Fréttablaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 40
16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 40
sem hún var í var með Íslands-
hestabraut. „Stundum var ég í hest-
húsi þrisvar í viku en lærði líka allar
venjulegar menntaskólagreinar,“
segir hún og kveðst hafa dvalið í
einn mánuð á Íslandi í starfsþjálfun
á hrossaræktarbúinu Jaðri í Hrepp-
unum, þar sem henni var boðin vinna
þegar stúdentsprófið væri í höfn.
Enda var hún mætt til Íslands tveim-
ur dögum eftir prófið, í byrjun júní
2005, þá 18 ára. „Ég varð strax ást-
fangin af landinu, náttúrunni, fólkinu
og hestunum og fljótlega fann ég að
mig langaði að búa hér. Að fara að
Hólum á reiðkennarabraut var draum-
urinn og hann rættist. Ég var þar í
þrjú ár, fór í starfsþjálfun til Gísla og
Mette á Þúfum í Skagafirði og vann
áfram hjá þeim, samtals í fjögur ár.
Frá því ég kom til landsins hef ég líka
unnið hjá Einari og Svönu í Halakoti,
Huldu og Hinna í Árbæ og hjá Bald-
vini í Torfunesi. Svo fór ég til Sigur-
björns og Fríðu á Oddhóli eftir lands-
mótið í fyrrasumar og var búin að
vinna þar í um tvo mánuði þegar ég
lenti í slysinu 8. september. Mér hafði
liðið rosalega vel hjá Didda og Fríðu.
Börnin þeirra eru yndisleg, þar eru
margir góðir hestar og skemmtilegar
reiðleiðir á bökkum Rangár svo það
var spennandi vetur fram undan hjá
mér,“ segir Anna Rebecka, sem keppti
á Tommamóti, ásamt Sigurbirni, dag-
inn áður en slysið varð.
Stefndi á vegg
Þá er komið að því að fara yfir
atburðarásina sem umsneri lífi Önnu
Rebecku, að minnsta kosti tíma-
bundið. „Ég var ein í venjulegum
verkum í hesthúsinu á Oddhóli og ætl-
aði að hreyfa eitt fullorðið hross úti
eftir að hafa hitað það upp í reiðhöll-
inni en fyrst ætlaði ég að ná í buff og
vettlinga í hesthúsinu sem er sam-
tengt reiðhöllinni. Þar var opið á
milli. Þegar ég ætlaði að stíga af baki
til að ná í hlífðarfötin tryllist hrossið
og fór á hröðu stökki eftir hesthús-
ganginum en við enda hans eru dyr
sem eru ekki nógu háar til að ríða í
gegnum. Ég ákvað á sekúndubroti að
henda mér af baki til að skella ekki á
veggnum. Gólfið er steypt og veggirn-
ir meðfram ganginum þar sem stíu-
kantarnir eru. Ég skall niður svona
einum og hálfum metra frá dyrunum
og lenti með höfuðið í gólfinu en var
með hjálm, sem bjargaði lífi mínu því
hann sprakk. Ég missti meðvitund um
stund en áður man ég eftir miklum
sársauka enda virðist annað hnéð og
ökkli hafa slegist utan í steypuvegg-
inn og mjöðmin í gólfið. Þegar ég
rankaði við mér náði ég í símann í
brjóstvasann og hringdi í hús bændur
mína. Ég var flutt með sjúkrabíl í
bæinn og Fríða og Styrmir sonur
hennar fóru með mér. Mér fannst ég
vera að kafna og giskað var á að lung-
un hefðu fallið saman. Ég var rosa-
lega hrædd og fann mikið til. Svo var
þetta líka mikið andlegt sjokk.“
Á bráðadeildinni kveðst Anna
Rebecka hafa verið mynduð, hægri
vinstri. „Ég var óbrotin, bara með
heilahristing eftir mikið höfuðhögg
og var sagt að hvíla mig. Ég fór því
austur að Oddhóli aftur sama dag
og lá þar, þurfti samt aðstoð til að
komast um, var rosalega óglatt og
með dúndrandi hausverk. Svo fór
ástandið versnandi. Sviminn jókst og
eftir nokkra daga varð ég að liggja í
myrku herbergi því ég þoldi ekkert
ljós. Mátturinn fór líka minnkandi.
