Fréttablaðið - 16.02.2013, Page 57
| ATVINNA |
Velferðarsvið
Deildarstjóri skammtímavistunar
Laust er til umsóknar starf deildarstjóra skammtímavist-
unar í Reykjavík. Um er að ræða skammtímavistun fyrir
börn og ungmenni með fötlun á einhverfurófi. Þjón ustan
miðast við að efla færni, auka sjálfstæði, stuðla að
jákvæðri sjálfsmynd og auknum lífsgæðum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Ber faglega ábyrgð á og hefur umsjón með framkvæmd
þjónustunnar
• Gerð og eftirfylgd einstaklingsáætlana
• Stýrir daglegum störfum annarra starfsmanna, í
samráði við forstöðumann
• Veitir leiðsögn og tilsögn um framkvæmd þjónustu
• Tekur virkan þátt í þróunar- og uppbyggingarvinnu
Hæfniskröfur:
• Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða háskólamenntun á
sviði heilbrigðis-, mennta- eða félagsvísinda
• Reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum
• Reynsla af stjórnun æskileg
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í
vinnubrögðum
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur-
borgar og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veita
Halla Kristín Guðlaugsdóttir
halla.kristin.gudlaugsdottir@reykjavik.is
s. 567-4336 og Ingibjörg Gyða Guðrúnardóttir
ingibjorg.gyda.gudrunardottir@reykjavik.is
s.411-1400.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um starfið
á heimasíðu Reykjavíkur-borgar www.reykjavik.is
Umsóknarfrestur er til 3. mars n.k.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan
hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar
endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Kerfisstjóri
PIPA
R
\
TBW
A
SÍA
13
0
5
5
6
Í boði er áhugavert og krefjandi starf þar sem sjálfstæði og skipulagshæfileikar fá að njóta sín.
Nýr starfsmaður verður hluti af öflugu kerfisstjórateymi sem þróar fjölbreyttar og sérhæfðar
kerfislausnir fyrir háskólasamfélagið.
Reiknistofnun býður góða vinnuaðstöðu við Sturlugötu, gott mötuneyti, jákvætt og gefandi
starfsumhverfi.
Háskóli Íslands óskar eftir að ráða Linux kerfisstjóra.
Um er að ræða starf kerfisstjóra hjá Reiknistofnun Háskóla Íslands.
Umsóknarfrestur er til 11. mars 2013.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Gíslason,
deildarstjóri kerfisdeildar hjá Reiknistofnun
Háskóla Íslands, sími 525 4750, netfang magnus@hi.is.
Sjá nánar www.starfatorg.is og www.hi.is/laus_storf
Starfssvið:
Uppsetning og rekstur Linux kerfa
Kerfisaðlögun
Skipulagning og vandamálagreining
Rekstur og eftirlit
Þjónusta við notendur
Þróun og rekstur opinna
og frjálsra tölvukerfa
Hæfniskröfur:
Háskólamenntun á sviði raungreina
Reynsla af rekstri Linux kerfa
Þekking og skilningur á rekstri stórra tölvukerfa
Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskiptahæfileikar
Umsækjandi sé lærdómsfús, góður í hópavinnu og hafi
frumkvæði
Forritunarkunnátta er kostur
Staða skólastjóra við Háaleitisskóla
Skóla- og frístundasvið
Laus er til umsóknar staða skólastjóra við Háaleitisskóla.
Háaleitisskóli er í austurbæ Reykjavíkur. Skólinn hóf starfsemi sína árið 2011 eftir sameiningu Álftamýrarskóla og Hvassaleitis-
skóla. Skólinn starfar á tveimur starfsstöðvum, Álftamýri (1.-10. bekkur) og Hvassaleiti (1.-7. bekkur). Í skólanum eru um 480
nemendur. Skólinn hefur á að skipa vel menntuðu og hæfu starfsfólki og stöðugleiki er í starfsmannahaldi. Áræðni, virðing
og ábyrgð eru grundvallargildi skólastarfs Háaleitisskóla. Teymi kennara vinna saman og er litið á árganga sem heild með
sveigjanlegar hópaskiptingar. Með þessu fyrirkomulagi gefast tækifæri til fjölbreyttra vinnubragða sem stuðla að vellíðan og
árangri nemenda. Útikennsla, list- og verkgreinar eru mikilvægir þættir í starfsemi skólans. Skólinn er í grónum hverfum og er
samstarf við heimili, félagasamtök og stofnanir í nærumhverfinu með miklum ágætum.
Leitað er að einstaklingi sem hefur kunnáttu og færni til að leiða faglegt starf við sameinaðan skóla, býr yfir leiðtogahæfileik-
um, hefur góða og víðtæka þekkingu á skólastarfi og metnaðarfulla skólasýn.
Óskað er eftir því að með umsókninni fylgi greinargerð í stuttu máli um framtíðarsýn umsækjanda á skólastarfið.
Auk þess fylgi umsókn yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið grunnskólakennari, upplýsingar um fram-
sækin verkefni sem umsækjandi hefur leitt og annað er málið varðar.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2013.
Umsóknarfrestur er til og með 3. mars 2013.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið
á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf.
Nánari upplýsingar veita Auður Árný Stefánsdóttir, skrifstofustjóri grunnskólahluta fagskrifstofu, og Valgerður Janusdóttir,
mannauðsstjóri, sími 411 1111. Netföng: audur.arny.stefansdottir@reykjavik.is / valgerdur.janusdottir@reykjavik.is
Meginhlutverk skólastjóra er að:
• Veita skólanum faglega forystu og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við
aðalnámskrá grunnskóla og skólastefnu Reykjavíkurborgar.
• Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi
skólans.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, vinnutil-
högun og starfsþróun.
• Bera ábyrgð á samstarfi aðila skólasamfélagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á grunn-
skólastigi.
• Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í
skólastarfi.
• Stjórnunarhæfileikar.
• Færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Færni til að leita nýrra leiða í skólastarfi og leiða framsækna
skólaþróun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
LAUGARDAGUR 16. febrúar 2013 11