Fréttablaðið - 16.02.2013, Síða 56
| ATVINNA |
Kranamaður
Eykt óskar eftir að ráð vanan vana kranamann til starfa
sem fyrst vegna verkefna fyrirtækisins.
Nánari upplýsingar veitir Pétur Einarsson
alla virka daga milli kl 07:30 -18:00 í sími: 822-4437
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Gestamóttökustarf
á Hótel Holti
Hefur þú áhuga á að starfa í ferðamannageiranum og gefa
framúrskarandi þjónustu á hverjum degi í hópi fólks sem
gerir allt fyrir gesti sína af einlægni og alúð? Hótel Holt
leitar nú að gestamóttökustarfsmönnum í fullt og krefjandi
framtíðarstarf.
Um er að ræða 12 tíma vaktavinnu 8:00-20:00 á svokölluðum
kokkavöktum (unnið aðra hverja helgi).
Hótel Holt er lítið 4 stjörnu hótel í Þingholtunum þar sem
fyrsta flokks þjónusta, matur og drykkur eru í hávegum
höfð. Hótelið skipar sérstakan sess í hjarta allra þeirra sem
það heimsækja og er það mikið til okkar frábæra starfsfólki
að þakka.
Umsækjendur verða að vera orðnir 20 ára, hafa fullkomna
alhliða ensku og íslenskukunnáttu (ritað og talað) Önnur
tungumál eru bónus.
Viðkomandi þarf að vera einlægur sendiherra okkar litla
lands, hafa sjálfstæð vinnubrögð, vera úrræðagóður,
sveigjanlegur og geta brosað og starfað undir álagi.
Við erum ekki að leita að hlutastarfsmönnum og ekki fólki
sem er á leið í nám næsta haust. Ráðningartími er lágmark
1 ár.
Umsóknir ásamt mynd og fylgibréfi sendist á
sverrir@holt.is. Umsóknarfrestur er til 24.feb. Ekki er tekið
á móti umsóknum í síma eða eigin persónu. Aðeins verður
svarað þeim sem koma sterklega til greina.
Árskógum 2, Breiðholti / Mjódd
Skógarbær er hjúkrunarheimili fyrir eldri og yngri
einstaklinga sem þarfnast hjúkrunar allan sólarhringinn.
Hjúkrunardeildarstjóri
Staða hjúkrunardeildarstjóra er laus til umsóknar. Starfið felur í sér
yfirumsjón með þremur hjúkrunareiningum. Um er að ræða 100%
starf í dagvinnu.
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar 2013.
Með umsókn fylgi upplýsingar um námslok, ferilskrá ásamt
meðmælum tveggja umsagnaraðila.
Helstu kröfur:
• Íslenskt hjúkrunarleyfi.
• Sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfileikar.
• Faglegur metnaður og góð samskiptahæfni.
• Þekking og reynsla af stjórnunarstörfum æskileg.
Helstu þættir starfsins:
• Umsjón með verkferlum, gerð hjúkrunarferlis og framkvæmd
hjúkrunar.
• Umsjón með RAI-mælingum (raunverulegur aðbúnaður íbúa).
• Sér um daglega mönnun og rekstur deildar í samvinnu við
hjúkrunarforstjóra.
Vinsamlega sendið umsóknir til:
Jónbjörg Sigurjónsdóttir hjúkrunarforstjóri
Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
Árskógum 2,
109 Reykjavík
eða í tölvupósti; jonbjorg@skogar.is
Staða skólastjóra við Melaskóla
Skóla- og frístundasvið
Laus er til umsóknar staða skólastjóra við Melaskóla.
Melaskóli er í vesturbæ Reykjavíkur. Í skólanum eru um 550 nemendur í 1.-7. bekk. Skólinn hefur á að skipa vel menntuðu og
hæfu starfsfólki og stöðugleiki er í starfsmannahaldi. Vellíðan, samvinna, metnaður og sköpunargleði eru grundvallargildi
skólastarfs Melaskóla og þar er lögð áhersla á læsi í víðum skilningi. Í skólanum er unnið að markmiðum Grænna skrefa
Reykjavíkurborgar og eftir Olweusaráætluninni gegn einelti. Í Melaskóla er bekkjakerfi þar sem fjölbreyttir kennsluhættir og
náið samstarf eru í fyrirrúmi. Útikennsla, raungreinar og list- og verkgreinar eru mikil vægir þættir í starfsemi skólans. Skólinn
er í grónu hverfi og er samstarf við heimili, félagasamtök og stofnanir í nærumhverfi nu með miklum ágætum.
Leitað er að einstaklingi sem er tilbúinn til að leiða skólann inn í framtíðina, býr yfir leiðtogahæfileikum, hefur góða og víðtæka
þekkingu á skólastarfi og metnaðarfulla skólasýn.
Óskað er eftir því að með umsókninni fylgi greinargerð í stuttu máli um framtíðarsýn umsækjanda á skólastarfið.
Auk þess fylgi umsókn yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið grunnskólakennari, upplýsingar um
framsækin verkefni sem umsækjandi hefur leitt og annað er málið varðar.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2013.
Umsóknarfrestur er til og með 3. mars 2013.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið
á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf.
Nánari upplýsingar veita Auður Árný Stefánsdóttir, skrifstofustjóri grunnskólahluta fagskrifstofu, og Valgerður Janusdóttir,
mannauðsstjóri, sími 411 1111.
Netföng: audur.arny.stefansdottir@reykjavik.is / valgerdur.janusdottir@reykjavik.is
Meginhlutverk skólastjóra er að:
• Veita skólanum faglega forystu og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við
aðalnámskrá grunnskóla og skólastefnu Reykjavíkurborgar.
• Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi
skólans.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, vinnutil-
högun og starfsþróun.
• Bera ábyrgð á samstarfi aðila skólasamfélagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á grunn-
skólastigi.
• Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í
skólastarfi.
• Stjórnunarhæfileikar.
• Færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Færni til að leita nýrra leiða í skólastarfi og leiða fram-
sækna skólaþróun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Starfsmann vantar í fiskeldi
Fiskeldisfyrirtæki í næsta nágrenni við Húsavík vantar
starfsmann. Menntun eða starfsreynsla í fiskeldi
kostur en ekki skilyrði. Upplýsingar í síma 893-9995,
umsóknir sendist í netfangið nordurlax@tpostur.is.
16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR10