Morgunblaðið - 29.11.2014, Side 33
FRÉTTIR 33Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014
Smiðjuvegi 9, 200 Kópavogi ■ Sími 535 4300 ■ axis.is ■ Opið: mán. - fös. 9:00 - 18:00
Fataskápur
Hæð 2100 mm
Breidd 800 mm
Dýpt 600 mm
Tegund: Strúktúr eik
TIL Á LAGER
S KÁPATI LB OÐ
Verð58.900,-m. vsk.
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • sími 580 3900 • www.fastus.is • opið mán - fös 8.30 - 17.00
F
A
S
TU
S
_E
_4
5.
11
.1
4
Veit á vandaða lausn
20%
AFSLÁTTURÍ NÓVEMBER
Potturinn og pannan
í jólasteikinni
Hágæða stálpottar og pönnur fyrir þá sem eru metnaðar-
fullir í eldhúsinu. Má nota á allar gerðir af hellum, þ.m.t.
spanhellur. Mikið úrval af öllum stærðum og gerðum.
Þess má geta að pottarnir frá Swan eru mikið notaðir af
atvinnukokkum á helstu veitingastöðum landsins.
Aðalvísindaráðgjafi bresku ríkis-
stjórnarinnar varar við því að berg-
brot (e. fracking) gæti verið eins
hættulegt og tóbak og asbest. Hann
segir jafnframt að menn hafi verið of
fljótir á sér að tileinka sér þessa
nýju tækni sem gæti síðan reynst
hafa alvarleg áhrif á náttúruna og
heilsu fólks.
Þetta kemur fram í árlegri
skýrslu Mark Walport, aðalvísinda-
ráðgjafa ríkisstjórnar Davids Came-
ron. Í skýrslunni segir að sagan sé
full af dæmum um að menn hafi ver-
ið of bráðir að taka upp tækninýj-
ungar sem hafi síðar reynst hættu-
legar.
Getur mengað drykkjarvatn
Bergbrot fer þannig fram að
vatni, sandi og ýmsum efnum er
dælt ofan í leirsteinslög með miklum
þrýstingi. Þannig er bergið í kring-
um borleiðslurnar sprengt og gas
sem fast er inni í berginu losnar.
Breska stjórnin hefur lagt mikla
áherslu á gasvinnslu með þessari að-
ferð. Áhyggjur hafa þó vaknað um
að gasið sem losnar geti mengað
drykkjarvatn fólks, aukið umferð
stórvirkra vinnuvéla á vinnslusvæð-
unum, tekið fjármagn frá þróun
endurnýjanlegra orkugjafa og hrað-
að hnattrænni hlýnun.
Í skýrslu Walport er bergbroti
þannig líkt við eiturefnið asbest, tób-
ak og svefnlyfið thalidomide sem olli
fósturdauða hjá konum sem það not-
uðu. kjartan@mbl.is
Eins hættulegt og asbest
Varað við bergbroti í vísindaskýrslu í Bretlandi
Frans páfi fór í fyrstu heimsókn
sína til Tyrklands í gær, hvatti til
viðræðna milli múslíma og krist-
inna manna og aðgerða til að binda
enda á hryðjuverkastarfsemi ísl-
amskra öfgamanna. Recep Tayyip
Erdogan, forseti Tyrklands, tók á
móti páfa í nýrri og umdeildri for-
setahöll í grennd við Ankara og
varaði við vaxandi fordómum gagn-
vart íslam á Vesturlöndum. Ferð
páfa til Tyrklands er álitin próf-
steinn á tilraun hans til að byggja
brú milli ólíkra trúarbragða.
AFP
Páfi hvetur til viðræðna
milli múslíma og kristinna
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
David Cameron, forsætisráðherra
Bretlands, kynnti í gær ráðstafanir
sem Íhaldsflokkurinn hyggst gera á
næsta kjörtímabili til að stemma
stigu við fjölgun innflytjenda í land-
inu ef hann heldur völdunum í kom-
andi kosningum. Forsætisráðherr-
ann varaði leiðtoga Evrópusam-
bandsríkja við því að þeir kynnu að
stefna aðild Bretlands að samband-
inu í hættu ef þeir reyna að hindra
aðgerðir Íhaldsflokksins í innflytj-
endamálum.
Cameron sagði að fyrirhugaðar
aðgerðir krefðust breytinga á sátt-
málum Evrópusambandsins en
kvaðst vera fullviss um að samkomu-
lag næðist um þær.
Forsætisráðherrann hefur krafist
breytinga á tengslum Bretlands við
ESB og lofað að efna til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um aðildina að sam-
bandinu árið 2017 ef Íhaldsflokkur-
inn myndar nýja ríkisstjórn eftir
þingkosningarnar í maí á næsta ári.
Cameron hefur sagt að hann vilji að
Bretland verði áfram í Evrópusam-
bandinu en ekki tekið af skarið um
hvort hann ætli að beita sér fyrir því
að landið segi sig úr sambandinu ef
hann nær ekki fram kröfum sínum.
Hann sagði þegar hann skýrði frá
fyrirhuguðum aðgerðum Íhalds-
flokksins í ræðu í gær að ef ESB
„daufheyrðist við“ við kröfum
flokksins gæti hann „ekki útilokað
neitt“. Að sögn fréttavefjar breska
ríkisútvarpsins er þetta skýrasta vís-
bendingin til þessa um að Cameron
ljái máls á úrsögn úr Evrópusam-
bandinu ef deilan leysist ekki.
Vill skerða réttindi
innflytjenda
Cameron sagði að ef Íhalds-
flokkurinn yrði við völd eftir kosn-
ingarnar hygðist hann meðal annars
koma á þeirri breytingu að innflytj-
endur frá löndum Evrópska efna-
hagssvæðisins hefðu ekki rétt á
skattafsláttum og félagslegu hús-
næði í fjögur ár eftir að þeir flyttu
búferlum til Bretlands. Innflytjend-
urnir frá EES-löndum hefðu ekki
heldur rétt á bótum fyrir börn sem
búa utan Bretlands. Íhaldsflokkur-
inn hyggst einnig vísa innflytjendum
frá EES-löndum úr landi hálfu ári
eftir að þeir koma til Bretlands ef
þeir hafa ekki fengið atvinnu á þeim
tíma. Flokkurinn hyggst ennfremur
flýta brottvísun innflytjenda úr landi
ef þeir hafa verið dæmdir fyrir
glæpi. Hann ætlar að lengja gildis-
tíma banns við því að betlarar og
glæpamenn komi aftur til Bretlands
eftir að hafa verið vísað úr landi.
Gefur til kynna
að hann útiloki
ekki úrsögn
David Cameron krefst breytinga
á sáttmálum Evrópusambandsins
AFP
Ný stefna kynnt Cameron flytur
ræðu um innflytjendamál.
Vill ræða kröfurnar
» Talsmaður framkvæmda-
stjórnar ESB sagði að hún væri
tilbúin að ræða kröfur Came-
rons „rólega og vandvirknis-
lega“. „Við þurfum að athuga
hvað hægt er að gera án þess
að loka dyrunum.“
» Leiðtogar Verkamanna-
flokksins og Breska
sjálfstæðisflokksins (UKIP)
gagnrýndu tillögur Camerons,
sögðu stefnu hans í innflytj-
endamálum ótrúverðuga.