Fréttablaðið - 16.02.2013, Page 10
16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
Framtíðarþing um farsæla öldrun
Óskað er eftir þátttakendum
úr eftirfarandi hópum:
75 ára og eldri
55-75 ára
55 ára og yngri
Starfsfólk sem tengist öldrunarmálum
Tilkynnið þátttöku:
Áhugasamir vinsamlegast tilkynnið þátttöku
á netfangið framtidarthing@gmail.com eða
í síma 693 9508 eigi síðar en 25. febrúar nk.
Taka þarf fram nafn, kennitölu og síma.
Þátttaka er öllum heimil og án endurgjalds.*
Boðið verður upp á veitingar.
*Allir þátttakendur eru sjálfboðaliðar og þurfa sjálfir að standa straum af eigin ferðakostnaði.
MARKMIÐ ÞINGSINS:
Skapa umræðu meðal áhugasamra
um öldrunarmál, væntingar og
viðhorf til efri áranna.
Vekja jákvæða athygli á eldri
borgurum, stöðu þeirra og hvernig
þeir líta á mál sín til framtíðar.
FARSÆL ÖLDRUN
Þátttakendur óskast
– viltu vera með?
RÚSSLAND, AP Vísindamenn telja
að loftsteinninn, sem splundraðist
yfir Rússlandi í gær, hafi verið tíu
tonn að þyngd. Brotunum rigndi
yfir íbúa við Úralfjöllin, ollu
sprengingum og eignatjóni. Hátt
í þúsund manns þurftu að leita sér
læknisaðstoðar.
„Það varð uppi fótur og fit.
Enginn vissi hvað var að ger-
ast. Allir fóru á milli húsa til að
athuga hvort allt væri í lagi með
fólk,“ sagði Sergei Hametov,
íbúi í Tsjelja binsk, stærstu borg-
inni á því svæði sem varð fyrir
loftsteina regninu.
„Við sáum skyndilega mikið ljós
og fórum út til að kanna hvað væri
að gerast. Þá heyrðum við mjög
háværar sprengidrunur.“
Loftsteinninn er talinn hafa
nálgast jörðu á miklum hraða,
á um 54 þúsund kílómetrum á
klukkustund. Hann splundraðist í
30 til 50 kílómetra hæð yfir jörðu
og dreifðust brot úr honum yfir
mjög stórt svæði. Miklar spreng-
ingar urðu til þess að víða brotn-
uðu rúður í gluggum. Stærsta brot-
ið hafnaði á endanum í ísilögðu
stöðuvatni skammt frá bænum
Tsjebakúl.
Nokkuð algengt er að loftsteinar
komi inn í andrúmsloft jarðar. Oft-
ast brenna þeir upp en sumir lenda
á jörðinni í mismunandi mörgum
pörtum. Það gerist nokkrum sinn-
um á ári, en aðeins á fimm til tíu
ára fresti hafa þeir umtalsverð
áhrif. Sjaldnast gerist það þó á
byggðu bóli, þannig að tjónið verð-
ur yfirleitt lítið.
Engin tengsl eru talin vera á
milli loftsteinsins, sem splundr-
aðist yfir Úralfjöllum, og 130 þús-
und tonna smástirnis sem þaut
fram hjá jörðu seint í gær í um það
bil 28 þúsund kílómetra fjarlægð.
Engin skráð dæmi eru um að smá-
stirni af þessari stærð hafi farið
þetta nálægt jörðu.
Rússneski þingmaðurinn Vladi-
mír Sjírínovskí, sá kokhrausti
þjóðernissinni, kom reyndar auga
á aðra hlið á loftsteinaregninu en
flestir aðrir: „Þetta eru ekki loft-
steinar að falla, heldur eru Banda-
ríkjamenn að gera tilraun með
nýtt vopn.“ gudsteinn@frettabladid.is
Olli uppnámi
og skelfingu
Hundruð manna særðust þegar tíu tonna loftsteinn
splundraðist yfir Úralfjöllum. Þrettán þúsund sinnum
þyngra smástirni fór einnig nálægt jörðu.
SKILDI EFTIR SIG GUFURÁK Loftsteinninn lenti á endanum í ísilögðu stöðuvatni.
NORDICPHOTOS/AFP
Allir fóru á milli húsa
til að athuga hvort allt
væri í lagi með fólk.
Sergei Hametov íbúi í Tsjeljabinsk í
Rússlandi
TEFLA DJARFT Kínversku skákmeistararnir Bu og Wei að tafli í Salaskóla í gær.
SKÁK Kínverska landsliðið í skák
er í heimsókn á Íslandi og mun
tefla í landskeppni við Íslendinga
nú um helgina.
Í kínverska liðinu eru tveir
ofurstórmeistarar, þeir Bu
Xiangzhi og Yu Yangyi, sem eru í
hópi sterkustu skákmanna heims.
Þá teflir hinn fjórtán ári gamli
Wang Yiye fyrir liðið, en hann
er meðal efnilegustu skákmanna
heims.
Landskeppnin er haldin í tilefni
af 60 ára afmæli Kínversk-íslenska
menningarfélagsins. Hún fer fram
í höfuðstöðvum Arion banka frá
klukkan 13 til 17 í dag og á morg-
un. Áhorfendur eru velkomnir. - mþl
Íslenska landsliðið í skák mætir því kínverska:
Kínverska landsliðið
í skák teflir á Íslandi