Fréttablaðið - 16.02.2013, Page 71

Fréttablaðið - 16.02.2013, Page 71
KYNNING − AUGLÝSING Gluggar & gler16. FEBRÚAR 2013 LAUGARDAGUR 3 Í Eyjafjallagosinu varð töluvert mikið öskufall í Vestmannaeyjum með tilheyr-andi óþægindum og óþrifnaði fyrir fólk. Það voru þó ýmsir sem sluppu með skrekk- inn þegar kom að öskunni. „Þeir sem voru með glugga og hurðir frá okkur sluppu alveg við öskuna. Lausafögin eru mjög þétt og með yfir fellanlegum kanti sem gerir það að verkum að ekkert loft kemst í gegnum lokaðan glugga eða hurð. Okkar vara kemur þó ekki bara vel út í öskufalli,“ segir Óskar Sigurðsson hjá Gluggasmiðjunni Gæski og hlær, „heldur einnig í rokinu og rigningunni sem við búum við hér á Íslandi og ekki síst rokinu hér í Vest- mannaeyjum, sem getur verið töluvert.“ Danskir hágæðagluggar Efnið í gluggana er flutt inn frá Danmörku og er algjörlega viðhaldsfrítt. „Glugga- og hurða rammarnir eru úr stálprófílum sem svo eru klæddir PVCUplasti. Stál rammarnir eru galvaniseraðir og ryðga því ekki og plastið er brætt saman á hornunum svo ekk- ert vatn kemst að stálinu. Þannig eru glugg- arnir gerðir til að endast í áratugi án þess að þarfnast viðhalds.“ Tími er dýrmætur Þar sem gluggarnir eru algjörlega viðhalds fríir er engin þörf á því að skrapa málningu, mála eða borga málarameistara fyrir það. Fúnir gluggar heyra sögunni til og allt það viðhald sem tilheyrir hefðbundnum timbur gluggum. „Fólk vill einfaldlega vera í fríi á sumrin en ekki eyða tímanum í viðhaldsvinnu. Miklu betra er að vera bara með fjölskyldunni. Þegar viðhaldsvinna við timbur hurðir og glugga er lögð saman yfir nokkurra ára tímabil er kostn- aðurinn orðinn tölu verður.“ Verð munur á dönsku gæða gluggunum og timburglugg- um borgar sig því mjög fljótt upp og gæða- stundunum fjölgar með fjölskyldunni. „Allar hurðir frá okkur eru með fimm punkta ryð- fríum læsingum og stormjárn og lamir einnig úr ryðfríu stáli.“ Uppsetning og glerjun Fljótlegt er að setja gluggana upp þar sem þeir eru töluvert grennri en hefð bundnir timburgluggar. „Það munar töluverðu á vinnu og tíma. Ég hef heyrt smiði hérna tala um að þeir séu allt að þrisvar sinnum fljótari að glerja. Ekki þarf að nota neinar skrúfur þar sem sérstakir smellulistar eru notaðir til að festa glerið í. Ísetningarkostnaðurinn verður því lægri fyrir vikið og sparnaðurinn enn meiri.“ Sérsmíði og samsetning Þegar efnið er komið frá Danmörku taka starfsmenn Gæsks við því og sníða niður í glugga eftir pöntun. „Við getum smíðað allar gerðir og stærðir glugga og hurða. Hvort sem um er að ræða hefðbundna glugga, franska glugga, stóra, litla eða heilu sólhýsin þá er okkur ekkert að vanbúnaði og mögu leikarnir óendanlegir.“ Gluggasmiðjan Gæskur er vel tækjum búin og reynsla og þekking til staðar. „Framleiðslan krefst nokkurrar sérhæf ingar og sérstakra verkfæra svo það er ekki hver sem er sem getur hoppað í að búa til þessa glugga. Auk þess höfum við margra ára reynslu af því að vinna með þessa vöru.“ Margir litir Hægt er að fá gluggana og hurðarnar í nokkrum litum þó sá hvíti hafi reynst vin- sælastur. „Hvítur er langmest tekinn og við eigum hann alltaf til á lager. Lítið mál er þó að panta aðra liti en það er örlítið lengri af- greiðslufrestur.“ Víða um land Hús með gluggum og hurðum frá Gæski er að finna víða um land. „Sennilega eru nú flest húsin hér í Eyjum sem við höfum fram- leitt glugga fyrir. Þó eru hús á Vestfjörðum, fyrir norðan og á fleiri stöðum sem eru með okkar vöru. Þá vorum við að senda glugga á Selfoss í nýtt timbureiningahús frá SG ein- ingahúsum.“ Hægt er að nálgast upplýsingar um Gluggasmiðjuna Gæsk á heima- síðu fyrirtækisins www. gluggar.net . Hægt er að fá gluggana og hurðarnar í nokkrum litum þó sá hvíti hafi reynst vinsælastur. Sólhýsi frá Gæski eru algjörlega viðhaldsfrí og einkar glæsileg. Lausafögin eru einstaklega vönduð og þétt með yfirfellanlegum kanti. Steint gler tekur sig vel út í gluggunum frá Gæski. Dönsk gæði sem standast tímans tönn hjá Gluggasmiðjunni Gæski Óskar Sigurðsson á og rekur Gluggasmiðjuna Gæsk í Vestmannaeyjum ásamt foreldrum sínum. Gluggasmiðjan framleiðir vandaða glugga og hurðir úr dönsku gæðaefni sem standast íslenskar aðstæður með prýði. Bæði veður, vinda og öskufall úr Eyjafjallajökli. Hurðirnar eru fáanlegar í mörgum útfærslum og eru allar með fimm punkta ryðfríum læsingum og lömum. Læsingarnar eru fyrirferðarlitlar og öflugar. Allur frágangur og hönnun er til fyrirmyndar og gerður til að endast.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.