Morgunblaðið - 29.11.2014, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 29.11.2014, Blaðsíða 48
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014 ✝ Óskar KatóAðalsteinn Valtýsson fæddist í Stærra-Árskógi á Árskógsströnd í Eyjafirði 11. febr- úar 1922. Hann lést á Dalbæ, heimili aldraðra á Dalvík, 17. nóv- ember 2014. Foreldrar hans voru Rakel Jó- hanna Jóhannsdóttir frá Sel- árbakka, Árskógsströnd í Eyjafirði, f. 28. ágúst 1891, d. 17. nóvember 1958, og Valtýr Jónsson frá Hrafnagili í Þor- valdsdal í Eyjafirði, f. 28. sept- ember 1895, d. 29. október 1976. Systkini Katós: Marí- anna, f. 8. október 1920, d. 2. mars 1990, Katrín, f. 8. júní 1923, d. 16. október 2009, og Margrét, f. 16. febrúar 1926, d. 1. september 2012. Kató kvæntist 13.11. 1954 eftirlifandi eiginkonu sinni, Soffíu Guðmundsdóttur frá Böggvisstöðum á Dalvík, f. 16. maí 1931. Afkomendur þeirra eru: 1) Guðmundur Heiðar, f 27.7. 1955, maki Arna Gerður steinn, f. 6.6. 1964, maki Anna Hafdís Jóhannesdóttir, f. 7.8. 1963. Börn þeirra a) Harpa Rut Heimisdóttir, f. 7.1. 1982, sambýlismaður Björgvin Björgvinsson, f. 11.1. 1980, börn þeirra a) Maron, f. 14.3. 2008. b) Barri, f. 17.4. 2011. c)Viggó, f. 22.10. 2013. 2) Marteinn Ari, f. 10.10. 1995, d. 11.10. 1995. 3) Marta Soffía, f. 10.10. 1995, d. 29.1. 1996. 4) Sólrún Anna, f. 26.5. 1996, og 5) Sindri Már, f. 26.5. 1996. Þegar Kató var fjögurra ára flutti fjölskyldan að Selár- bakka. Hann ólst upp við sveitastörf og lauk barna- skólanámi. Hann tók bílpróf 1941 og eignaðist sinn fyrsta vörubíl, sem var Ford, árgerð 1929. Hann var í vinnu fyrir hernámsliðið en frá 1945 starf- aði hann á Dalvík. Kató starf- aði alls við vörubílaakstur í 55 ár og var mjög farsæll í því starfi. Sjúkraflutninga ann- aðist Kató áður en sjúkra- bifreið kom til Dalvíkur. Einn- ig var hann við leigubílaakstur og var því alltaf tilbúinn til starfa allan sólarhringinn og oft var vinnutíminn langur, jafnvel nokkrir sólarhringar í senn. Bílarnir voru hans líf og yndi og hann hugsaði vel um þá en ekki síður um fjölskyldu sína sem hann unni meira en öllu öðru. Hann verður jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju í dag, 29. nóvember 2014, og hefst at- höfnin kl. 13.30. Hafsteinsdóttir, f. 3.2. 1964. Börn þeirra a) Ingunn Hafdís Júlíus- dóttir, f. 18.4. 1987, sambýlis- maður hennar Eg- ill Örn Júlíusson, f. 9.8. 1983. Börn hennar a) Arna Dögg Kristjáns- dóttir, f. 22.12. 2006. b) Sunna Lind. f. 16.3. 2011. c) Viktoría Elfa, f. 13.11. 2013. 2) Haf- steinn Máni. f. 10.10. 1995, og 3) Heiðar Örn, f. 13.10. 1998. 2) Rakel María, f. 17.8. 1958, maki Gunnar Guðmundsson, f. 9.6. 1962. Börn þeirra a) Kristrún, f 27.1. 1989, sam- býlismaður Vilhjálmur Stein- grímsson, f. 14.4. 1985. b) Brynja Gunnarsdóttir, f 17.11. 1990, sambýlismaður Gunnar Atli Gunnarsson, f. 17.10. 1988, sonur hans er Þorgeir Atli, f. 21.11. 2007, og c) Auð- ur, f. 28.12. 1995. 3) Þóra Kristín, f. 1.10. 1959, maki Haukur Jónsson, f. 1.7. 1956. Börn þeirra a) Örn Kató, f. 29.1. 1982, og b) Arna Katrín, f. 1.3. 