Fréttablaðið - 16.02.2013, Page 12
16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 12
SKAGAFJÖRÐUR
Strætó á Hofsós og Hóla
Strætó bs. hefur kynnt áform um að
taka upp ferðir milli Sauðárkróks, Hofs-
óss og Hóla í tengslum við núverandi
áætlun strætó.
NOREGUR Allt stefnir í stjórnar-
skipti í Noregi eftir þingkosning-
ar í haust, miðað við niðurstöður
nýrrar skoð-
anakönnunar.
Samanlagt
fylgi stjórnar-
flokkanna,
Verkamanna-
flokksins,
Miðjuflokksins
og Sósíalíska
vinstriflokks-
ins, er einungis
34 prósent. Á
meðan eru Hægriflokkurinn og
Framfaraflokkurinn með samtals
53 prósent.
Hægriflokkurinn er stærstur
með 36% og Verkamanna flokkur
Jens Stoltenberg mælist með
26,4%, en Miðjuflokkurinn fellur
út af þingi ef fram fer sem horfir
þar sem hann er með undir fjög-
urra prósenta fylgi. - þj
Illa gengur hjá Stoltenberg:
Stjórn kolfallin
í fylgiskönnun
JENS
STOLTENBERG
VINNUMÁL Aðkomu ríkisins er
þörf til að leysa úr vanda annarra
kvennastétta við Landspítalann
(LSH) sem vilja fá sambærilega
leiðréttingu kjara og hjúkrunar-
fræðingar hafa fengið.
„Ekki eru til aurar hér, því
miður,“ segir Erna Einarsdóttir,
framkvæmdastjóri mannauðs-
sviðs LSH og formaður kjara-
og launanefndar spítalans. Hún
segir ljóst að við taki strangar
viðræður við aðra hópa um endur-
skoðun stofnanasamninga í takt
við yfirlýsingar um innleiðingu
jafnlaunastefnu ríkisstjórnarinn-
ar. Erna vísar til yfirlýsinga Guð-
bjarts Hannessonar velferðar-
ráðherra um að byrja ætti á að
leiðrétta kjör heilbrigðisstétta og
að þar hafi hjúkrunar fræðingar
verið fyrstir. „Guðbjartur hefur
jafnframt lýst því yfir að geisla-
fræðingar og lífeindafræðing-
ar séu með í þeirri yfirferð og
margar yfirlýsingar komið fram
um aðra.“
Um hádegisbil í gær höfðu rúm-
lega 80 prósent hjúkrunarfræð-
inga sem sagt höfðu upp störfum
dregið uppsögn sína til baka. „Og
helst viljum við fá alla til baka,“
segir Erna. Endanlegar tölur liggi
þó ekki fyrir fyrr en á mánudag,
þar sem einhverjar tilkynningar
gætu átt eftir að berast í pósti.
Eftir helgi fer Efling – stéttar-
félag fram á viðræður um endur-
skoðun stofnanasamninga við
LSH og fylgir þar í kjölfarið
á Sjúkraliðafélaginu. „Starfs-
menn innan Eflingar sem vinna
hjá Landspítalanum og á hjúkr-
unarheimilum eru nánast hrein
kvennastétt enda yfir 96 prósent
kvenna sem sinna þessum störf-
um,“ segir í erindi sem Efling
hefur sent spítalanum í kjölfar
breytinga á samningi hjúkrunar-
fræðinga.
Kveðst félagið líta svo á að yfir-
lýsingar velferðarráðherra um
að kominn sé tími til að leiðrétta
launakjör starfsmanna þar sem
mikill meirihluti sé konur, eigi
við um Eflingu. „Enda hefur hann
vakið athygli á að launakjör þessa
fólks séu allt of lág.“
Efling lítur svo á að breytingar
í takt við nýjan stofnanasamning
hjúkrunarfræðinga hljóti að ná til
allra umönnunarstarfa. Um leið
er í umfjöllun á vef Eflingar lýst
„verulegum áhyggjum“ af þeirri
nálgun spítalans að launabreyt-
ingar verði bornar uppi af hag-
ræðingu innan spítalans. „Við
gerum þá kröfu bæði til spítal-
ans og ríkisstjórnarinnar sem
rekstrar aðila að störf okkar fólks
verði tryggð og lagðir verði til
nægjanlegir fjármunir til þess
að standa undir þessum launa-
breytingum.“ olikr@frettabladid.is
Flestir hættu við uppsögn
Yfir 80 prósent þeirra um 300 hjúkrunarfræðinga sem sagt höfðu upp störfum á LSH höfðu í gær dregið
uppsögn sína til baka. Stéttarfélagið Efling fer eftir helgina fram á viðræður um kjör sinna félagsmanna.
Á LANDSPÍTALANUM Fundur sjúkraliða fagnaði á fimmtudag yfirlýsingum um að leiðrétta ætti laun heilbrigðisstétta sem setið hefðu eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
NÁTTÚRA Sex grísir hafa bæst við
dýrafjöldann í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum, en gyltan Skrítla
gaut fyrir viku.
Samkvæmt fréttatilkynningu
frá garðinum gekk gotið vel og
gyltan og grísirnir eru við hesta-
heilsu. Síðast bættist í hópinn í
svínastíunni á jóladag, þegar gylt-
an Skoppa gaut fimm grísum.
Gyltur ganga með grísi í 114 til
116 daga, eða þrjá mánuði, þrjár
vikur og þrjá daga. Grísirnir eru
rúmlega hálft kíló við fæðingu en
stækka mjög hratt. Mesti fjöldi
grísa sem vitað er til að fæðst hafi
í einu goti eru 27 grísir, en metið í
Húsdýragarðinum er 22 grísir.
- þeb
Gyltan Skrítla búin að gjóta:
Sex nýgotnir
grísir í garðinum
GRÍSIRNIR Sex nýgotnir grísir og fimm
tæplega tveggja mánaða gamlir grísir
eru nú í svínastíunni í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum.
MYND/FJÖLSKYLDU- OG HÚSDÝRAGARÐURINN
HVERAGERÐI
Vonbrigði með vegamál
Bæjarstjórn Hveragerðis segir það
vonbrigði að við breikkun Hring-
vegarins um Kamba sé vegurinn ekki
færður til suðurs meðfram þéttbýlinu
í Hveragerði. Færsla vegarins sé grund-
vallarforsenda fyrir frekari uppbyggingu
íbúðabyggðar í vesturhluta bæjarins.
SJÁVARÚTVEGUR
Samdráttur heildarafla
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum
janúarmánuði, metinn á föstu verði,
var 8% minni en í janúar 2012. Aflinn
nam alls 147.314 tonnum í nýliðnum
janúar samanborið við 198.290 tonn í
janúar 2012. Greint er frá þessu á vef
Hagstofunnar.
80%
þeirra hjúkrunarfræðinga
sem höfðu sagt upp störfum
höfðu dregið uppsögnina til
baka um hádegisbil í gær.