Fréttablaðið - 16.02.2013, Page 95
LAUGARDAGUR 16. febrúar 2013 | MENNING | 63
SJÁÐU ÍSLAND OG KÍNA
TEFLA UM HELGINA
Landskeppni Íslands og Kína í skák fer fram
í Arion banka, Borgartúni 19, helgina 16.–17.
febrúar frá kl. 13 til 17.
Spennandi atskákir. Kínverskir ofurstórmeistarar,
skákdrottningar og undrabörn. Goðsögnin Friðrik
Ólafsson í íslenska liðinu ásamt stórmeisturum og
efnilegustu ungmennum landsins.
Verið hjartanlega velkomin - kaffi á könnunni.
Skáksamband Íslands (SÍ) og
Kínversk íslenska menningarfélagið
(KÍM) standa að landskeppninni í
samvinnu við Skáksamband Kína,
og með stuðningi Arion banka, CCP,
Promens, Icelandic og Elkem Ísland.
21.30 Hljómsveitin Ylja spilar á
tónleikaröðinni Mölin á Malarkaffi á
Drangsnesi. Að vanda opnar Borko
kvöldið með nýrri og gamalli tónlist úr
sinni smiðju og sérstakur leynigestur
kemur fram með honum. Miðaverð er
kr. 2.000.
22.00 Ljótu hálfvitarnir halda tónleika á
Café Rosenberg. Miðaverð er kr. 2.500.
22.00 Tónlistarhátíðin Dautt Andrúms-
loft verður haldin á Íslenska Rokkbarn-
um, Dalshrauni 13 í Hafnarfirði. Fram
koma svartmálmssveitirnar Dynfari,
Auðn og Váboði. Hljómsveitin Blood
Feud verður sérstakur gestur.
22.00 Upprennandi rokkhljómsveitin
Casio Fatso spilar melódískt rokk á
Dillon Bar. Aðgangur er ókeypis.
22.00 Greifarnir mæta á skemmtistað-
inn Spot í Kópavogi sem er í dag orðinn
þeirra helsti heimavöllur.
23.00 Hljómsveitin Valdimar stígur
á svið á efri hæð Faktorýs. Positive
Vibrations flokkurinn sjá um að halda
stuðinu gangandi í hliðarsalnum.
23.00 Bítladrengirnir blíðu halda tón-
leika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da,Frakkastíg 8.
Aðgangseyrir er kr. 1.000.
Fyrirlestrar
10.30 Páll Torfi Önundarson yfirlæknir
á LSH og Magnús Skúlason arkitekt
kynna hugmyndir sínar að lausn á upp-
byggingu á Landspítalalóðinni á fundi
Framsóknar. Fundurinn verður haldinn
að Hverfisgötu 33 og allir eru velkomnir.
Útivist
10.00 Boðið verður upp á hjólreiðaferð
frá Hlemmi. Hjólað er í 1-2 tíma um
borgina í rólegri ferð. Allir velkomnir og
þátttaka ókeypis. Nánari upplýsingar á
vef LHM.is.
SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2013
Listasmiðja
15.00 Boðið verður upp á origami-
smiðju í aðalsafni Borgarbókasafns. Allir
velkomnir.
Félagsvist
14.00 Félagsvist verður spiluð í Breið-
firðingabúð, Faxafeni 14. Allir velkomnir.
19.00 Bridge tvímenningur verður spil-
aður í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14.
Allir velkomnir.
Hátíðir
09.00 Vetrar- og útivistarhátíðin
Éljagangur fer fram á Akureyri og lýkur
í dag. Nánari dagskrá má finna á heima-
síðunni www.eljagangur.is.
Kvikmyndir
15.00 Sovéska kvikmyndin Tundur-
skeytaflugsveitin, frá árinu 1983, verður
sýnd í MÍR salnum, Hverfisgötu 105.
Myndin fjallar um flugliða Sovétmanna
sem börðust gegn Þjóðverjum í síðari
heimsstyrjöldinni. Myndin er á rúss-
nesku en með enskum texta. Aðgangur
er ókeypis.
Sýningarspjall
15.00 Klara Þórhallsdóttir verður með
sýningastjóraspjall og leiðsögn um sýn-
ingu Bjarkar Viggósdóttur, Aðdráttarafl,
hringlaga hreyfing, í Hafnarborg.
Opið Hús
14.00 Opið hún verður í Seyðtúni, Blá-
skógum 6 í Hveragerði. Húsið var byggt
af Kristni Péturssyni og er nú til sýnis í
tengslum við sýninguna Tómið - Horfin
verk Kristins Péturssonar sem stendur
yfir í Listasafni Árnesinga.
Uppákomur
11.00 Tveir fyrir einn verður af
aðgangseyri á Þjóðminjasafn Íslands.
Ókeypis fyrir börn.
Dansleikir
23.00 Dansleikur Félags eldri borgara í
Reykjavík verður haldinn að Stangarhyl
4. Danshljómsveitin Klassík leikur létta
danstónlist. Aðgangseyrir fyrir félaga
FEB í Reykjavík er kr. 1.500 en kr. 1.800
fyrir aðra gesti.
Tónlist
15.15 Tríó Vei, skipað þeim Ingibjörgu
Guðjónsdóttur sópran, Einari Jóhann-
essyni klarínettuleikara og Valgerði
Andrésdóttur píanóleikara, kemur fram
á tónleikum 15:15 tónleikasyrpunar í
Norræna húsinu. Miðaverð er kr. 2.000
en kr. 1.000 fyrir eldri borgara, öryrkja
og námsmenn.
17.00 Andrea Jónsdóttir leikur lög af
hljómplötum á Ob-La-Dí-Ob-La-Da,
Frakkastíg 8. Aðgangur er ókeypis.
21.30 Hinir vikulegu jazz tónleikar
verða haldnir í hliðarsalnum á Faktorý.
Aðgangur er ókeypis.
Leiðsögn
15.00 Sigrún Sandra Ólafsdóttir býður
upp á leiðsögn um samsýninguna Lög
unga fólksins í Listasafni Reykjanes bæjar
í Duushúsum. Aðgangur er ókeypis.
Listamannaspjall
15.00 Listamaðurinn Ívar Valgarðsson
spjallar um innsetningu sína Til spillis,
sem nú er að finna í A-sal Hafnar-
hússins.
Upplýsingar um viðburði sendist
á hvar@frettabladid.is
SKÁLMÖLD
Yr.no
Á Íslandi hafa góðar upplýsingar
um veðrið reynst mörgum til lífs
í gegnum tíðina. Íslendingar vita
það allir að það þýðir varla að fara
vanbúinn í fjallgöngu í stormi, það
getur jafnvel verið ömurlegt að fara
vanbúinn út í búð í frosti.
Norðmenn búa við svipuð skilyrði
en þar í landi hefur ríkisútvarp og
veðurstofa Noregs hannað fullkomið
veðurapp. Appið ákvarðar staðsetn-
ingu notandans sjálfkrafa og birtir
veðurspá um leið. Notandinn getur
einnig valið sér uppáhaldsstaði til að
fylgjast með veðrinu.
Og það besta er að veðurappið er
ekki aðeins bundið við Ísland og
Noreg því heimurinn allur er undir.
Hvert sem þú ferð, hvort sem það
er á brimbretti í Indónesíu eða í
vetrarhörkur á Svalbarða, veistu
nákvæmlega hvernig veðrið er.
Skýringar:
App fyrir Apple-tæki
App fyrir Android-tæki
App fyrir Windows
APP VIKUNNAR