1990. 4) Óskar Aðal- Í dag er borinn til grafar hann pabbi minn, Kató eins og hann var alltaf kallaður. Hann var ættaður frá Selárbakka á Árskógsströnd og var honum alltaf hlýtt til æskustöðva sinna í sveitinni sem hann minntist oft á. Hugur pabba var allur þar sem tæki og tól komu við sögu enda lagði hann fyrir sig akstur bíla mjög snemma. Það var hans aðalatvinnugrein til ársins 1996 en þá var hann orð- inn 74 ára gamall og seldi það ár síðasta vörubíl sinn. Pabbi átti marga bíla um ævina sem hann minntist oft á og ræddi um en af öllum bílum sem hann átti þótti honum vænst um bíl sem hann eignaðist nýjan árið 1963, Chevrolet Bel Air sem hann notaði í leigubílaakstur. Bíllinn stóð alla tíð í bílskúrnum á heimili okkar á Hafnarbraut 8 og varð helst alltaf að vera inn- andyra. Bílarnir hans voru hon- um mikils virði og lét hann helst ekki sjá sig á þeim nema hreinum. Þegar pabbi hætti akstri, þá 74 ára, var það hon- um í raun mjög erfitt því akstur hafði verið hans líf og yndi í hartnær 55 ár. Hann var hins vegar mjög sáttur því hann komst stóráfallalaust í gegnum allan sinn feril sem bílstjóri og ræddi oft um það lán. Hann settist ekki í helgan stein eftir að hann hætti akstrinum. Hann átti skúr á sandinum sem var hans afdrep þar sem hann dvaldi langtímum saman í alls- kyns brasi. Hann leit oft við á steypustöðinni og í áhaldahúsi bæjarins en þar átti hann góða vini. Alltaf stóð hún mamma, Soffía Guðmundsdóttir, sem klettur með honum þó svo að hann væri lítið heima svo mán- uðum skipti. Þau áttu 60 ára brúðkaupsafmæli 13. nóvember síðastliðinn. Mamma og pabbi bjuggu á Hafnarbrautinni frá því að þau byggðu húsið 1959 þar til fyrir tæpum þremur ár- um. Á þessum tíma glímdi mamma við veikindi og var pabbi því einn heima á Hafn- arbrautinni og spjaraði sig vel þrátt fyrir að vera kominn und- ir nírætt. Ekki var hann sáttur í fyrstu þegar til tals kom að hann færi á Dalbæ á meðan mamma var að jafna sig. Hann taldi nú að hann hefði ekkert þangað að gera því slíkir staðir væru bara fyrir gamalt fólk og hann gæti nú alveg séð um sig sjálfur. Þarna var pabba rétt lýst. Skömmu síðar fór hann á Dalbæ og undi sér vel þó svo að hugur hans stefndi alltaf heim. Eitt vorum við pabbi alla tíð ósammála um en það var snjór- inn. Honum var ekki eins illa við neitt og snjó, nema kannski hænur og kýr. Snjór var ekkert nema óþverri í hans augum og hann skildi aldrei dálæti mitt á snjó. Honum var þó sama þótt þessi óþverri færi á þá staði sem not væru af. Pabbi var mikill fjölskyldumaður og var mikið í mun að við hefðum það sem best og voru barnabörnin hans honum afar mikilvæg, Hafnarbrautin var annað heim- ili barna okkar Höbbu, Hörpu, Sólrúnar og Sindra, sem áttu alltaf vísan stað þar. Sérstak- lega hún Harpa sem átti ein- stakt athvarf hjá þeim og metur umfram margt annað. Sérstakt samband var alla tíð á milli konunnar minnar, hennar Höbbu, og hans. Hún hafði alla tíð unun af því að gera það sem þurfti fyrir pabba sem hann kunni vel að meta. Að lokum þakka ég honum fyrir allar