Fréttablaðið - 16.02.2013, Síða 86
16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 54TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Alúð - virðing - traust
Áratuga reynsla
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
KNÚTUR OTTERSTEDT
Brekkugötu 36 Akureyri
lést á Dvalarheimilinu Hlíð 12. febrúar.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 19. febrúar kl. 13.30.
Harriet Otterstedt
Lena Otterstedt
Kristján Otterstedt Ólöf Margrét Eiríksdóttir
Ása Karen Otterstedt Karl Eckner
Knútur Otterstedt Silja Rán Andradóttir
Margrét Sesselja Otterstedt
Una Lind Otterstedt
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og vináttu við
andlát og útför okkar ástkæru
JÓHÖNNU KRISTINSDÓTTUR
Miðtúni 2, Keflavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og
Gjörgæsludeildar Landspítala
Jakob Árnason
Ísleifur Árni Jakobsson Laufey Hrönn Þorsteinsdóttir
Guðrún Sigríður Jakobsdóttir Gunnar I. Baldvinsson
Kristinn Þór Jakobsson Ólöf K. Sveinsdóttir
Ásdís Ýr Jakobsdóttir Valur B. Kristinsson
Sigrún Björk Jakobsdóttir Jón Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við
andlát og útför móður okkar,
UNNAR GUÐBJARGAR
ÞORKELSDÓTTUR
hárgreiðslumeistara, Álftanesi.
Þorkell Snorri Gylfason
Freyja Gylfadóttir
Unnur Kristbjörg Gylfadóttir
Kristín Edda Gylfadóttir
Margrét Þóra Gylfadóttir
Sími 551 3485,
svar ða allan
sólarhringinn.
www.udo.is
Hinrik Davíð Jóhanna Óli Pétur
Okkar ástkæra
SVEINBJÖRG HERMANNSDÓTTIR
verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju
mánudaginn 18. febrúar kl. 13.00.
Júlíana Ruth Woodward
Arndís V. Sævarsdóttir Eiríkur Sigurðsson
Margrét S. Sævarsdóttir Ólafur Þ. Þórðarson
Erla S. Sævarsdóttir Jón Óskar Gíslason
Bryndís Ósk Sævarsdóttir Sigurður Á. Pétursson
barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamamma, amma og langamma,
ÁSTA BJARNADÓTTIR
frá Stað í Steingrímsfirði,
til heimilis að Hólagötu 25, Njarðvík,
lést að morgni 13. febrúar á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja. Hún verður jarðsungin
frá Ytri-Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn
20. febrúar kl. 13.00.
Margeir B. Steinþórsson
Magnús Steingrímsson Marta Sigvaldadóttir
Bjarni Steingrímsson Irena Maria Motyl
Kristín Steingrímsdóttir Árni Magnús Björnsson
Loftur Hilmar Steingrímsson
ömmu- og langömmubörn.
„Ég er vön að segja að ég sé mikil
gleðikona og svo má fólk leggja sína
túlkun í það. En sá er einmitt boð-
skapur bókarinnar sem ég var að
þýða og er nýkomin út hjá Draum-
sýn, að við höfum alltaf val um
hvort við veljum gleðina eða fýluna
og pirringinn. Það finnst mér góð
speki,“ segir Draumey Aradóttir, rit-
höfundur og þýðandi. Hún er nýkom-
in til landsins frá Svíþjóð ýmissa
erinda því fyrir utan að kynna bók-
ina Að velja gleði ætlar hún að dekra
við lítið barnabarn.
„Hún Sunna Dís dóttir mín gerði
mér þann grikk að gefa mér ömmu-
barn í október og þess vegna er ég
í þriðju Íslandsheimsókninni síðan.
Ég stenst ekki mátið. En í Svíþjóð
á ég samt heima. Sænskt þjóðfélag
hentar mér, ég fann það strax og ég
flutti út fyrir fimmtán árum. Þar er
annar snúningshraði en hér og mér
líður ofsalega vel þar,“ segir hún.
