Fréttablaðið - 16.02.2013, Page 72

Fréttablaðið - 16.02.2013, Page 72
KYNNING − AUGLÝSINGGluggar & gler LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 20134 DRAGSÚGUR GETUR VALDIÐ ÓÞÆGINDUM Góðir gluggar eru mikil- vægir í öllum húsum en ekki síst á vinnustöðum. Vel hannaðir gluggar geta hjálpað til við að halda hitastigi jöfnu í vinnurými en lélegir gluggar geta til dæmis stuðlað að dragsúgi. Dragsúgur hefur einkum áhrif á þá sem vinna kyrrsetustörf. Með tímanum getur dragsúgur valdið óþægindum í vöðvum, bjúg og vöðvagigt. Auk þess eykur stöðug kæling húðarinnar hættu á smitsjúkdómum. Það sem getur meðal annars valdið dragsúg eru óþéttir gluggar og dyr, opnir gluggar og dyr, illa einangraðir veggir og illa stillt loftræsting. Heimild: Inniloft, Hagnýtar leiðbein- ingar. Bæklingur frá Vinnueftirliti ríkisins. Á BJÖRTUM KVÖLDUM Flestir fagna þegar sól hækkar á lofti og dagurinn lengist. Það kemur þó fyrir að börn ruglist í ríminu á björtum kvöldum og neiti að fara í rúmið. Einföld leið er að hengja upp dökk gluggatjöld, til dæmis rimlagluggatjöld. Með þeim er hægt að myrkva her- bergið og auðveldara verður fyrir börnin að sofna. Sumum finnst leiðinlegt að þrífa rimlatjöld. Ágætt ráð er að ryksuga tjöldin reglulega með ryk suguburstanum eða nota klúta sem draga í sig ryk. Önnur glugga- tjöld koma að sama gagni og má þar nefna svokölluð screen-tjöld en þau eru til í dökkum litum. Sérstök myrkvunartjöld er hægt að fá með barnamynstri sem er skemmtilegt í barnaherbergið. Þegar valin eru rimlatjöld fyrir glugga eða annars konar rúllu- gardínur er engin þörf á öðrum gluggatjöldum. Mun léttara yfirbragð verður á herberginu sé efnistjöldum sleppt auk þess sem loftið er betra. Auðvelt er að draga tjöldin upp á daginn og opna glugga til að fá frískt loft inn. Allir sofa betur í fersku lofti. SÓL Í GEGNUM GLER Þegar útfjólubláir geislar sólarinnar skína á húðina virkja þeir litfrumur hennar til að mynda litarefnið melanín sem veldur því að húðin dökknar. Hlutverk melaníns er að verja húðina gegn þessum sömu geislum. Þegar sólarljós, sem er okkur sýnilegt, skín í gegnum rúðu dofnar það örlítið á leið sinni í gegn. Ósýnilegir útfjólubláir geislar dofna hins vegar enn meira á leið sinni. Magn útfjólublárra geisla sem ná að brjótast í gegnum glerið fer eftir efnasamsetningu þess. Eftir því sem öldulengd útfjólu- blárrar geislunar er styttri því minna af henni kemst í gegnum glerið. Einhverjir útfjólubláir geislar komast þó í gegnum flestar rúður og því má sjá einhverjar breytingar á húðlit ef löngum tíma er varið innan við gler í sólarljósi. Þetta á þó ekki við um framrúður í bílum sem gerðar eru úr sérstöku gleri sem er úr tveimur gler- lögum með plastlagi á milli. Slíkar rúður hleypa mun minna af útfjólubláum geislum í gegnum sig en venjulegt gler og því er ólíklegt að húðin dökkni. Enn fremur er vert að taka það fram að sólar- ljós sem skín í gegnum gler dugar ekki til að örva framleiðslu D-vítamíns í líkamanum líkt og beint sólarljós gerir. heimild:www.visindavefurinn.is Til greina koma allir sem hafa lagt umtalsvert af mörkum til að bæta íslenskt samfélag. Skorað er á lesendur Fréttablaðsins að senda inn tilnefningar um fólk og félagasamtök sem eiga skilið virðingarvott fyrir verk sín. Allir koma til greina, jafnt óþekktir einstaklingar sem vinna störf sín í hljóði, félagasamtök og þjóðþekktir karlar og konur sem hafa með gjörðum sínum og framgöngu verið öðrum fyrirmynd. HEFUR ÞÚ ORÐIÐ VITNI AÐ GÓÐVERKI? ÓSKAÐ ER EFTIR TILNEFNINGUM TIL SAMFÉLAGSVERÐLAUNA FRÉTTABLAÐSINS 2013 Heiðursverðlaun Einstaklingur sem með ævistarfi sínu hefur stuðlað að betra samfélagi. Samfélagsverðlaunin Félagasamtök sem hafa unnið framúrskarandi mannúðar- eða náttúruverndarstarf og lagt sitt af mörkum til að gera íslenskt samfélag betra fyrir okkur öll. Verðlaunafé 1,2 milljónir. Sendið tilnefningar á hlekknum Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins á visir.is/samfelagsverdlaun, með tölvupósti á netfangið samfelagsverdlaun@frettabladid.is, eða bréfleiðis merkt: Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins, Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík. Dómnefnd tekur allar innsendar tillögur til skoðunar. Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins verða veitt í apríl. SAMFÉLAGSVERÐLAUNIN ERU VEITT Í FIMM FLOKKUM Hvunndagshetjan Einstaklingur sem sýnt hefur sérstaka óeigingirni eða hugrekki, hvort sem er í tengslum við einn atburð eða með vinnu að ákveðnum málaflokki í lengri tíma. Frá kynslóð til kynslóðar Hér koma til greina kennarar, leiðbeinendur, þjálfarar eða aðrir uppfræðarar sem skarað hafa fram úr á einhvern hátt. Einnig koma til greina félagasamtök sem sinna börnum af sérstökum metnaði og alúð. Til atlögu gegn fordómum Einstaklingur eða félagasamtök sem hafa unnið ötullega að því að eyða fordómum í samfélaginu. 1 4 5 2 3 SAMFÉLAGSVERÐLAUN að senda t ilnefninga r er til miðn ættis þann Frestur til 14. mars
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.