góðu stundirnar. Óskar Óskarsson. Þegar kemur að þessari kveðjustund áttum við systur okkur á því að við höfum svo sannarlega verið heppnar í líf- inu með afa eins og Kató. Á hverju sumri var okkur tekið opnum örmum á Hafnarbraut- inni – þar var okkar annað heimili og þar leið okkur alltaf vel. Þau sumur sem við dvöldum hjá afa og ömmu á Dalvíkinni meðan við bjuggum í Bandaríkj- unum munu alla tíð sitja fast í minni okkar sem stanslausir gleðitímar. Afi stjanaði við okk- ur og það eru sannkölluð for- réttindi að hafa fengið að þvæl- ast með honum um Dalvíkina og læra af honum allt það góða sem hann hafði upp á að bjóða og það var nú ekki lítið. Þær voru svo ófáar stund- irnar sem við sátum við eldhús- borðið með honum, hann í sín- um stól, segjandi sögur af sjálfum sér þegar hann var að keyra. Nú er komið að því að við höldum áfram að segja sög- urnar af einum skemmtilegasta manni sem við höfum þekkt og við tökum hann til fyrirmyndar í lífinu. Takk fyrir allt, elsku afi. Kristrún, Brynja og Auður. Í dag kveðjum við elskulega afa Kató, sem okkur þótti sér- staklega vænt um. Upp rifjast yndislegar minningar um þig og úr Hafnarbrautinni, fallega heimilinu ykkar Öbbu ömmu, jafnt frá yngri árum sem og nú í seinni tíð. Minningarnar ein- kennast af svo mikilli gleði, hlátri, alls kyns fróðleik, góð- mennsku, hjálpsemi, áti og dýr- mætri væntumþykju. Andinn sem kom yfir mann við það að koma inn í Hafnó var ólýsanleg- ur, hlýjan, vellíðan og öryggis- tilfinningin var einstök í húsinu ykkar. Oftar en ekki var fal- legur hljómur úr stofunni þegar maður hljóp upp stigann fullur af vellíðan þar sem þú sast við geislaspilarann og hlustaðir á uppáhaldslögin þín sem við kunnum svo vel að meta í dag. Hafnarbrautin stóð okkur systkinum alltaf opin og í minn- ingunni voru afi og amma alltaf heima. Þangað var ómetanlegt að geta farið einn síns liðs þeg- ar mamma og pabbi voru alltaf í vinnunni. Alltaf var manni tekið fagnandi og þaðan fór maður aldrei annað en saddur og sæll. Stundum drógust fleiri með í för til ömmu og afa og lífgaði það bara enn meira upp á hversdagsleikann í Hafnó. Ef við höfðum einhverra hluta vegna ekki komið í nokkra daga þá komstu oft arkandi á Bjarka- brautina til okkar með sendingu frá ömmu, þannig að það myndi nú styttast í að við kæmum næst. Oftar en ekki innihélt sendingin gómsætt ömmubrauð. Minningarnar um þig sem eru svo ljóslifandi í hugum okkar eru snyrtimennskan, húfurnar, Rayban sólgleraugun, Lettinn, hjólið og skúrinn á sandinum. Svo var það stólinn við ofninn, stóru hnífapörin, glasið upp á viftunni og djúpi diskurinn í skápnum, það var sko þín eign. Við systkinin sóttum alltaf mikið í návist þína og ömmu og hjá ykkur þótti okkur einstak- lega gott að vera. Það er okkur ómetanlegt að hafa fengið að vera svona mikið innan um þig og alla þína væntumþykju. Þú gafst alla tíð svo mikið af þér til okkar og er það okkur mikils virði. Við munum sakna þess að geta ekki bara droppað inn á Hafnarbrautina þegar okkur hentar eða til þín á Dalbæ eins og sl. tvö