Fréttablaðið - 16.02.2013, Page 18
16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 18
Orðspor Íslands í sam-
félagi þjóðanna var ágætt
fram að hruni. Allt breytt-
ist þetta á svipstundu með
falli bankanna. Ekki bætti
úr skák að bresk stjórn-
völd beittu umdeildum
ákvæðum laga um varn-
ir gegn hryðjuverkum til
að frysta eigur íslenskra
banka í Bretlandi og verja
þannig sína hagsmuni.
Lánshæfismat ríkis -
sjóðs féll eins og steinn. Skulda-
tryggingaálag rauk upp úr öllu
valdi. Stjórnvöld áttu á hættu að
lenda í útistöðum við um heiminn
vegna setningar neyðarlaga og
gjaldeyris hafta, meðal annars með
tilliti til EES-samningsins. Upp
hófust erfiðar og flóknar milli-
ríkjadeilur við Breta og Hollend-
inga um það hvort íslenska ríkið
hefði fullgilt og fylgt með réttum
hætti tilskipun ESB um innstæðu-
tryggingar og bæri þar af leiðandi
ábyrgð á almennum lágmarks-
innstæðum erlendis. Auk þess
voru stjórnvöld sökuð um að hafa
mismunað innstæðueigendum eftir
þjóðerni. Hratt og örugglega lok-
uðust flest sund Íslands á lána- og
gjaldeyrismarkaði. Íslensk fyrir-
tæki voru krafin um staðgreiðslu
og fáu treyst sem frá Íslandi kom.
Ríkisstjórn Samfylkingar-
innar og VG tók við stjórn lands-
ins 1. febrúar 2009. Þá blasti við
að ómældum tíma og fé yrði að
verja til þess að endurheimta
lánstraust þjóðarinnar og orð-
spor. Samningar höfðu tekist
um endurreisn í samvinnu við
Alþjóða gjaldeyrissjóðinn sem
greiða skyldi út nauðsyn leg gjald-
eyrislán með reglulegu millibili
að fullnægðum tilteknum skil-
yrðum. Færeyingar voru fyrsta
þjóðin sem veitti Íslendingum
lán eftir hrunið í október 2008
og greiddi íslenska ríkið lánið
upp í árslok í fyrra. Frændur
vorir á Norðurlöndum sáu aumur
á okkur, sumir fullir efasemda,
og samþykktu stórfelldar lán-
veitingar. Það á líka við um Pól-
land. Nú hafa verið endurgreidd-
ir 227 milljarðar króna af lánum
frá AGS og Norðurlöndunum eða
sem nemur 50–60 prósentum af
upphaflegum lánum og fyrirliggj-
andi er ósk íslenskra stjórnvalda
um lækkun vaxta á því sem eftir
stendur. Allt er þetta gert til að
draga úr vaxtakostnaði ríkissjóðs
og efla traust á Íslandi.
Við reynum að semja
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar segir berum orðum að
meðal meginverkefna á næstu
árum verði að endurheimta orð-
spor Íslands á alþjóðavettvangi og
byggja upp ímynd lands og þjóðar.
Langvinnri þrautagöngu er
lokið með sigri í Icesave-málinu.
Ábyrgir stjórnmálamenn vita
að nauðsynlegt var að setjast að
samningaborði í deilum
við erlendar þjóðir eins og
ástatt var fyrstu mánuðina
eftir bankahrunið. Jón
Sigurðsson, fyrr verandi
formaður Framsóknar-
flokksins, orðar þetta
svo í merkri grein sinni
að loknu Icesave-málinu:
„Hvaða íslensk ríkisstjórn
sem væri hefði reynt að
semja og reynt að halda
málinu áfram í viðræðu-
ferli – líka Sigmundur Davíð ef
hann hefði verið ráðherra við þær
aðstæður sem þá ríktu.“
Sigurinn í Icesave-málinu og
fleira hefur jákvæð áhrif á stöðu
okkar í samfélagi þjóðanna. Ríkis-
sjóður hefur í tvígang á undan-
förnum misserum sótt sér fé á
erlenda lánsfjármálamarkaði,
samtals 240 milljarða króna, og
þar með fengið staðfest að aðgengi
að erlendu lánsfé hefur verið end-
urheimt. Skuldatryggingarálag er
nú hið lægsta sem um getur frá
því fyrir hrun og alþjóðleg mats-
fyrirtæki, Fitch og Moodys, hafa
hækkað lánshæfiseinkunn ríkis-
sjóðs og breytt horfum úr óstöð-
ugum í stöðugar.