Draumey hefur gefið út eigin rit-
smíðar bæði á Íslandi og í Svíþjóð
en Að velja gleði er fyrsta bókin
sem hún þýðir úr sænsku á íslensku.
„Þetta er sjálfsþroskabók,“ segir
hún og kveðst alla tíð hafa haft
áhuga á því sem leiðir til aukins
þroska. „Ég hef lesið ótal bækur á
því sviði og farið á allskyns nám-
skeið en strax í fyrsta kaflanum á
þessari bók sá ég að hún var frá-
bær því hún er svo vel skrifuð og
hentar öllum. Uppsetningin er ein-
föld, skilaboðin skýr og æfingarnar
góðar. Höfundurinn, Kay Pollak, er
svo auðmjúkur og fellur ekki í þá
gildru að setja sig á háan hest heldur
er á sömu leið og lesendur. Veit sem
er að allir eru mannlegir og aldrei
búnir að læra.“
Draumey kveðst hafa komist í
tölvupóstsamband við Kay Pollak
eftir að hafa farið á myndina hans
Så som i himmelen með þáverandi
sænskum eiginmanni. „Þar sem
við hjónakornin sátum hvort á móti
öðru í baðkari eftir bíóið, ég í sjö-
unda himni yfir myndinni en hann
þungur á brún, hugsaði ég: getur
verið að við höfum verið að horfa
sömu mynd? Þegar ég skrifaði Pol-
lak til að hrósa honum fyrir mynd-
ina lýsi ég baðsenunni fyrir honum.
Hann skrifaði á móti að þetta væri
besta lýsingin á því sem bókin hans
fjallaði um, að hugarfarið skapaði
líðan okkar og veruleika. Síðan bað
ég um þýðingarréttinn á bókinni.
Hún er metsölubók í Svíþjóð og
hefur verið þýdd víða um lönd og er
svo hagnýt að hún þarf eiginlega að
fylgja manni alla ævi.“
Eftir tólf ára búsetu í Lundi
kveðst Draumey hafa látið 40 ára
draum sinn rætast og flutt út í sveit.
„Ég skildi við manninn minn, keypti
mér hús frá 1880 á miðju Skáni og
fékk mér hund og kött. Þar sit ég
og skálda og þýði. Svo keyri ég til
Lundar og kenni þar tvo og hálfan
dag í viku,“ segir hún og kveðst
meðal annars kenna íslenskum börn-
um íslensku. „Nú er móðurmáls-
kennslan i Svíþjóð orðin að alvöru
námsgrein í grunnskólunum þannig
að nemendur fá jafnmörg stig fyrir
móðurmálið sitt og aðrar greinar.
Ég kenni líka fullorðnum Svíum
íslensku, sem koma á námskeið eins
og í Tómstundaskólanum hér. Síðan
er ég líka að kenna innflytjenda-
börnum sænsku sem annað mál. Þar
nýt ég minnar reynslu sem innflytj-
anda, sem er svolítið gott.“
gun@frettabladid.is
Ég er mikil gleðikona
Draumey Aradóttir býr í yfi r 130 ára gömlu húsi í sænskri sveit en er komin til Íslands að
fylgja eft ir sinni fyrstu þýðingu á sænskri bók, Að velja gleði, eft ir Kay Pollak.
ÞÝÐANDINN „Þar sem við hjónakornin sátum hvort á móti öðru í baðkari eftir bíóið, ég í
sjöunda himni yfir myndinni en hann þungur á brún, hugsaði ég: getur verið að við höfum
verið að horfa sömu mynd?“ segir Draumey Aradóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fimm vörður á vegi ástarinnar, 2003: Bokförlaget Blåtunga
Svíþjóð, Fem stenrösen på kärlekens stig, 2003: Bokförlaget Blåtunga
Birta– Draugasaga, 2004: Fjölvi
Þjófur og ekki þjófur, 2001: Mál og menning
Einnig hafa birst eftir hana ljóð á sænsku, ensku og hollensku í tímaritum og
bókum.
Áður útkomið efni eftir Draumeyju