ár. Einnig munu litlu fallegu drengirnir mínir eins og þú kallaðir þá, þeir Maron, Barri og Viggó, sakna þess að geta kíkt á þig, þú hafðir svo gaman af strákalátunum í þeim. En við höldum áfram að kíkja við hjá elsku Öbbu ömmu sem er okkur alltaf svo mikilvæg. Hafðu þökk fyrir alla þína velvild og væntumþykju í okkar garð alla tíð. Þrír kossar til þín eins og þú gafst okkur alltaf ný- rakaður. Harpa Rut, Sólrún Anna og Sindri Már. Elsku afi Kató. Okkur systk- inin langar með nokkrum orðum að kveðja þig með þakklæti fyr- ir allar samverustundirnar og þá alúð sem þú sýndir okkur. Alla tíð hafðir þú mikinn áhuga á því að fylgjast með og styðja okkur í því sem við vorum að gera. Starf þitt sem bílstjóri stundaðir þú af lífi og sál. Varst bæði með vörubíl og leigubíl, svo vinnudagurinn var oft lang- ur. Margar minningar frá heim- sóknum okkar til ykkar ömmu í Hafnarbrautina á Dalvík snúast um ferðir í vörubílnum. Það var mikið sport að fá að skreppa með í löndun eða í ferðir um ná- grennið með einhvern varning. Þrátt fyrir að farmurinn væri af ýmsum toga var bíllinn alltaf fínpússaður, utan sem innan. Um leið og eitthvað sá á var það þrifið. Sama gilti um leigubílinn sem var gamall og tryggur. Hann hafði borið fólk vítt og breitt um landið og margar sög- ur voru til frá þeim ferðum. Á árum áður var hann einnig not- aður sem sjúkrabíll ef á þurfti að halda. Þegar starfsævi þinni lauk fundum við að þú saknaðir fyrri tíma og þess að vera á ferðinni eins og áður. Þá var gaman að spjalla um ferðalög sem farin voru fyrr á árum eftir lélegu vegakerfi og oft við erf- iðar aðstæður. Allt var þetta ljóslifandi í huga þínum og þú varst þakklátur fyrir að hafa komist áfallalítið í gegnum bíl- stjóraferilinn. Nú síðustu árin eftir að heilsan fór að gefa sig hafið þið amma átt gott athvarf á Dalbæ á Dalvík og notið þar frábærrar umhyggju starfs- fólksins. Fyrir það erum við þakklát. Við munum öll sakna þín og ekki síst amma sem var þín stoð og stytta í gegnum lífið. Blessuð sé minning þín. Örn Kató og Arna Katrín. Þegar ég læt hugann reika aftur í tímann til þess tíma þeg- ar við bjuggum í Þórshamri á Dalvík, þá eru minningarnar um Kató sem bjó í næsta húsi margar. Hann var ótrúlega þol- inmóður og viljugur að leyfa mér sem litlum pjakki og ung- lingi að þvælast í kringum sig hvenær sem mér datt það í hug. Það skipti litlu hvort hann var við vinnu í vörubílnum, skúrnum niðri á sandi, heima í garði eða hvort hann sat við eldhúsborðið heima hjá þeim Öbbu, alltaf var pláss fyrir mig líka. Það var svo gaman að hlusta á sögurnar hans og spjalla um allt milli himins og jarðar. Stundum horfðum við bara á sjónvarpið eða spiluðum Lönguvitleysu. Langavitleysa var spilið okkar og þegar ég spila það við mín börn reikar hugurinn í hvert skipti til Dalvíkur. Það er nota- legt að eiga svona minningar. Það var ómetanlegt að eiga svona góða nágranna, það var líka ómetanlegt fyrir mig að finna alla vináttuna og kærleik- ann. Elsku Abba og Kató ég bý að þessum minningum alla mína ævi og get aldrei