Morgunblaðið - 29.11.2014, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 29.11.2014, Blaðsíða 58
58 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014 ÞÚFÆRÐ REEBOK ÆFINGAFATNAÐ &SKÓÍGÁP HJÓLA- OG SPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · SÍMI 5 200 200 · GAP.IS Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Viljirðu leita í einveruna skaltu láta það eftir þér og vertu ekkert að afsaka þig fyrir öðrum. Kannski sófa með hlébarða- munstri – hvernig líst þér á? 20. apríl - 20. maí  Naut Þú gætir fengið góðar hugmyndir að breytingum í vinnunni. Vertu víðsýnn og já- kvæður. Gefðu þér góðan tíma til undir- búnings, það margborgar sig alltaf. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það ríður á miklu að geta haldið uppi tjáskiptum við aðra. Töfrarnir búa í framtaki sem er bæði látlaust og einfalt. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Með örlítilli þolinmæði og smá hug- kvæmni átt þú að geta fellt alla hluta saman þannig að úr verði heil mynd. Nýtt blóð breytir gömlum aðstæðum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Hæfileikar þínir til að elska eru án takmarkana. Glæsilegt! Og nú leiðindin: þú verður að selja sköpunarverkið. Notaðu allt sem þú átt og þitt helsta stuðningslið. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Í stað þess að láta hjólin snúast skaltu teygja úr fótunum á næsta dívan. Þú ert svo fjölhæf persóna að þú átt í erf- iðleikum með að velja þér ævistarf. Listirnar heilla. 23. sept. - 22. okt.  Vog Maki þinn getur komið ykkur á óvart í dag. Hann er upptekinn af heimspeki, trú- málum, stjórnmálum og hverju sem tengist menntun og vill komast til botns í hlutunum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Viðvarandi jákvæðni í hugsun á eftir að færa þér allt sem þú óskar þér. Ef þú hefur ekki verið að nýta hæfileika þína er rétti tíminn til þess núna. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú þarft að sýna mikla lipurð til að komast í gegnum erfiðleika sem fylgja nýju verkefni. Flestir taka umhyggjusemi sem gefnum hlut en bakþankar sækja á þig í dag. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú hefur skuldbundið sjálfan þig til stórra hluta og ættir nú að segja stopp hvað þetta snertir. Nú gengur lífið hins vegar sinn vanagang. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Ef þú vilt setja smá kraft í ástar- lífið er rétta augnablikið núna. Mundu að seinna kann þig að vanta svör við einhverju svo taktu spyrjendunum vel. 19. feb. - 20. mars Fiskar Rafmagnsleysi, tölvubilanir og önnur skakkaföll tengd tækjabúnaði verða líklega í vinnunni í dag. Nú máttu verðlauna sjálfan þig svolítið. Fyrir viku voru tvær gátur eftirGuðmund Arnfinnsson. Þetta er sú fyrri: Stúlkukind, sem hefur hátt. Hún um gesti vita lætur. Farartæki fremur smátt. Fuglinn sá er naumast ætur. Hann svarar sér sjálfur: Bjalla nefnist blaðurskjóða. Bjalla um gesti vita lætur. Bifreið nett er bjallan góða. Bjalla er fugl, sem vart er ætur. Helgi R. Einarsson leysir gátuna þannig: Skellibjallan brosmild er, bjöllutónar kalla, bjalla á hjólum fjórum fer, fugl er veiðibjalla. Gáturnar voru tvær og er þetta hin síðari: Þetta á færi öngull er, einnig vopn á fjandmann borið. Fangi þennan fjötur ber. Fæst með þessu tóbak skorið. Helgi R. Einarsson á þessa lausn: Á línu og járn má fiskinn fá, á fjandmann járn er borið, járn