnt íbúunum og þá koma fram ábendingar. Þegar aðal- skipulag liggur fyrir eru einstaka svæði rammaskipulögð og þá er ákveðið hversu margar einingar skulu vera. Síðan þegar ramma- skipulagið er samþykkt förum við í deiliskipulagsvinnu sem felur í sér smáatriði í útfærslum. Svona er að- alskipulagsvinnan,“ segir Gunnar. Hann segir mikilvægt að við gerð svæðisskipulags þurfi sveitarfélögin að tryggja að uppbygging umferðar- mannvirkja haldist í hendur við íbúafjölgun. „Það er mikil ásókn í að búa í bæjarfélaginu. Það er greinilegt að verktakar og aðrir meta stöðuna þannig að það hafi skapast upp- söfnuð þörf fyrir húsnæði. Hvort sú þörf skilar sér eða menn byggja of mikið og sitja þá uppi með tómt hús- næði á eftir að koma í ljós. Það gæti alveg eins orðið. Nú er rosalega mik- ið í pípunum og spurning hvort eftir- spurn sé eftir þessu öllu. Verktakar eru ekki að tala saman. Þeir eru hver á sínum báti. Það er eins með sveitarfélögin. Hvert sveitarfélag er á sínum bás. Þau hafa ekki talað nægilega mikið saman að mínu mati. Auðvitað þurfa menn að tala saman til að leysa til dæmis umferðar- málin,“ segir Gunnar sem telur það sérstakt við skipulagsmál í Garðabæ að þar sé mikið af landi í einkaeigu, t.d. Urriðaholtið, Setbergslandið og svæðið norðan við Akrahverfið. „Ef við hleypum uppbyggingu á þeim svæðum af stað er það á ábyrgð viðkomandi aðila hvað sölu íbúða varðar en ekki bæjarfélagsins. Yfirleitt er það þannig að þeir aðilar sem eiga þessi einkalönd vilja byggja meira og nýta landið eins og mögulegt er. Það má segja að það sé eðlileg nálgun. Það er hins vegar ekki víst að það henti sveitarfé- laginu,“ segir Gunnar. Stefnt að tvöföldun Garðabæjar  Íbúum sveitarfélagsins gæti fjölgað úr ríflega 14 þúsund um síðustu áramót í 30 þúsund árið 2030  Fimm byggingarsvæði í pípunum  Bæjarstjóri telur skorta á samráð sveitarfélaga um skipulag Fyrirhuguð byggingarsvæði í Garðabæ Urriðaholt Svæði norðan Akrahverfis Garðaholt Setbergsland Álftanes A) Breiðumýri B) Kirkjubrú C) Sveinskoti Friggjarreitur/ Lyngás Hnoðraholt Áætluð uppbygging íbúða í Garðabæ næstu ár* Sérbýli Fjölbýli 2015 2016 2017 2018 Síðar Sveinskot Kirkjubrú Breiðamýri Garðahraun Sjáland Lyngás Urðargrund Miðbær Akrar Urriðaholt Samtals 15 26 6 31 30 210 318 90 106 119 88 400 803 1.121 3 50 30 30 15 100 228 7 13 3 40 66 15 48 15 100 307 8 13 16 23 16 10 150 236 30 160 190 60 100 160 1.121 *Heimild: Bæjarstjórn Garðabæjar Gunnar Einarsson Auk þeirrar fyrirhuguðu upp- byggingar sem fjallað er um hér að ofan eru áform um að byggja í Vetrarmýri við Vífilsstaði. Að sögn Gunnars Einarssonar, bæjarstjóra Garðabæjar, hafa fjárfestar og þróunarfélög sýnt því áhuga að byggja þar upp heilsutengda starfsemi, svo sem skurðstofur. Hann segir ótíma- bært að ræða málið frekar á þessu stigi en lætur þess þó getið að fjárfestarnir hafi meðal ann- ars velt fyrir sér kostum þess að reisa hótel við Vífilsstaði í tengslum við þá heilsutengdu starfsemi sem þar kann að rísa. Landspítalinn hefur verið með rekstur á Vífilsstöðum frá því í fyrrahaust, nánar tiltekið rými fyrir 42 sjúklinga sem bíða á spítalanum eftir dvöl á hjúkr- unarheimili. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum er mikil þörf fyrir þessa þjónustu og fátt sem bendir til þess að ný hjúkr- unarheimili muni fylla skarðið. Rekstrinum verði því haldið áfram. Þá fengust þær upplýs- ingar að skurðstofur hefðu aldr- ei verið á Vífilsstöðum. Má ætla að fjárfestar hyggist því reisa skurðstofur við hlið Víf- ilsstaða og nýta gamla húsið fyr- ir reksturinn. Morgunblaðið/Eggert Vífilsstaðir Þegar Vífilsstaðahælið var opnað formlega 5. sept. 1910 var þar berklahæli og hjúkrunarheimili. Hælinu var svo breytt í spítala. Fjárfestar vilja reisa skurðstofur  Greina tækifæri á Vífilsstöðum Scalarider 74.990,- kr parið Hjól, sleði eða fjórhjól? Nítró sport / Kirkjulundi 17 210 Garðabæ / Sími 557 4848 www.nitro.is Við eigum jólagjafirnar! Hi-tex galli Jakki 49.980,- kr Buxur 39.980,- kr Kjálkahjálmur 34.990,- kr TILBOÐ Crosshjálmur 29.990,- kr RST hanskar 12.990,- kr Hleðslutæki frá 9.990,- kr Aðeins 1 kg. Castle sleðaskór 34.990,- kr Við erum á Vetrar líf 2014 sýningunni alla he lgina Opið í dag kl. 12-15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.