Fréttablaðið - 16.02.2013, Side 6
16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
N R HYUNDAI
KEMUR VART
5 RA BYRGÐ - TAKMARKAÐUR AKSTUR
Fáir bílaframleiðendur treysta bílum sínum jafnvel og
Hyundai sem býður 5 ára ábyrgð og ótakmarkaðan akstur
með öllum nýjum Hyundai bílum.
Opnunartími Hyundai Kauptúni 1(Beint á móti IKEA)
Opið frá kl. 07.45–18.00 virka daga og 10.00–16.00 á laugardögum.
ÓKEYPIS LÉTTSKOÐUN fyrir Hyundai viðskiptavini.
Viðskiptavinir Hyundai geta komið með bílinn sinn hvenær
sem er í Léttskoðun þeim að kostnaðarlausu.
Kaupt ni 1 - 210 Garðabæ
575 1200 - www.hyundai.is
www.facebook.com/hyundai.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
10
5
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
5
13
Hyundai Santa Fe Comfort - Jeppi ársins 2013
Comfort 2,2 dísil, sjálfskiptur. Verð: 7.650 þús. kr.
Eyðsla 6,6 l/100 km.*
Hyundai i30 Classic
1,4 dísil, beinskiptur. Verð: 3.550 þús. kr.
Eyðsla 4,1 l/100 km.*
Hyundai i20
1,1 dísil, beinskiptur. Verð: 2.790 þús. kr.
Eyðsla 3,8 l/100 km.*
Sparneytinn
d siljeppi!
Sparneytinn
d silb ll!
Sparneytinn
d silb ll!
*
M
ið
as
t
vi
ð
bl
an
da
ða
n
ak
st
ur
s
am
kv
æ
m
t
fr
am
le
ið
an
da
ATVINNA Alls var tilkynnt um
1.322 vinnuslys til Vinnueftir-
litsins árið 2011 og þrjú dauðs-
föll vegna vinnuslysa. Árið 2007
voru tilkynningarnar um vinnu-
slys 1.919. Útköllin árið 2011 voru
53-60 prósent af því sem þau voru
2007-2008. Munurinn skýrist helst
af miklum samdrætti í byggingar-
iðnaði, að því er segir í ársskýrslu
Vinnueftirlitsins.
Þar kemur einnig fram að
heildar fjöldi skoðana og heim-
sókna í fyrirtæki árið 2011 hafi
dregist saman um 21 prósent
miðað við árið á undan. Eftirlits-
mönnum í fyrirtækjaeftirliti hefur
fækkað um þriðjung á síðustu
þremur árum vegna sparnaðar.
Slysin sem tilkynnt eru til
Vinnueftirlitsins eru hins vegar
aðeins brot af þeim fjölda vinnu-
slysa sem tilkynntue er til Slysa-
skrár Íslands en þau voru 5.386
árið 2011. Árið 2007 voru þau 7.297.
„Slysin sem tilkynnt eru til
Vinnueftirlitsins eru þau sem
valda fjarveru í að minnsta kosti
einn dag. Ef fólk er ekki frá vinnu
vegna slyss á vinnustað er tilkynnt
um slysið til heilbrigðiskerfisins,
það er slysaskrárinnar,“ segir
Gísli Níls Einarsson, sérfræðing-
ur í forvörnum hjá VÍS.
Hann segir að stjórnendur fyr-
irtækja eigi að horfa fram á við í
öryggismálum en ekki í baksýnis-
spegilinn. Þeir þurfi að greina
hætturnar í vinnuumhverfi og
starfsemi í tíma áður en slys verð-
ur. Gísli Níls kveðst kalla eftir
annarri sýn í þessu samhengi.
„Stjórnendum ber að skipu-
leggja öryggismálin með fyrir-
byggjandi aðgerðir í huga en ekki
Færri slasast við
störf eftir hrun
Tilkynnt vinnuslys sem leiddu til fjarveru frá vinnu voru rúmlega 1.300 árið 2011.
Slysum fækkað um þriðjung frá hruni. Helsta skýringin samdráttur í byggingar-
iðnaði. Eftirlitsmönnum fækkað vegna sparnaðar. Auknar forvarnir nauðsynlegar.
Högg Fall á jafnsléttu Fall af hærri stað Hvass, beittur hlutur
2.004 1.533 1.083 950
HEIMILD: VINNUEFTIRLITIÐ
HELSTU ORSAKIR VINNUSLYSA 2007 TIL 2011
ATVINNUMÁL Yfirlýsing um samstarf
ríkisins við Norðurþing, Hafnarsjóð
Norðurþings og þýska iðnfyrirtækið
PCC vegna áforma um uppbyggingu
kísilvers á Bakka við Húsavík var
undir rituð í gær. Einnig var undir-
ritað samkomulag milli Norður-
þings, Hafnar sjóðs Norðurþings og
íslenska ríkisins um ýmsar aðgerðir
til atvinnuuppbyggingar á Bakka.
