Fréttablaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 28
16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 28
Guðni Einarsson er bóndi í Þórisholti. Hann hefur unnið á vegum Lamp-rechts við trjáplöntun og umsjón jarðanna. Hann segir að það sé
enginn munur á því að útlendingar
kaupi jarðir eða Íslendingar, ef ætl-
unin sé að gera eitthvað og skapa
atvinnu. Guðni segir að þegar frétt-
ist af kaupunum hafi nokkrir verið
ósáttir.
„Sumir vilja halda þessu í byggð
og það er svo sem allt í lagi með
það. Þegar kynslóðaskipti verða er
ekki sjálfgefið að börnin vilji taka
við búskap. Hvað eiga menn þá að
gera?“
Lamprecht keypti jarðirnar árið
2003, en ábúendur höfðu tíu ára
ábúðarrétt. Tómas Pálsson, bóndi á
Litlu-Heiði, brá búi síðastliðið haust
og enn eru hross í eigu fyrrum eig-
enda á jörðinni. Næsta sumar verð-
ur fyrsta sumarið þar sem Lamp-
recht verður einn í dalnum. Guðni
óttast ekki að það þýði að svæðinu
verði lokað.
„Eins og þið sjáið gátuð þið keyrt
hingað heim í hlað, það er ekkert
hlið. Þetta verðum við kannski frek-
ar vör við ef Íslendingar kaupa, að
þeir loki. Í nýju aðalskipulagi gerði
hann ekki athugasemdir við að
skipulagðar væru gönguleiðir um
hans land. Þetta er nú öll lokunin.
Hér er náttúrulega gömul þjóðleið
og hann kemur aldrei til með að
loka þessu.
Hins vegar búum við við þann
veruleika að ferðamannatraffík er
að aukast alveg gríðarlega og við
þurfum náttúrulega að hafa hemil
á því. Við viljum náttúrulega ekki
að ferðamenn fari hér um allt og
óhindrað, það þarf að hafa stjórn á
því líka.“
Allt opið
Einu girðingarnar sem settar hafa
verið upp á svæðinu eftir að Lamp-
recht eignaðist það eru til að vernda
skógrækt fyrir ágangi búfjár. Guðni
segir að líklega verði meira sett upp
af slíkum girðingum, en Lamp-
recht hefur uppi áform um að fylla
í skurði og endurheimta votlendi.
„Hann þarf náttúrulega að girða
af ef hann ætlar að vernda þetta.
Við girtum skógræktina af, en að
öðru leyti hafa menn beitarrétt og
geta beitt á heiðarlöndin. En hugs-
anlega kemur hann til með að verja
Heiðardalinn sjálfan fyrir búfé.“
Lamprecht ræktar lax í Vatnsána
og sjóbirtingur gengur upp í hana.
Hann selur veiðileyfi í ána og vatn-
ið, nokkuð sem fyrri eigendur gerðu
einnig. Þá hefur hann haldið áfram
uppgræðslustarfi þeirra.
„Við höfum á hverju ári dreift út
áburði hérna til að halda áfram upp-
græðslunni. Sá sem bjó hér fyrir,
Tómas Pálsson, var mikið í upp-
græðslu. Lamprecht hefur svo hald-
ið því áfram. Hann hefur allavega
hug á að vernda landið og gera það
náttúrulegt. Það er hans draumur.“
Lamprecht-reglugerð
Líkt og áður hefur verið komið inn á
í þessum greinaflokki er Ögmundur
Jónasson innanríkisráðherra með
reglugerð í smíðum til að takmarka
eignarhald útlendinga á íslenskum
jörðum. Í samtali við Fréttablaðið í
janúar útskýrði hann að það væru
ekki síst kaup Lamprechts sem
væru kveikjan að vinnunni.
„Hugsunin er ekki sú að girða
fyrir allar fjárfestingar á Íslandi
eins og margir hafa verið að gefa í
skyn. Ég er að beina sjónum mínum
fyrst og fremst að eignarlandi,“
sagði Ögmundur í janúar. Í frétt-
inni þá segir:
„Það eru brögð að því að auðkýf-
ingar séu að safna hér jörðum án
þess að hafa nokkurn tilgang með
því að sinni annan en að safna eign-
arlandi á Íslandi,“ segir Ögmundur
og nefnir sérstaklega landakaup
Svisslendingsins Rudolfs Lamp-
recht í Mýrdal. „Ég hygg að þetta sé
líka að gerast annars staðar án þess
að ég vilji á þessu stigi fara nánar
út í það,“ segir Ögmundur.
Þegar
kynslóða-
skipti verða er
ekki sjálfgefið
að börnin
vilji taka við
búskap. Hvað
eiga menn þá
að gera?
Guðni Einarsson,
bóndi í Þórisholti.