ESB – kosið um aðildarsamning
Umsókn Íslands um aðild að
Evrópu sambandinu er eitt stærsta
og umdeildasta verkefnið sem
ríkisstjórn Samfylkingarinnar
og Vinstri grænna tók sér fyrir
hendur í upphafi. Eins og segir í
stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar hafa miklar breytingar
orðið á undanförnum árum á sviði
utanríkis- og öryggismála. Þær
breytingar ná einnig til viðskipta,
stjórnmála og umhverfismála og
kalla á nýja sýn og nýja nálgun í
utanríkismálum.
Liður í nýrri nálgun fólst í því
að sækja um aðild að ESB og hefja
samningaviðræður og leggja síðan
fullbúinn samning í dóm þjóð-
arinnar. Frá upphafi hefur legið
fyrir að stjórnarflokkarnir virða
ólíkar áherslur hvors um sig gagn-
vart ESB.
Aðild að ESB leysir ekki öll
vandamál. En hún er að minni
hyggju nærtækasta leiðin í átt að
stöðugleika í efnahagsmálum og
betri lífskjörum á Íslandi sem fæl-
ust meðal annars í lækkun vaxta
og verðlags. Aðild er einnig nær-
tæk leið til að auka stöðugleika,
stuðla að afnámi verðtryggingar
og gjaldeyrishafta og veik leikum
krónunnar sem Seðlabankinn telur
uppsprettu sveiflna. Við höfum
ekkert að óttast og ættum að
fagna því að geta í fyllingu tímans
kynnt okkur efni aðildarsamnings
og tekið afstöðu til hans í þjóðar-
atkvæðagreiðslu.
Stefna Íslands á sviði utanríkis-
viðskipta hefur um árabil snúið
að því að opna viðskiptatækifæri
og leiðir fyrir íslenskan útflutn-
ing, vörur og þjónustu, með því
að treysta og byggja upp net frí-
verslunarsamninga og viðskipta-
samninga víða um heim. Nú þegar
er Ísland aðili að 24 fríverslunar-
samningum, sem ná til 33 ríkja
með öðrum EFTA-ríkjum og við-
ræður eru í gangi við meira en
tug ríkja til viðbótar. Ísland hefur
einnig gert víðtækan fríverslunar-
samning við Færeyjar.
Fríverslunarviðræður Íslands
og Kína eru einnig langt komnar.
Í heimsókn forsætisráðherra Kína
til Íslands í apríl 2012 var sam-
mælst um setja aukinn kraft í að
ljúka samningaferlinu, sem staðið
hefur frá árinu 2007.
Lítum stolt um öxl
Þótt efnahagsleg uppbygging sé
nær ávallt í forgrunni er mikils-
vert að stjórnvöld missi ekki sjón-
ar á öðrum undirstöðuatriðum er
varða mannréttindi og mannleg
kjör hvar sem er og hvenær sem
er.
Mikil samstaða ríkti á Alþingi
um liðlega milljarðs króna hækk-
un á fjárframlögum til þróun-
armála á fjárlögum þessa árs.
Hækkunin er liður í því að ná því
marki að 0,7% þjóðarteknanna
renni til þróunarmála á árinu
2019. Náist það mun Ísland skipa
sér í fremstu röð í þróunarmálum
á alþjóða vettvangi. Stærsta verk-
efni á sviði þróunarsamvinnu sem
Ísland hefur nokkru sinni ráðist
í hófst á síðasta ári þegar Ísland
var útnefnt sem aðalsamstarfs-
þjóð Alþjóðabankans um jarðhita-
nýtingu í þrettán Afríkuríkjum.