Viku eða tíu dögum eftir slysið leið
yfir mig þrisvar á einum klukku-
tíma. Í þriðja skiptið fór ég í ein-
hverns konar kóma. Ég vaknaði í
hvítu herbergi og hvítklædd kona
spurði mig að nafni, þá hélt ég að ég
væri komin í annan heim en svo birt-
ust Fríða og Styrmir og ég var mjög
glöð að vera hérna megin. Þau höfðu
þá farið með mig aftur í sjúkrabíl á
Landspítalann og eru búin að vera
mér mjög mikill stuðningur í gegn-
um þetta allt.“
Frelsið í lauginni
Næstu vikur voru erfiðar hjá Önnu
Rebecku. „Mér leið eins og rúmið
væri á sjó. Ég gat ekkert borðað og
varð alveg máttlaus. Sums staðar
hafði ég enga tilfinningu svo ef ég
drakk heitt kaffi gat ég brennt mig
án þess að finna fyrir því og þó ég
væri ísköld á fótunum leið mér eins og
mér væri sjóðheitt. Svo komu miklir
vöðvakrampar og þeim fylgdi ofboðs-
legur sársauki. Ég var svo þreytt og
hrædd að ég var alveg að gefast upp
og hélt ég væri að deyja. Eina nóttina
svaf Karen, systir hans Einars Öder,
hjá mér. Síðan tók við tímabil útbrota
og kláða á öllum líkamanum. Ég gat
ekkert hreyft mig og var eins og fangi
í eigin líkama, lá bara eins og slytti
og gat ekki einu sinni klórað mér á
nefinu.“
Anna Rebecka kveðst hafa komið á
Reykjalund 3. október, tæpum mán-
uði eftir slysið. „Reykjalundur er
frábær staður og ég var heppin að
komast hingað. Hér er flinkt fólk. Ég
er í vatnsleikfimi tvisvar í viku, sem
mér finnst góð þjálfun og árangurs-
rík. Þegar ég byrjaði í lauginni fannst
mér ég komast í auðlind því þar losn-
aði ég tímabundið við sársaukann og í
volga vatninu, með púða undir fótum
og baki, fann ég því til frelsis. Hér
er verið að vinna í að tengja tauga-
brautirnar aftur, það gengur í raun
ágætlega en tekur mikið á. Það er
búin að vera gríðarlega framför hjá
mér eftir áramót. Núna get ég borðað
sjálf en þarf enn að nota smekk og
það er stutt síðan ég gat rúllað stóln-
um, þó bara stutt í einu. Ég byrjaði að
prjóna um jólin og er búin að prjóna
skokk og vesti á sjálfa mig og barna-
kjól, -peysu, -buxur og -sokka. Nú
er ég með ponsjó. Prjónaskapurinn
hjálpar mér mikið með samhæfingu
handanna. Enn er engin hreyfing í
fótunum en tilfinning fyrir sársauka,
hita og kulda er komin. Markmiðið er
að ég labbi héðan út. Þar sem mænan
er ósködduð hef ég góðar vonir um
að það náist. Það eru ekki allir jafn
heppnir. Ég ætla að leggja hart að
mér til að ná bata og bind vonir við að
geta einhvern tíma mætt með góðan
hest í keppnisbrautina.“
Líf utan við hestaheiminn
Anna dregur ekki dul á að hugsanlega
hafi vinnusemi hennar undanfarin ár
komið í bakið á henni eftir slysið. „Ég
var búin að leggja mikið á mig og átti
alltaf erfitt með að slaka á. Kannski
var ég að ofgera líkama mínum. Var
mjög orkumikil og fannst ég þurfa á
hreyfingu að halda. Að geta starfað
við það að þjálfa og temja hesta var
mér svo ofboðslega mikilvægt að ég
útilokaði allt annað og gaf mér ekki
tíma til að hugsa um sjálfa mig. Það
eina sem skipti máli var að vinna og
læra sem mest og verða sem best í
því sem ég var að gera. Þessu var
öllu kippt burtu í einu vetfangi og því
fylgdi mikið áfall, bæði andlegt og
líkamlegt. Ég held okkur mann fólkinu
sé mikilvægast af öllu að hafa sem
mesta stjórn á eigin lífi. Flestir eiga
líka einhver persónuleg vandamál
sem þeir setja bara í einhvern bak-
poka og nenna ekki að díla við en svo
kemur að þeirri stund að maður getur
ekkert annað.“
Hún kveðst fá hjálp til að stokka
upp andlegu spilin á Reykjalundi
ásamt líkamlegu þjálfuninni. „Hlýja
og væntumþykja er það sem mér
finnst dýrmætast. Ég fann þau ele-
ment í hestunum til að byrja með.
Hingað til hafa þeir tekið 98% af
mínu lífi svo þegar þeir voru teknir
burtu varð lítið eftir. En ég hef þrosk-
ast og lært af áfallinu og veit að það
er líf utan við hestaheiminn. Ég hef
orðið að bæta þætti í mínu lífi eins og
þolinmæði, skilning og kjark og líka
lært að virða sjálfa mig, því eina leið-
in til að komast í gegnum þetta er að
vera með sjálfri mér í liði. Fjölskyld-
an í Halakoti hefur reynst mér ótrú-
lega vel og ég á stóran vinahóp sem
skiptir mig miklu máli. Stuðningurinn
frá þeim er hvetjandi, knús, upphring-
ingar, SMS og kveðjur á fésbókinni.
Ég vissi ekki að ég ætti svona marga
að fyrr en ég lenti í slysinu og ég
er óumræðilega þakklát fyrir allan
stuðninginn og umhyggjuna. Nú er ég
líka þakklát fyrir litla hluti eins og
að geta greitt mér, burstað tennurnar
og lyft kaffibollanum sjálf. Ég veit
að enn er löng og mikil brekka fram
undan en þegar og ef ég get aftur
þjálfað og tamið hesta þá nýtist mér
öll þessi reynsla á jákvæðan hátt.“
Ég hef orðið að bæta
þætti í mínu lífi eins og þolin-
mæði, skilning og kjark og
líka lært að virða sjálfa mig
því eina leiðin til að komast í
gegnum þetta er að vera með
sjálfri mér í liði.
Í FYRSTA SINN Á BAK EFTIR SLYSIÐ
STÓR STUND „Mér leið eins og ég væri miklu meira lifandi en þegar mér er trillað um í hjólastól,“ sagði Anna Rebecka
um þá reynslu að fara á bak hestinum Gabríel nú í vikunni. Berglind Árnadóttir í Hestamennt teymdi og læknir og
sjúkraþjálfarar á Reykjalundi aðstoðuðu. MYNDIR/GVA