Fréttablaðið - 16.02.2013, Page 43

Fréttablaðið - 16.02.2013, Page 43
SJÁLFSTÆÐ „Pabbi hélt mér markvisst frá Latabæ því hann vildi ekki að ég festist í hlutverki Sollu stirðu eins og hann hefur gert í hlutverki Íþróttaálfsins.“ KAFFIHÁTÍÐ Kaffihátíð stendur nú yfir í Hörpu en þar fer fram Ís- landsmót kaffibarþjóna. Sigurvegarar öðlast þátt- tökurétt á heimsmeistaramótum sem haldin verða í Nice í Frakklandi og Melbourne í Ástralíu. Auk þess eru kaffifyrirtæki og fleiri aðilar með kynningarbása. Allir kaffiáhugamenn eru velkomnir. ALLT LÍFIÐ FRAM UNDAN „Það er gaman að vera unglingur í dag, ekki síst þegar bílprófið er handan við hornið. Ég hlakka líka mikið til þess að verða fullorðin og sjá hvað lífið færir mér,“ segir Sylvía. MYND/VALLI Mamma segir að ég hafi verið sólargeisli sem barn og að ég sé ótrúlega góður unglingur. Ég elska að vera á meðal fólks og því hélt hún að ég yrði algjört tryppi og sæist ekki meir eftir að ég byrjaði í framhaldsskóla. Ég er hins vegar svo heimakær að ég vil helst alltaf vera heima með fjölskyldunni,“ segir Sylvía og brosir breitt. Hún segist ekki hafa orðið vonsvikin að standa ekki uppi sem sigurvegari í Eurovision í Hörpu. „Ég er fyrst og fremst þakklát fyrir að fá þetta tækifæri og fyrir það hvað ég kynntist mörgum. Nú vita lands- menn hver ég er og margir listamann- anna komu sérstaklega til að segja mig hafa sungið vel. Það er besta hrós sem hægt er að fá. Lífið snýst líka um að búa til minningar og Eurovision er ein ljúf sem fer í reynslubankann.“ FÉKK ÞAÐ BESTA FRÁ BÁÐUM Sylvía segist hafa vitað frá blautri barnæsku að pabbi sinn væri Íþrótta- álfurinn. „Ég ólst samt ekki upp í Latabæ eins og margir gætu haldið. Pabbi hélt mér markvisst frá Latabæ því hann vildi ekki að ég festist í hlutverki Sollu stirðu eins og hann hefur gert í hlut- verki Íþróttaálfsins. Ég vil líka gera hlutina á eigin forsendum en ekki sem dóttir Íþróttaálfsins eða að fólk haldi að ég hafi orðið eitthvað vegna hans eða sem Solla stirða. Sem tónlistar- maður vil ég höfða til allra aldurshópa eins og Páll Óskar frændi minn en ekki verða að eilífu poppstjarna fyrir litlu börnin.“ Að sögn Sylvíu ólst hún upp við hefðbundið og afar skemmtilegt fjöl- skyldulíf. „Það kemur eflaust á óvart að mamma er mun heilsusamlegri en pabbi. Við reynum auðvitað alltaf að borða hollt því það er best fyrir mann en við borðum alls konar mat og alls ekki allt grænt. Ég er ekki heldur alin upp við að mega bara fá íþróttanammi og fæ mér stundum sælgæti þótt ekki sé nammidagur,“ segir Sylvía og skellir upp úr. „Ég á enga uppáhaldspersónu úr Latabæ en pabbi er náttúrulega uppá- haldið mitt. Ég hef samt tileinkað mér það veganesti úr Latabæ að taka alltaf með mér ávexti í skólann,“ segir Sylvía sem er á fyrsta ári í Versló. „Ég ólst upp við að standa með sjálfri mér, sama hvað aðrir segja. Ég hef alltaf verið sterkur karakter, jákvæð, ákveðin og þrjósk. Þegar ég stefni á eitthvað legg ég allt í sölurnar og er afar metnaðarfull. Það hef ég bæði frá pabba og mömmu; ég fékk það besta frá báðum.“ VILL HJÁLPA TIL Í HEIMINUM Sylvía stundar nám í klassískum söng hjá Alinu Dubik og söngnám í Söng- skóla Maríu Bjarkar. Í sumarfríinu hyggst hún leggja land undir fót til enn frekara söngnáms. VILL BÆTA HEIMINN STJARNA FÆDD Sylvía Erla Scheving söng sig inn í hug og hjörtu þjóðarinnar í úrslitum Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Sylvía er rétt að byrja. Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík 1.250 kr 1.350 kr HOLLT OG GOTT PHO víetnamskur veitingastaður Ármúla 21 - 108 Reykjavík - Sími: 588 6868 - www.pho.is 1.250 kr Opið: mán - föst Kl. 11 - 21 lau - sun Kl. 12 - 21 BJÓÐUM UPP Á HEIMSENDINGU Viltu gerast hláturjógaleiðbeinandi? Námskeið fyrir þá sem vilja gerast hláturjógaleiðbeinendur verður haldið í Lifandi markaði, Borgartúni 24, föstudaginn 22. og laugardaginn 23. febrúar n.k. Að auki verða nokkrir æfingatímar. Nemendur útskrifast frá Dr. Katarias School of Laughter Yoga. Kennari er Ásta Valdimarsdóttir hláturjógakennari. Upplýsingar og skráning í síma 899 0223. Tölvup. asta.hlaturjoga@gmail.com Save the Children á Íslandi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.