Steingrímur J. Sigfússon,
atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðherra, undir ritaði yfirlýsinguna
fyrir hönd ríkisins en hann mun á
næstunni leggja fram tvö frumvörp
á Alþingi þessu tengd.
Í fréttatilkynningu kemur fram
að annað frumvarpið geri ráð fyrir
að ráðherra verði veitt heimild til
að gera fjárfestingarsamning um
byggingu kísilvers á Bakka. Hitt
frumvarpið er lagt fram til að afla
heimilda fyrir ríkið til að kosta upp-
byggingu innviða sem eru nauðsyn-
leg forsenda verkefnisins, einkum
vegtengingu milli hafnarinnar og
iðnaðarsvæðisins á Bakka og stækk-
un Húsavíkurhafnar. - shá
Samstarfsyfirlýsing um kísilver á Bakka við Húsavík undirrituð í gær:
Drög lögð að uppbyggingu
BAKKI Tvö frumvörp verða lögð fram á
Alþingi á næstunni tengd uppbyggingu
á Bakka og á Húsavík.
FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
VIÐ STÖRF Slys tilkynnt til Vinnueftirlitsins eru aðeins brot af þeim fjölda vinnu-
slysa sem tilkynntur er til Slysaskrár. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
bregðast fyrst við þegar í óefni
er komið. Fjöldi námskeiða og
fræðsla um öryggismál, fjöldi eft-
irlitsferða á vinnustaðnum, fjöldi
skráninga á næstum því slysum
auk endurskoðunar á áhættumati
eru dæmi um aðra mælikvarða
sem atvinnurekendur geta nýtt til
að meta árangur sinn í öryggis-
málum starfsmanna.“
Slysum meðal kvenna hefur lítið
fækkað en slysum meðal karla
hefur fækkað verulega í öllum
flokkum frá 2007, að því er kemur
fram í ársskýrslu Vinnueftirlits-
ins. Frá 2009 hefur ekki orðið
frekari fækkun slysa og segir í
skýrslunni að það verði að teljast
verulegt áhyggjuefni. Árið 2011
slösuðust 879 karlar og 443 konur.
Vinnueftirlitið og VÍS halda
opna ráðstefnu um ábyrgð, hlut-
verk og sýn æðstu stjórnenda í
öryggismálum föstudaginn 22.
febrúar.
ibs@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Fulltrúar MP banka, Klasa ehf. og Svein-
björns Sigurðssonar verktaka tóku í gær skóflustungu
að stærstu nýframkvæmd við íbúðahúsnæði frá banka-
hruni.
Hyggjast félögin auk fleiri fjárfesta reisa 175 íbúðir
í þremur fjölbýlishúsum á svokölluðum Bílanaustsreit
við Mánatún í Reykjavík.
„Við erum mjög stolt og ánægð með að hafa mynd-
að þennan hóp og sótt fjárfesta að verkefninu enda er
þetta sennilega stærsta íbúðabyggingaverkefni í fjölda
ára,“ segir Sigurður Atli Jónsson, forstjóri MP banka.
Eins og áður sagði verða reist þrjú fjölbýlishús á
reitnum; Mána tún 1, Mánatún 7-17 og Sóltún 1-3. Í hús-
unum verða alls 175 íbúðir auk bílageymslna. Heildar-
flatarmál íbúðarýmis verður um 20.000 fermetrar og
er áætlaður byggingartími þrjú ár. Þróunarvirði verk-
efnisins er 7 til 8 milljarðar króna.
„Við höfum mikla trú á þessu verkefni. Staðsetning-
in er góð og markaðurinn hefur sýnt að mikil eftir-
spurn er eftir vönduðum íbúðum miðsvæðis í Reykja-
vík. Þétt samstarf með öflugum stýriverktaka
hugnast okkur vel enda höfum við góða reynslu af
slíku úr fyrri verkefnum,,“ segir Ingvi Jónasson,
framkvæmda stjóri Klasa. - mþl
Alls 175 íbúðir í þremur stórum fjölbýlishúsum á Bílanaustsreitnum:
Stór íbúðahús reist við Mánatún
SKÓFLUSTUNGAN Í GÆR Skóflustunguna tóku Sigurður Atli
Jónsson, forstjóri MP banka, Sigurður Sveinbjörnsson hjá
Sveinbirni Sigurðssyni hf. og Ingvi Jónasson, framkvæmda-
stjóri Klasa ehf.