Morgunblaðið - 29.11.2014, Síða 37
UMRÆÐAN 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2014
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Plankaparket
í miklu úrvali
Burstað, lakkað, olíuborið, hand-
heflað, reykt, fasað, hvíttað...
hvernig vilt þú hafa þitt parket?
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Suðurlandsbraut 48 (bláu húsin í Faxafeni) - Sími 553 3450 - Vefverslun: www.spilavinir.is - sendumumallt land!
Kolbrún Anna Björnsdóttir, annar höfundur barnabókarinnar
Á puttanum með pabba, kemur og les upp úr bók sinni í
Spilavinum á laugardaginn kl. 13:00.
Á puttanum með pabba er sniðug og fjörug bók fyrir
börn á aldrinum 7–12 ára um íslensk-ítölsk ættuð
systkini sem lenda með föður sínum í þvílíku
ævintýri sem leiðir þau frá Sikiley til Egilstaða.
Bókin verður að sjálfsögðu til sölu með 20% afslætti
og tilvalið er fyrir fjölskylduna að koma, kynnast
nýjum höfundi og skemmtilegri bók.
laugardag kl. 13:00
Upplestur
20%
afsláttur
29. nóvember
Kolbrún Anna Björnsdóttir
Haustmót TaflfélagsReykjkavíkur hefurlöngum verið eitt af bestskipuðu reglulegu mót-
um hérlendis og er þá átt við mót
með fullum umhugsunartíma en
minna framboð er af slíkum mótum
nú en oft áður. Gamla góða kapp-
skákin stendur alltaf fyrir sínu og
vonandi heldur TR áfram að halda
haustmótið og Skákþing Reykjavík-
ur með hefðbundnum hætti. Haust-
móti TR lauk ekki alls fyrir löngu
með öruggum sigri Davíð Kjart-
anssonar sem hlaut 7 vinninga af níu
mögulegum í vel skipuðum A-flokki
mótsins. Þar sem Davíð er ekki fé-
lagsmaður í TR gengur sæmd-
arheitið „Skákmeistari TR 2014“ til
Þorvarðar Ólafssonar sem varð í 2.
– 3. sæti ásamt Þorsteini Þorsteins-
syni, gömlum TR-ingi sem und-
anfarið hefur teflt fyrir Taflfélag
Vestmannaeyja. Þeir hlutu báðir 6
vinninga af níu mögulegum.
Í B-flokki sigraði Spánverjinn
Damia Benet Menet með 7 vinninga
af níu mögulegum og í C-riðli var
Bárður Örn Birkisson hlutskarp-
astur með 8 vinninga af níu mögu-
legum. Í D-riðli gerði Ólafur Evert
Úlfsson sér lítið fyrir og vann allar
skákir sínar níu talsins og varð lang-
efstur.
Davíð Kjartansson hefur lengi
verið í fremstu röð íslenskra skák-
manna. Hann vann Skákþing
Reykjavíkur 2009 fyrir ofan Henrik
Danielssen og aftur þetta sama mót
2013 og hefur vart tölu á sigrum sín-
um á haustmóti TR eða á meist-
aramóti Hellis þar sem hann var
lengstum félagi. Hann varð tvisvar
Norðurlandameistari unglinga í sín-
um aldursflokki og Íslandsmeistari
skáksveita með Víkingasveitinni og
Helli. Þá hefur Davíð getið sér gott
orð sem skákkennari en starfar nú
sem hótelstjóri á ION luxury Ad-
ventury hotel að Nesjavöllum. Hann
hefur býsna frumlega skákstíl og er
ekki mikið fyrir að fara troðnar slóð-
ir.
Um helstu keppinautar hans þá
Þorvarð Ólafsson og Þorstein Þor-
steinsson er það segja áttu báðir
gott mót en þó var sigur Davíðs ein-
hvern veginn aldrei í hættu. Í einni
að lokaumferðunum mætti hann
reynsluboltanum Sævari Bjarnasyni
og hafði betur:
Haustmóti TR 2014; 7. umferð:
Sævar Bjarnason – Davíð Kjart-
ansson
Kóngsindversk vörn
1. d4 d6 2. e4 Rf6 3. f3 g6 4. c4
Bg7 5. Rc3 O-O 6. Be3 a5!?
Frekar óvenjulegur leikur, svart-
ur byggir taflið oftar upp með 6. ..
a6, – Hb8 o.s.frv.
7. Dd2 Rc6 8. Rge2 e5 9. d5 Rb4
10. Rc1 Rd7 11. a3 Ra6 12. b4 f5 13.
Bd3 Rf6 14. exf5?!
Ekkert lá á þessum uppskiptun.
Eftir 14. Rb3, sem hótar 15. b5, á
hvítur góða stöðu.
14. … gxf5 15. Hb1 axb4 16. axb4
e4!
Setur af stað hrinu snarpra peðs-
leikja sem tryggja frumkvæði
svarts.
17. Be2 exf3 18. gxf3 f4!19. Bf2
Bf5 20. Hb3 Rd7 21. Rb5 Re5 22.
Rd4 Bd7 23. Re6?
Ótímabær innrás riddarans. Hvít-
ur gat leikið 23. O-O en hefr senni-
lega óttast 23. … Bh3 sem má svara
með 24. Kh1 Bxf1 25. Bxf1 og þó
hvítur sé skiptamun undir er staðan
býsna vænleg, öflugur riddari á leið
til e6.
23. … Bxe6 24. dxe6 De7 25. O-O
Kh8 26. Kh1 Dxe6 27. Dc2 Rb8 28.
De4 c6 29. Bd3 Dh3 30. Bd4 Rbd7
31. De2 Hae8 32. Hg1 Rf6 33. Bb1
Rh5 34. Bf2 Bf6
Bætir sífellt við sóknarmáttinn
kóngsmegin.
35. Dc2 Hf7 36. Hg2 Hg8 37.
Hxg8 Kxg8 38. De2 Hg7 39. Be1
Þessi biskup reynir að fremsta
megni að verja kógsstyðuna en með
næsta leik sínum ryður svartur hon-
um úr vegi.
39. … Bh4! 40. Hb2 Bxe1
- og Sævar gafst upp enda staðan
hrunin.
Davíð Kjartansson
sigraði á Haustmóti TR
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Öruggur sigur Davíð Kjartansson
- með morgunkaffinu
Kokkalandslið Ís-
lands hlaut gull-
verðlaun í báðum
greinunum sem það
keppti í í heims-
meistrarakeppninni
í matreiðslu sem
fram fór í Lúxem-
borg, þ.e. fyrir heita
máltíð og fyrir kalda
borðið. Þetta er frá-
bær árangur hjá lið-
inu, enda hefur það
æft stíft síðustu 18
mánuði. Til ham-
ingju.
Elín.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Gullverðlaun
Matreiðslumenn Matur verður að hafa sjónrænt gildi ekki
síður en hæfni til að bræða bragðlaukana.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki
greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.