Straumhvörf - 15.03.1943, Side 27

Straumhvörf - 15.03.1943, Side 27
STRAUMHV ÖRF 57 BRODDI JÓHANNESSON: Heimili og þjóðfélag Framh. 3. Friðhelgi heimilisins. Spjöll á móðurmálinu geta verið með ýmsu móti, en ein tegund þeirra er öðrum geigvænlegri. Hún er fólg- in í því, að hugtök glatast, þó að tákn þeirra, orðin, varðveitist óbjög- uð. Þessi málspjöll eru því geigvæn- legri, sem þau eru hinum torsærri. Menn brestur oft drengskap til að játa skilningsleysi sitt á mikilvægum hugtökum og notkun merkingar- lausra orða. Hispursleysi barnsins sá, að keisarinn var klæðlaus, en stund- um þarf einnig hispursleysi til að sjá, að klæðin eru keisaralaus. Mörgum kynni að hnykkja ónotalega við, ef sú fullyrðing væri borin fram, að hugtak okkar, friðhelgi heimilisins, væri ekki lengur til nema sem hljóm- fagurt orð. Hvert er nú inntak orð- anna: Friður, helgi, heimili? Það er, því miður, ekki lengur sýn draum- lynds skálds, að „bylgjan sé blóðug um sólarlag", úthöfin eru lituð mannablóði, þyrstar auðnir Afríku drekka það, skógar Asíu nærast á því, og það bræðir jökla Noregs og gaddinn á sléttum Rússlands. En norður við heimsskaut leikum við leik okkar „með hin drepandi orð“. Þar er engin helgi svo mikil, að hún brynji gegn þeim, engin stofnun veit- ir grið né nýtur þeirra, en þar eru engir vargar í véum sem véin eru engin. Þar eru aðeins vargar. Þannig er um friðinn, þannig er um helgina,. og svo gæti farið, ef líkt stefnir og nú, að brátt yrðu leifar heimilisins einnig horfnar. En þeir, er vel vita, munu benda á, að stjórnarskrá ís- lenzka ríkisins tryggi friðhelgi heim- ilisins, og ekki alls fyrir löngu lýstu sum helztu blöð landsins yfir því, að friðhelgi heimilisins hafi verið bjarg- að. En töframáttur ritaðs orðs er löngu horfinn, því miður einnig, þó að það sé ritað í sjálfa stjórnarskrána, svo sem ung dæmi sanna. Daglegt líf, en ekki pappírinn, á að skapa og vernda vé okkar, og þá fyrst getum við talið, að heimilið sé friðheilagt, ef það nýtur þeirrar virðingar og að- stöðu, sem sérhverri þjóðmenningu er nauðsynleg. í kafla þeim eftir próf. McDougall, er birtist í upphafi þessa greina- flokks, kom fram sú skoðun, að heim- ilið sé ein mikilvægasta stofnun þjóð- félagsins og eitt helgasta vé þess. En þá mun sú spurning vakna, hver séu helztu auðkenni fullgilds heimilis. Ég mun ekki bera fram neina ákveðna skilgreiningu á því, en minni aðeins á þrjú atriði: Siðferðilega ábyrgðar- kennd foreldranna gagnvart börnun- um, samvistir foreldra og barna og sæmileg efnaleg kjör. Það skal þó þegar tekið fram, að heimili geta ver-

x

Straumhvörf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumhvörf
https://timarit.is/publication/1092

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.