Fréttablaðið - 16.02.2013, Side 41
Kynningarblað Álgluggar, viðargluggar, sérsmíði,
viðhaldsfríir gluggar, uppsetning og glerjun.
GLUGGAR
LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2013
&GLER
Sú mikla reynsla og þekking sem áunnist hefur í BYKO gegnum árin hefur skilað sér
í mikilli vöruþróun þannig að bæði
gluggarnir og hurðirnar uppfylla
ýtrustu gæðakröfur sem gerðar
eru á markaðnum. Reynslan hefur
líka sýnt fram á einstaklega góða
endingu og mikla hagkvæmni í
uppsetningu.
Það er mikilvægt að velja glugga
og hurðir sem henta aðstæðum og
umhverfi hverju sinni. Sölumenn
BYKO hafa margra ára reynslu og
eru þjálfaðir í að veita viðskiptavin-
um faglega ráðgjöf og góða þjón-
ustu. Það er því alltaf hægt að stóla
á að fá góð ráð í BYKO þegar kemur
að vali á gluggum og hurðum.
Viðargluggar og hurðir
BYKO býður upp á viðarglugga
úr furu, oregonfuru og ma-
hóní. Gluggana er hægt að fá í
fjöl mörgum útfærslum. Glugg-
arnir eru fúavarðir. Þeir eru
síðan y f irborðsmeðhöndlað-
ir með viðurkenndu akrýlþekj-
andi málningarkerfi, þar sem
hægt er að velja um fjölda lita.
Hægt er að fá gluggana án yfir-
borðsmeðhöndlunar en ekki er
mælt með því, því best er að bera á
viðinn og yfirborðsmeðhöndla sem
allra fyrst áður en hann fer undir
beran himin.
Álklæddir viðargluggar
Álkápan í álgluggunum frá BYKO
veitir margfalt veðrunarþol og
endingu umfram hefðbundna
tréglugga. Hönnun álkápunnar
stuðlar að því að halda fölsum
þurrum með góðri loftun. Henni
er smellt á klossa sem tryggja góða
loftun um timburhluta gluggans og
heldur honum þurrum. Kosturinn
við álklædda glugga er að þeir eru
nánast viðhaldsfríir og sérstaklega
endingargóðir.
Byko gluggar með gæðavottun
BYKO-gluggar eru með íslenska
gæðavottun frá Nýsköpunarmið-
stöð Íslands. Þar eru gluggarnir
prófaðir reglulega í slagregnskáp.
BYKO er aðili að NORDMARK
gæðaeftirliti og hefur fengið sér-
staka viðurkenningu NTR ( Nordisk
Trerad). Rakainnihald viðarins er
stöðugt kannað og fylgst er með
loftrakastýringu í fyrir tækinu. Þess
vegna treystir BYKO sér til að bjóða
þér full glerjaða og málaða gæða-
glugga með þriggja ára ábyrgð.
Álgluggar
BYKO býður upp á vandaða ál-
glugga í allar gerðir bygginga, til
dæmis frá Reynaers, Schüco og HS
Hansen. Kröfur eru mismunandi
hvað varðar útlit, styrk, eldvarnir
og fleira. Starfsmenn Fagsölusviðs
ráðleggja um val á hinum ýmsu
gerðum og útfærslum á álgluggum.
Gler
BYKO býður upp á f lestar gerðir
glers í glugga. Í dag eru oft gerðar
miklar kröfur til glers, til dæmis
hvað einangrunargildi, sólvörn,
hljóðvörn, eldvörn og ör yggi
varðar. Sólvarnargler getur verið
margs konar, það hleypir mismik-
illi birtu í gegn og stoppar mismik-
ið af sólarorkunni. Einnig getur
verið útlitsmunur hvað varðar lit
og speglun. Val á gleri getur verið
vandasamt og þarf að taka tillit til
staðsetn ingar, notkunar húsnæð-
is og hvernig loftræstingu er hátt-
að. Í síauknum mæli þarf að bregð-
ast við hávaða og öryggiskröfum
og þar eru til ýmsar lausnir í gleri.
Einnig býður BYKO eldvarnargler,
hert og samlímt gler í handrið og
skilrúm, sprengihelt gler og ýmiss
konar öryggisgler.
Glæsilegar bílskúrshurðir
BYKO býður nú upp á endingar-
góðar bílskúrshurðir úr galvan-
húðuðu stáli sem hafa fyrir löngu
sannað sig í rysjóttu íslensku
veður fari. Hurðirnar eru með
þykkri einangrun og þola því veru-
legt vindálag og kulda. Vandaður
umbúnaður og traustur frá gangur
tryggir síðan viðhaldsfría end-
ingu árum saman. Grunnlitur
hurðanna er hvítur en hægt er að
sérpanta þær í öllum litum. Enn
fremur er hægt að fá hurðirnar
með ýmsum viðar áferðum. Öflugt
brautarkerfi hefur margsannað sig
við íslenskar aðstæður og renna
hurðarflekarnir á braut sem fer upp
fyrir efstu brún dyraopsins þannig
að hæð þess nýtist að fullu.
Öf lugir gúmmílistar tryggja
þétta lokun og þol gegn vatni og
vindi. Að neðan er gúmmílisti með
þrefaldri lokun, það er niður, út og
inn. Auðvelt er að opna hurðirnar
með handafli og einnig er hægt að
tengja bílskúrshurðaopnara við
þær. Bílskúrshurðirnar eru með
klemmivörn og koma allar með
fallvarnarbúnaði sem tryggir að
þær falla ekki þó að vír slitni eða
gormur brotni. Hægt er að fá þaul-
vana menn til að annast uppsetn-
ingu þeirra. Nánari upplýsingar
um mælingar, áferðir og úrval er
að finna á www.byko.is.
Reynsla, þekking
og fjölbreytt úrval
BYKO býður upp á fjölbreytt úrval glugga og hurða sem framleiddir eru í
glugga- og hurðaverksmiðju BYKO. BYKO hefur framleitt glugga og hurðir í
fjöldamörg ár sem eru sérhannaðar fyrir íslenskar aðstæður.
Þeir Kjartan Long og Guðlaugur Þór Þórarinsson, verkefnastjórar á fagsölusviði BYKO, hafa áratugareynslu þegar kemur að gluggum og
hurðum og veita viðskiptavinum fagleg ráð. MYND/GVA