Morgunblaðið - 29.11.2014, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 29.11.2014, Blaðsíða 56
56 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014 Oddur Friðrik Helgason hefur verið með ÆttfræðiþjónustunaORG frá árinu 1997. „Ég hef haft áhuga á ættfræði frá því aðég var barn. Ég missti föður minn þriggja ára og ólst upp hjá afa og ömmu og þar var alltaf spurt hverra manna maður var. Ég er að vinna með okkar menningarstarf, grasrótarstarf, fyrir þjóðina, sem á að vera í eigu hennar. Fólk getur kynnt sér starfsemi ORG með því að fara á Facebook-síðuna. Annars eru allir velkomnir í kaffi hér í Skerjafirði því starfsemin byggist mikið til á fólkinu sem kemur inn af götunni og við stærum okkur af því að reka fjölmenn- asta fyrirtæki landsins. Enginn er rekinn, við borgum engin laun og gerum enga starfslokasamninga en verðum að koma því í gang að hægt sé að fá borgað fyrir að vinna þetta starf. Þetta hefur alla tíð verið sjálfboðastarf en hefur lukkast með hjálp góðra manna.“ Oddur verður í vinnunni í dag eins og alla aðra daga „Ég er að undirbúa komu Ólafs Ragnars Grímssonar forseta sem býr hér beint á móti ættfræðiþjónustunni. Það var skylda ábúenda á Skildinganesi að ferja fyrirmenn úr Reykjavík yfir til Bessastaða. Af því að við er- um fyrirmenn hvor sínum megin við Skerjafjörðinn ætla ég að biðja kajakræðarana sem eru hérna fyrir utan að ferja ríkisstjórnina yfir til Bessastaða. Ég stakk upp á þessu við forsetann og hann tók vel í þetta.“ Kona Odds er Unnur Björg Pálsdóttir verkakona. Hann starfaði sem sjómaður í 30 ár og var mikið í hestamennsku. „Ég var vel inni í ættum hesta hér áður fyrr og átti sjálfur nokkra góða.“ Hann verður í viðtali í þættinum Svart og sykurlaust á Rás 2 í dag. Oddur Friðrik Helgason er 73 ára í dag Hjónin „Það er gott að eiga konu sem stendur á bak við sérvitringa eins og okkur Ómar Ragnarsson en konur okkar eru þremenningar.“ Vinnur alla daga Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Ágústa Jóhanna Jóhannesdóttir fagnar 50 ára afmæli sínu á morgun, 30. nóvember. Ágústa er gift Georg Magnússyni, á með honum börnin Jó- hannes, Arnar, Guðrúnu, Ágúst Jó- hann og Kötlu auk þess sem hún á þrjú barnabörn. Hún mun eyða afmæl- isdegi sínum með bráðskemmtilegri fjölskyldu sinni. Árnað heilla 50 ára Hafnarfirði Draupnir Eldjárn Ernuson Jóhannsson fæddist 22. nóvember 2013 kl. 21.42. Hann vó 2.160 g og var 46,5 cm langur. Foreldrar hans eru Erna Sigríður Gísladóttir og Jóhann Ingi Albertsson. Nýir borgarar G unnlaugur fæddist á Akranesi 29.11. 1974. Hann gekk í Grunda- skóla og stundaði nám við Fjölbrautaskóla Vesturlands: „Ég hef haft gríðar- legan áhuga á fjölmiðlum frá því ég var unglingur og ætlaði því til Bandaríkjanna í framhaldsnám sem tengist fjölmiðlum. En þar setti knattspyrnan strik í reikninginn. Ég skráði mig í stjórnmálafræði við HÍ, lauk ekki prófum en nældi mér þó í konuna mína í námsferð til Brussel á vegum stjórnmálafræðinnar.“ Knattspyrnuferillinn Gunnlaugur hefur verið viðloðandi knattspyrnu frá því hann man eftir sér: „Ég var þriggja ára þegar ég fylgdi pabba á knattspyrnuæfingar og ætlaði auðvitað að feta í fótspor hans. Ég byrjaði að æfa með meist- araflokki ÍA undir lok tímabilsins 1993 þegar liðið var á toppnum og trúlega eitt besta félagslið í sögu ís- lenskrar knattspyrnu. Ég náði fót- festu í liðinu 1995 og lék með því út tímabilið 1997.“ Gunnlaugur var síðan hjá Mother- well í Skotlandi skamma hríð, gerði samning við sænska liðið Örebro og Gunnlaugur Jónsson, knattspyrnuþj. og dagskrárgerðarm. - 40 ára Gunnlaugur og Kristín í Eyjum Hann fór alla leið til Brussel til að krækja í konuna og sér ekki eftir þeirri ferð. Fótbolti og fjölmiðlar Litið upp til stóra bróður Katrín Björk og Jón Breki, klár fyrir myndatöku. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Áratuga reynsla og framúrskarandi þjónusta Stórhöfða 37 | 110 Reykjavík | Sími 586 1900 | framrudur@simnet.is | bilrudur.is Opið: 8 :00 - 18 :00 mánud .– fimm tud., 8:00 - 1 7:00 fö stud, bílalakk frá þýska fyrirtækinu Ekki bara fyrir fagmenn líka fyrir þig Eigum einnig sprautukönnur, réttingahamra, einnota hanska og pensla. HÁGÆÐA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.