Nú er á annað ár liðið síðan utan-
ríkisráðherrar Íslands og Palest-
ínu staðfestu stjórnmálasamband
milli þjóðanna. Áður hafði Alþingi,
að tillögu utanríkisráðherra, sam-
þykkt að Palestína yrði viðurkennd
sem sjálfstætt og fullvalda ríki
innan landamæranna frá því fyrir
sex daga stríðið árið 1967. Ríkis-
stjórnin hefur stutt sjálfsákvörð-
unarrétt Palestínumanna og var
meðflytjandi að tillögu á vett-
vangi Sameinuðu þjóðanna þess
efnis að Palestína fengi þar stöðu
áheyrnarríkis. Sú tillaga var sam-
þykkt með yfirgnæfandi meiri-
hluta atkvæða á þingi SÞ síðast-
liðið haust.
Ég tel að bærilega hafi tekist til
við að endurreisa orðspor Íslands í
kjölfar hrunsins. Velgengni okkar
á ýmsum sviðum efnahagslífsins
og áhersla á velferð og jöfnuð á
skeiði uppbyggingarinnar hefur
vakið athygli langt út fyrir land-
steinana. Við getum litið stolt um
öxl þótt enn sé verk að vinna.
Jafnaðarstjórn í fjögur ár:
Orðspor og traust endurheimt
➜ Ég tel að bærilega hafi
tekist til við að endurreisa
orðspor Íslands í kjölfar
hrunsins. Við getum litið
stolt um öxl þótt enn sé verk
að vinna.
ORÐSPOR
Jóhanna
Sigurðardóttir
forsætisráðherra
Draumur fárra er að breytast í martröð
margra.
Pétur Blöndal alþingismaður gagnrýndi mikinn kostnað skatt-
borgara vegna byggingar og reksturs Hörpunnar.
Það eru náttúrulega allir að smjatta á
þessu hérna í bænum. Mannorðið er farið.
Áhafnarmeðlimur sem rekinn var af einu skipa Vinnslustöðvar-
innar eft ir að hann stóðst ekki fíkniefnapróf.
Það er einfaldlega dásamlegt að sjá
sólina hér í norður garðinum í fyrsta skipti.
Þórey Þórðardóttir í Kópavogi vann dómsmál gegn ná grönnum
sínum í Víðihvammi sem þurft u að fella hávaxin grenitré á
lóðarmörkunum.
Það er alltaf skemmtileg stemning á
þessu kvöldi alveg þangað til þetta er búið
og allir eru komnir í fýlu yfir að hafa ekki
unnið.
Sjónvarpsmaðurinn Logi Bergmann verður kynnir á verðlauna-
hátíðinni Eddunni í kvöld.
UMMÆLI VIKUNNAR
2. – 9. ágúst
Varsjá og Kraká
139.900 kr.
Gisting á hótelum með morgunverði.
Akstur milli Varsjár og Kraká innifalinn.
Fararstjóri: Óttar Guðmundsson, læknir og rithöfundur.
Verð á mann
í tvíbýli frá:
Borgaðu
þig upp
TRAVEL
7. – 10. júní
Varsjá – borgarferð
79.900 kr.
Gisting á hóteli.
Fararstjóri: Óttar Guðmundsson, læknir og rithöfundur.
Verð á mann
í tvíbýli frá:
22. – 29. júní
Garda vatnið
139.800 kr.
Gisting á Hótel Palme með ½ fæði.
Fararstjóri: Una Sigurðardóttir, kennari.
Verð á mann
í tvíbýli frá:
Innifalið í öllum ferðum er flug með sköttum,
gisting og akstur til og frá flugvelli.
Bókaðu strax á wowtravel.is