Fréttablaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 80
16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 48
Teikningar og texti: Bragi Halldórsson
31
„Þarna fer ég inn,“ sagði Kata brött. „Þessi þraut er mér að
skapi.“ Lísaloppa og Konráð hikuðu. „Hvað er þetta, þori þið
ekki?“ sagði Kata. „Þið fylgið bara mér, svona komið þið nú.“
Lísaloppa og Konráð fylgdu Kötu inn í völundarhúsið með
hálfum hug. Skyldu þau komast út hinu megin?
Kemst þú í gegnum þetta völundarhús?
ANDREW TYLER
ÞRÁINN HELGA-
SON, sem er átta
ára Hafnfirðingur,
sendi þessa hressu
mynd af Herra-
mönnunum. Takk
fyrir það.
Hvað heitir þú? Karitas Bjarka-
dóttir.
Hvað ertu gömul? Tólf ára, verð
þrettán í sumar.
Í hvaða skóla ertu? Hamraskóla.
Hvað er skemmtilegast í skól-
anum? Að læra íslensku.
Hvaða áhugamál áttu utan
skóla? Að lesa, syngja, dansa og
spila á píanó.
Hvenær byrjaðir þú í ballett?
Þegar ég var fimm ára.
Hversu oft í viku ertu í ballett?
Þrisvar í viku.
Hvað er erfiðast við æfing-
arnar, og hvað skemmtilegast?
Erfiðast finnst mér að halda
öllum vöðvum strekktum og
hitta á rétta punkta/stellingar.
Splittstökkin eru skemmtilegust.
Hefurðu lært á hljóðfæri? Já,
ég er að læra á píanó í Tónskóla
Björgvins. Í mars ætla ég að taka
þriðja stigs próf sem er grunn-
próf. Svo hef ég haft gaman af
söng frá því ég man eftir mér
og var í Söngskóla Maríu Bjarkar
í nokkur ár. Þessa dagana syng
ég mikið með One Direction og
Little Mix.
Geturðu sagt okkur aðeins
frá kórnum sem þú ert í? Ég
hef verið í kór Hamraskóla frá
stofnun hans árið 2007. Við
syngjum fjölbreytt lög og erum
til dæmis að fara í æfingar búðir
til Keflavíkur um helgina. Á
öskudaginn sungum við á ösku-
dagsráðstefnu félaga kennara-
og skólastjórnenda í Reykjavík.
Í mars ætlum við svo að halda
kaffihúsatónleika í skólanum
fyrir fólkið í hverfinu.
Við fréttum af því að þú værir
að fara á talsetningarnám-
skeið, getur þú sagt okkur frá
því? Námskeiðið byrjar í næstu
viku. Á því æfum við upplestur
og fáum að spreyta okkur á að
talsetja teiknimyndir.
Að lokum, hvað langar þig til
að verða þegar þú ert orðin
fullorðin? Mig langar til að læra
heimspeki, fara í háskólanám
til Bandaríkjanna og vera leik-
og söngkona. Og að lokum vil
ég segja við alþingismenn: EKKI
HÆKKA BÍLPRÓFSALDURINN!!!
Ég hef verið að safna fyrir bíl
síðan í leikskóla.
Langar í háskólanám
til Bandaríkjanna
Karitas Bjarkadóttir er í ballett- og píanónámi, syngur í kór og er á leiðinni á
talsetningarnámskeið. Hún sagði krakkasíðunni frá áhugamálum sínum og upp-
lýsti um leið að hún hefur verið að safna sér fyrir bíl frá leikskólaaldri.
KARITAS BJARKADÓTTIR Vill alls ekki að bílprófsaldurinn verði hækkaður enda
hefur hún verið að safna sér fyrir bíl síðan í leikskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Froskurinn kallaði til prinsessunnar: Kysstu mig! Kysstu mig! Ég er
fagur prins í álögum sem nornin göldrótta lagði á mig! Ef þú kyssir
mig breytist ég aftur í fagran prins!
Prinsessan kyssti froskinn en ekkert gerðist.
- Fyrsti apríl! kallaði froskurinn og hoppaði burt.
Spákonu var boðið í matarboð á laugardegi.
- Því miður kemst ég ekki. Ég mun lenda í bílslysi á föstudaginn.
- Þjónn! Ég ætla að panta tvöfaldan skammt af spagettíi.
- Með ánægju, frú.
- Nei, með kjötsósu, takk.
Á Vísi er hægt að horfa á
mynd skreyttan upp lestur
úr þessum sígildu
ævintýrum.
Hlustaðu á Dísu ljósálf
og Alfinn álfakóng á Vísi
Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið 1928
í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið endurprentað.
Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna holl enska meistarans
G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum börnum í tugi ára.
Brandarar