HEIÐARDALUR Rudolph Walter Lamprecht hefur keypt tvær bújarðir í Heiðardal auk lands sem bændur í Reykjahverfi áttu. Hann á nú dalinn allan, Heiðarvatn og Vatnsá.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ásgeir Magnússon, sveitarstjóri á Vík, vill
ekki tjá sig almennt um afstöðu sína til
eignarhalds útlendinga á íslenskum jörðum.
„Hins vegar varðandi þessa umræðu um það
að það fari allt í rúst af því að útlendingar
eigi einhverjar jarðir hérna þá get ég ekki
sagt að það hafi verið að trufla okkur
stórlega í Mýrdalnum allavega.“
Ásgeir segir hins vegar að þegar Lamp-
recht hafi keypt jarðirnar hafi verið mikil
áform uppi um uppbyggingar sem væntingar
hafi verið til. Ekkert hafi ræst af þeim. „Ég
var nú reyndar ekki sveitarstjóri á þeim tíma og ég
þekki það nú ekki nákvæmlega, en það sem ég heyri á
fólki er að það hafi verið heilmiklar væntingar um að
menn hafi ætlað að gera þarna mjög mikið og byggja
heilmikið upp, en eins og ég segi, það hefur
ekkert orðið af því. Það er nú kannski það sem
maður horfir á.“
Hann segir hins vegar að það hafi ekki breytt
miklu að jarðirnar í Heiðardal séu í eigu útlend-
ings. Þó beri að líta til þess að ekkert hafi komið
í staðinn fyrir þær jarðir sem í eyði fóru.
„Þarna voru náttúrulega tvö býli í Heiðar-
dalnum, bæði Litla-Heiði og Stóra-Heiði, og
þessir bæir eru náttúrulega báðir farnir í eyði
núna. Mér skilst að til standi að rífa niður eitt-
hvað af þeim húsum sem þarna eru og þarna
hefur svo sem ekki önnur uppbygging verið en einn
sumarbústaður, þannig að það er svo sem ekki stórt og
mikið að gerast í tengslum við þessi jarðakaup, allavega
ekki þarna hjá okkur. Það er óhætt að segja það.“
➜ Áform hafa ekki staðist
ÁSGEIR
MAGNÚSSON
Langisjór*
Brimgarðar
ehf.
5
100%
*Hluthafar í Langasjó ehf.
Cold Rock Investment Ltd 66,10%
Guðný Edda Gísladóttir 7,60%
Gunnar Þór Gíslason 7,60%
Eggert Árni Gíslason 7,60%
Halldór Páll Gíslason 7,60%
Sundagarðar hf 3,40%
Óþekktir hluthafar 0,10%
Cold Rock Investment er skráð á Möltu
Líkt og fram hefur komið í þessum greinaflokki er erfitt að átta sig
nákvæmlega á því hve margar jarðir útlendingar eiga á Íslandi. Það sem
skekkir töluna er að þeir geta átt hlut í eignarhaldsfélögum sem eiga
jarðir. Fréttablaðið skoðaði því hverjir eru eigendur stærstu eignarhalds-
félaganna, það er þeirra sem eiga fimm jarðir eða fleiri.
Líkt og sést hér fyrir ofan eru þeir eigendur allir íslenskir, nema Cold
Rock Investment Ltd. Það er ljóst að ekki bætist mikið við tölu jarða í eigu
útlendinga, þó eignarhaldsfélögin séu tekin með.
Eigendur stærstu eignarhaldsfélaganna
Lífsval
37
Hömlur 1
ehf.
5
Bæjarbúið
ehf.
5
Kjartan Gunnarsson
Ólafur Ólafsson Hömlur ehf.
100%
100%
36%
16,9% 15,6%
10,5%
21%
Miðhraun
ehf.
7
100%
Hömlur ehf.*
Ingvar Jónadab Karlsson
Ólafur Ívan Wernersson
Guðmundur A Birgisson
Óþekktir hluthafar
Stjörnugrís
hf.
5
60% 24%
16%
Geir Gunnar Geirsson
Geir Gunnar Geirsson
Hjördís Gissurardóttir
* Hömlur ehf í 100%
eigu Landsbankans Földi lögbýla í eigu félags
SUMARHÚSIÐ
Lamprecht hyggst rífa
allar byggingar úr dalnum
nema sumarhúsið sem
hann dvelst í.
Á FIMMTUDAG Upplýsingar liggja
ekki á lausu.
Mun fremur Íslendingar sem loka
Miklar áhyggjur voru af því að Lamprecht myndi loka Heiðardalnum. Þær áhyggjur hafa ekki ræst og einu girðingarnar sem settar hafa
verið upp lúta að skógrækt. Sveitarstjóri segir erlent eignarhald ekki vandamál en vonbrigði séu að áform um uppbyggingu hafi ekki ræst.
1 2 3 4 5 6HVER Á ÍSLAND?