Fréttablaðið - 16.02.2013, Page 88

Fréttablaðið - 16.02.2013, Page 88
16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 56 Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORSTEINN ELÍSSON Laxárdal, síðast til heimilis að Glósölum 7, Kópavogi lést á Landakotsspítala 14. febrúar. Guðný Sigríður Þorsteinsdóttir Sveinn Karlsson Guðrún Þorsteinsdóttir Jón Einarsson Karólína Dóra Þorsteinsdóttir Böðvar Stefánsson Elínborg Þorsteinsdóttir Bergvin Sævar Guðmundsson Ólöf Þorsteinsdóttir Böðvar Sigvaldi Böðvarsson barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, STEINÞÓR INGEBRIGT NYGAARD sem lést 14. febrúar verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 20. febrúar kl.15.00. Ásta H. Haraldsdóttir Erlendur Steinþórsson Shou-Ping Wendy Chen Andrés R. Ingólfsson Guðlaug Helga Konráðsdóttir Ása Andrésdóttir Auður Ásta Andrésdóttir Benjamin Beier Margét Erlendsdóttir Arthur Erlendsson Þökkum innilega auðsýnda samúð, hlýhug og vinsemd vegna andláts og útfarar okkar ástkæru SIGRÍÐAR ÓLAFSDÓTTUR Bræðraborgarstíg 7, Reykjavík. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á krabbameinslækningadeild Landspítalans fyrir góða umönnun og hlýju í hennar garð. Guðmundur Guðmundsson Kristján Gylfi Guðmundsson Eyrún Guðmundsdóttir Unnar Bragi Bragason Brynhildur Guðmundsdóttir Jón Valgeirsson Borghildur Guðmundsdóttir Kolbeinn Sveinbjörnsson Kristrún, Lúkas, Tryggvi, Felix, Emil Bragi, Eva Karen, Guðmundur, Hildur, Sólveig Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR HALLGRÍMSSON lyfjafræðingur, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju mánu daginn 18. febrúar kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjálparstarf kirkjunnar. Anna Guðrún Hugadóttir Vera Guðmundsdóttir Þórarinn Blöndal Daði Guðmundsson Dianne Y. Guðmundsson Hugi Guðmundsson Hanna Loftsdóttir Alma Guðmundsdóttir Eva Magnúsdóttir Tinna Magnúsdóttir Hildur Blöndal Unnar Blöndal Jóhanna Hugadóttir Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langlangafi, SIGURÐUR ÞÓRARINN ODDSSON áður til heimilis að Norðurbrún 1, lést þann 9. febrúar á Hjúkrunarheimilinu Mörk. Hann verður jarðsunginn frá Áskirkju þriðjudaginn 19. febrúar kl. 13.00. Brynhildur Sigurðardóttir Kristín G. Sigurðardóttir Kolbrún M. Sigurðardóttir Gísli Hafsteinn Einarsson Sigþrúður Sigurðardóttir Elsa Á. Sigurðardóttir Oddur Sigurðsson Guðbjartur J. Sigurðsson Sigurður Þ. Sigurðsson Kristín H. Friðriksdóttir Barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KARÓLÍNU FRIÐRIKU HALLGRÍMSDÓTTUR Laugarvegi 33, Siglufirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðis- stofnunar Fjallabyggðar fyrir einstaka alúð og elskusemi. Guð blessi ykkur öll. Ólöf Þórey Haraldsdóttir Ásgeir Sigurðsson Helga Haraldsdóttir Erlingur Björnsson Ragnheiður Haraldsdóttir Árni Haraldsson Ragnheiður Árnadóttir Eyþór Haraldsson Árni Þór Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar og amma, VIGDÍS SVERRISDÓTTIR frá Hvammi, Norðurárdal, lést fimmtudaginn 14. febrúar á Dvalarheimilinu Grund við Hringbraut. Útförin fer fram frá Neskirkju föstudaginn 22. febrúar kl. 13.00. Anna Vigdís Jónsdóttir Jörundur Svavar Guðmundsson Sigurlaug Jónsdóttir Hallgrímur Þorsteinn Magnússon Sverrir Jónsson Erla Danfríður Kristjónsdóttir Sigbjörn Jónsson Valgerður Hildibrandsdóttir og ömmubörn. Verkið sem Snúður og Snælda frum- sýnir í Iðnó í dag gerist á vistheimili aldraðra. Heimilið er að halda upp á hálfrar aldar afmæli sitt og í tilefni þess hefur hópur heimilisfólks tekið að sér að æfa upp skemmtidagskrá. Sú dagskrá