er fjötur fanga á, rjól fékkst með járni skorið. Árni Blöndal svarar: Úr járni fæ ég króka og kengi, keðjur, lása, sverð og strengi. Sitja í járnum sakamenn. Sumir skera tóbak enn. Eða: Járnið má í margra hluti nota, meðal annars vopn og smíðatól, fanga með því fjötra má og rota, fjöldi manna sker í nefið rjól. Þannig leysir Guðmundur Arn- finnsson gátu sína: Járn hér öngul ég tel vera. Járn er sverð á fjandmann borið. Járn má fangi jafnan bera. Járni með er tóbak skorið Og bætir við: Loks er ferskeytla, hringhend, liðvana í öðru vísuorði, skv. Bragfræði Helga Sigurðssonar. Á gátum spreytt sig geta menn, giskað rétt og svarað. Járnið heitt ég hamra enn, hef ei neitt til sparað. Loks er hér gáta eftir Guðmund: Langbest súr hann líkar mér. Löturhægt sig hypjar brott. Nothæfur í aðgerð er. Áhald til að klappa þvott. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af blaðurskjóðu, rjóli og tóbaksjárni Í klípu „GÆTUM VIÐ GERT ÞETTA Á SKRIFSTOFUNNI ÞINNI? ÉG HATA AÐ RÆÐA VIÐSKIPTI Á VERKSTÆÐINU.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „SVO ÞAÐ ER ÚTSKÝRINGIN ÞÍN – ÞÚ VILT EKKI VERÐA OF SEINN.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ...að rækta tengslin milli feðga. LÍSA OG ÉG ÆTLUM Á SAFNIÐ OG KETTIR ERU EKKI LEYFÐIR ÞAÐ VAR OKKAR HUGMYND HVAR KVARTA ‘EG YFIR ÞVÍ HVERNIG SKATTPENINGUNUM MÍNUM ER VARIÐ? RÖÐIN ER Í ÞESSA ÁTT... Fólk í dag getur hvorki dregið and-ann né farið fram úr rúminu án þess að lesa sér til um það í þar til gerðri sjálfshjálparbók sem tröll- ríður öllu um þessar mundir.“ Þetta sagði einn lífsreyndur bókmennta- maður með meiru í sjónvarpsviðtali fyrir allnokkru. Sannleikur ummæl- anna er býsna mikill. x x x Sjálfur getur Víkverji varla hreyftsig spönn frá rassi öðruvísi en að lesa sér til um hvernig best sé að gera það. Sannleikurinn um hvernig eigi að haga lífinu, hvernig best sé að gera það, o.s.frv. Það hlýtur að liggja í einhverri bók. Bók sem er grafin lengst undir bókastaflanum eða er enn ylvolg beint úr prentsmiðjunni, líkt og mjólkin sem er sprautað beint úr spenanum. x x x Nýjasta bókin í þessum sjálfshjálp-arbókarflokk sem Víkverji hefur komið höndum yfir nefnist Núvitund, leitaðu inn á við eftir Chade-Meng Tan. Hann er tölvunarfræðingur hjá Google sem fann sig betur í lífinu með hugleiðslu og með hjálp núvit- undar. Einmitt að vera í núinu – helsta tískuorðið sem tröllríður öllu. Þessi maður hefur orðið nokkuð þekktur eftir að myndir af honum með frægu fólki hefur birst á alnet- inu, m.a. Barack Obama, forseta Bandaríkjanna. x x x Eins og sönnum Íslendingi sæmir,sem leggur sig eftir lestri slíkra sjálfshjálparbóka, hefur Víkverji drukkið í sig bókina. Ástæðan er ekki síst sú að Víkverji er að reyna að forðast í lengstu lög svokallaða jóla- frekju sem hefur hellst yfir hann á aðfangadag síðustu ár. x x x Jólafrekjan lýsir sér í því að skyndi-lega rennur upp fyrir honum að allt er ekki fullkomið. Þetta brýst út með gremju og Víkverja finnst hann vera ófullkominn og að klúðra jól- unum. En sem betur fer er Víkverji að sættast við ófullkomleikann í sjálf- um sér og ætlar ekki að bresta í grát á aðfangadag þó jóladúkurinn sé óhreinn, stellið brotið og jólasteikin, tja frekar þurr. víkverji@mbl.is Víkverji Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina. (Jóhannesarguðspjall 10:11)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.