þakkað þær til fulls. Hjalti Steinþórsson. Óskar Kató Aðalsteinn Valtýsson✝ Herdís GuðrúnJónsdóttir fæddist í Suður- Þingeyjarsýslu 6. september 1940. Hún lést 22. nóv- ember 2014. Herdís var dóttir hjónanna Jóns Jóns- sonar frá Fornastöð- um og Guðríðar Guðnadóttur frá Lundi. Herdís giftist Jóhannesi Geir Halldórssyni, f. 26.8.1940, hinn 21. október 1962 í Laufáskirkju. Hann er sonur hjónanna Halldórs Jóhannessonar frá Sveinbjarnargerði og Axelínu Geirsdóttur frá Veigastöðum. Börn Herdísar og Jóhannesar eru Halldór vélfræðingur, fæddur 31. ágúst 1962, og Ingibjörg hár- snyrtimeistari, fædd 13. febrúar 1965. Halldór er kvæntur E. Fjólu Þórhallsdóttur heilsunuddara. Börn þeirra eru Jóhannes Guðni, f. 8.7. 1990, Anna Kristín, f. 25.2. 1993, Þórhallur Forni, f. 27.12. 2002, og Herdís Lilja, f. 25.8. 2005. Ingibjörg er gift Helga Þór Ólafssyni matreiðslumeistara. Synir þeirra eru Jón Axel, f. 23.4. 1993, og Andri Geir, f. 8.4. 1995. Herdís ólst upp á Fornastöðum í Fnjóskadal. Hún missti móður sína þegar hún var á öðru aldursári, en ólst upp hjá Jóni föð- ur sínum og föður- systrum. Hún stund- aði nám við Lauga- skóla í Suður-Þing- eyjarsýslu og Húsmæðraskólann á Hallormsstað. Þau Herdís og Jó- hannes stofnuðu nýbýlið Vaðlafell úr landi Veigastaða á Svalbarðs- strönd árið 1965 og hafa búið þar síðan. Herdís vann ýmis störf sem ung kona, en í seinni tíð ritara- og bókhaldsstörf. Kvenfélag Sval- barðsstrandar naut einnig krafta hennar í ritara- og gjaldkerastörf- um. Ung greindist Herdís með liðagigt sem litaði ævi hennar alla. Seinni árin hlaut hún aðstoð frá Heimaþjónustu Akureyrar- bæjar, Heimahlynningu, skamm- tímadvöl Hlíðar og Ingimari sjúkraþjálfara. Útför Herdísar fer fram frá Svalbarðskirkju, Svalbarðs- strönd, í dag, 29. nóvember 2014, kl. 13.30. Elsku mamma mín. Það er komið að kveðjustund. Þú kvaddir heldur snöggt og ég var ekki tilbúin. Efst í huga mér nú er þakklæti fyrir allar góðu stundirnar og allt það góða sem þú hefur kennt mér í lífinu. Það eru forréttindi að búa ná- lægt foreldrum sínum og geta að- stoðað þau aðeins, fyrir utan að fátt er notalegra en að mæta í morgunkaffi í Vaðlafell á sunnu- dögum eða koma við með hund- inn á kvöldgöngu. Það hefur gefið mér óendanlega mikið og aldrei fór ég frá þér nema með þakklæti og Guðs blessun í farteskinu. Við fjölskyldan, og pabbi sem hefur hugsað svo vel um þig öll þessi ár, munum sakna þín mikið. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Hvíldu í friði, elsku mamma. Þín, Inga. Herdís Guðrún Jónsdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar ÚTFARARÞJÓNUSTA Vönduð og persónuleg þjónusta Sími: 551 7080 & 691 0919 ATHÖFNÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is Inger Steinsson IngerRósÓlafsdóttir Harpa Heimisdóttir Útfararstjóri Hrafnhildur Scheving Útfararþjónusta Kirkjulundur 19 • 210 Garðabær sími 842 0204 • www.harpautfor.is Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hinrik Valsson STOFNUÐ 1996 STOFNUÐ 1996
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.