inniheldur leikritið Ráða- bruggið og nokkra gamanþætti þar sem stiklað er á söng milli atriða. Úr verður sem sagt Bland í poka. Ráðabruggið er eftir Sesselju Páls- dóttur, Sellu, sem nýlega flutti til landsins eftir áratuga búsetu í Banda- ríkjunum. Hún kveðst hafa skrifað það á síðasta ári og segir að það hafi aldrei verið sett upp áður. „Þátturinn minn fjallar um nútímasamskipti milli þriggja kynslóða. Fulltrúar tveggja þeirra eldri sjást á sviðinu en sú þriðja kemur við sögu,“ segir Sesselja og lýsir söguþræðinum ögn nánar. „Geir þrúður er öldruð kona sem gabbar son sinn til sín en tilgangurinn er annar en sá sem hann heldur. Þetta kemur allt í ljós á sviðinu.“ Sesselja segir Bjarna Ingvarsson leikstjóra og leikhópinn hafa samið Bland í poka. „Það er mikill söngur og fjör í því,“ tekur hún fram. „Þar eru flutt sjö eða átta lög og bæði lög og söngtextar eru gamlar perlur frá fyrri tíð eftir ýmsa höfunda. Spilað er undir á harmóniku og gítar og lögð áhersla á að áhorfendur taki undir.“ Verkið er um það bil 80 mínútur í flutningi og taka ellefu manns þátt í uppfærslunni, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Nokkrir nýir leik- arar stíga sín fyrstu spor á leiksvið- inu í þessari uppfærslu en auk þeirra eru þaulreyndir leikarar sem tekið hafa þátt í fjölda leiksýninga hjá leik- hópnum Snúði og Snældu. Eins og Sesselja gat um leikstýrir Bjarni Ingvarsson sýningunni. Hann hefur leikstýrt og leikið í fjölda sýn- inga og leikið í nokkrum kvikmyndum. Miða á Ráðabruggið og Bland í poka má kaupa í Iðnó. Miðaverð er 3.000 krónur en 2.500 fyrir aldraða og öryrkja. gun@frettabladid.is Öldruð móðir gabbar son sinn til sín Leikhópurinn Snúður og Snælda frumsýnir nýtt verk í Iðnó í dag, 16. febrúar klukkan 14, sem nefnist Ráðabruggið og Bland í poka. Þar eru fl uttar nokkrar söngperlur frá fyrri tíð og lögð áhersla á að gestir taki undir. LEIKHÓPURINN Á ÆFINGU Það er hasar á köflum í þættinum Bland í poka. Hér eigast við leikararnir Heiðar og Magnús en bak við þá standa Bergljót, Aðalheiður, Gunnar og Jón, öll í sínum hlut- verkum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Guðmundur G. Þórarinsson byggingar- verkfræðingur var útnefndur heiðurs- félagi Verkfræðingafélags Íslands á árshátíð félagsins fyrir fáum dögum. Þá voru Ólafur Haralds Wallevik byggingarverkfræðingur, Ragnhildur Geirsdóttir vélaverkfræðingur, og Vil- hjálmur Lúðvíksson efnaverkfræðing- ur sæmd heiðursmerki félagsins. Það er Merkisnefnd VFÍ sem útnefnir heið- ursfélaga og þá einstaklinga sem hljóta heiðursmerki félagsins. Heiðursfélagi VFÍ er sæmdarheiti sem aðeins hlotnast einstaklingum sem leyst hafa af hendi sérlega mikilsverð störf á sviði félagsmála VFÍ eða frá- bær verkfræði- eða vísindastörf. Guð- mundur G. er sá 23. í röðinni sem hlýt- ur þetta sæmdarheiti í rúmlega 100 ára sögu félagsins. Heiðursmerki VFÍ eru veitt í viður- kenningarskyni fyrir vel unnin störf á sviði verkfræði eða vísinda, fyrir framtak til eflingar verkfræðinga- stéttinni í heild eða fyrir félagsstörf í þágu verkfræðingastéttarinnar. Alls hafa ríflega eitt hundrað einstaklingar hlotið þá viðurkenningu. Verkfræðingar heiðraðir Fjórir verkfræðingar voru heiðraðir á árshátíð Verkfræðingafélags Íslands nýlega. Þar af hlaut einn æðstu viðurkenningu félagsins. VIÐ AFHENDINGUNA Árni B. Björnsson, framkvæmdastjóri VFÍ, Kristinn Andersen, formaður VFÍ, Vilhjálmur Lúðvíksson, Ragnhildur Geirsdóttir, Ólafur Haralds Wallevik og Guðmundur G. Þórarinsson, heiðursfélagi VFÍ.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.